Fréttablaðið - 30.09.2005, Page 27

Fréttablaðið - 30.09.2005, Page 27
TILBOÐ O.FL. Bílauppboð hjá Vöku BLS. 3 [ SVEPPIRGirnilegar uppskriftir BLS. 5 ÍSLENSK HÖNNUN Gróska í miðbænum BLS. 6-7 ] SMÁAUGLÝSINGAR Flokkar Bílar & farartæki Keypt & selt Þjónusta Heilsa Skólar & námskeið Heimilið Tómstundir & ferðir Húsnæði Atvinna Tilkynningar Verið velkomin í stórglæsilegan sýningarsal Mörkinni 1, 108 Reykjavík. Upplifið það nýjasta í innréttingum. Opnunartími. Virka daga 9-18 Laugardaga 11-15 Sími 515 0700 Góðan dag! Í dag er föstudagur 30. september, 273. dagur ársins 2005. REYKJAVÍK 7.34 13.18 19.00 AKUREYRI 7.19 13.02 18.44 Heimild: Almanak Háskólans Sólarupprás Hádegi Sólarlag Rósa Guðný Þórsdóttir leikkona býr í Hvalfirðinum þar sem hún sækir sér hráefni í næsta nágrenni. „Eftir að ég flutti út í sveit kaupi ég öðru- vísi inn, þar sem ég skrepp ekki bara út í búð,“ segir Rósa Guðný Þórsdóttir leik- kona, sem býr í Hvalfirðinum. „Ég fjárfesti í frystikistu og nú fæ ég naut af næsta bæ, en ég hef ekki fengið betra nautakjöt á Ís- landi. Lamb fæ ég líka, í heilum skrokkum og á sjálf tvær rollur. Ég er nú ekki farin að slátra afurðunum ennþá, en þarf víst að gera það ef ég ætla að vera almennilegur rollubóndi,“ segir Rósa Guðný og hlær. Hún er einnig að koma sér upp matjurtargarði í sveitinni þar sem hún fiktar við kartöflu- rækt og fleira. „Um að gera að nýta sér þetta pláss sem maður hefur,“ segir Rósa Guðný. Hvað daglega eldamennsku varðar segist Rósa Guðný ekkert sérstaklega hafa gaman af því að elda mat svona dags dag- lega, en annað mál sé með veislumat. „Ég hef mjög gaman af því að bjóða fólki í mat og hafa þá dálítið fyrir hlutunum. Þegar ég er í því stuðinu finnst mér það fínt að elda- mennskan taki smá tíma. Sérstaklega finnst mér gaman að laga súpur,“ segir Rósa Guðný. „Ég get alveg legið yfir súpum í nokkra klukkutíma og soðið þær. Ég bý til dæmis til mjög góða uxahalasúpu og humarsúpur. Súpugerð er mikil vinna og mikið dútlerí,“ segir Rósa Guðný. Í sumar náði hún sér í skelfisk í Hval- firðinum og bauð fólki í súpu. „Skömmu eftir að ég tíndi hann kom í fréttunum að maður ætti ekki að borða skelfisk á sumrin. Ég tíndi hann náttúrlega í miklum hita þannig að ég gat vaðið berfætt út í, en engum varð nú illt af þessu, sem betur fer,“ segir Rósa Guðný. kristineva@frettabladid.is Tínir skelfiskinn sjálf Verslunin Change í Smáralind er með 20-70% afslátt á vörum sínum sem allar eru fyrir döm- ur. Þar er um að ræða náttföt í öllum mögulegum stærðum og gerðum, baðfatnað, undirföt og hlýlegan heimafatnað úr flísi. Sem dæmi um verð má nefna bómullarnáttföt sem áður kost- uðu 5.990 en kosta nú 4.792 kr. og brjósta- höld sem voru á 3.790 fást nú á 2.653 kr. Allar úlpur og kápur eru á hausttilboði hjá Hrafnhildi á Engjateigi 5. Þar er boðinn 15% afsláttur af þessum yfir- höfnum og það kemur sér vel í norðannepjunni eða hvaðan svo sem vindurinn blæs. Nú er tíminn til að kaupa sér smjör og setja í frystinn því gera má ráð fyrir að það sé unnið úr sumarmjólk. Mjólk úr kúm sem bíta mikið gras inni- heldur meira af Omega-3 fitu- sýrum en mjólk úr kúm sem nærast á kjarnfóðri. Því er sumar- smjör hollara en vetrarsmjör. Línan hefur lækkað verð á Em- press Queen size dýnu. Lista- verð á henni er 94.900 en hún býðst nú á 75.900 kr. Innifalið í því verði er dýnan, boxdýna og undirstöður. Línan er til húsa á Suðurlandsbraut 22. Rósa Guðný Þórsdóttir við störf í eldhúsinu sínu. LIGGUR Í LOFTINU [ TILBOÐ - MATUR ] KRÍLIN Presturinn sagði að ég hefði sannarlega gert jarðarförina meira spennandi! SMÁAUGLÝSINGAR SÍMI: 550 5000 ÞÚ GETUR PANTAÐ SMÁAUGLÝSINGAR Á visir.is FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A N TO N B R IN K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.