Tíminn - 24.08.1975, Síða 6

Tíminn - 24.08.1975, Síða 6
6 TíMINN Sunnudagur 24. ágúst 1975 Ingólfur Davíðsson: Byggt og búið í gamla daga LXXXVI Viö Hafnarstræti i Reykjavik ber fyrir augu þrikvistaða byggingu i „rauðu pilsi og gulgrárri rauðköflóttri blússu, girt svartri megingjörð undir rauðu höfuðfati”. Innan við gömlu skarsúðina búa Optik og Penninn og hafa sett mörk sin hið ytra. Þetta er nr. 18 nábúi gamla Smjörhússins. örlygur Sigurðsson listmálari ritar i bókinni „Þættir og hættir” á þessa leið: „Nr 18 við Hafnar- stræti er samansett af þremur ævafornum hússkriflum, þar af einum gömlum selstöðuhjalli allar götur sunnan úr Keflavik. — Jakobeusarhús, sem siðar hét Nýhöfn. Þar andar hver biti og hvert viðarborð af gamalli tið gengnum gaurum-faktorslykt. Þar marrar i hverju þrepi, þegar genginn er stiginn upp á loft, eins og til að minna okkur á fallvaltleikann á svikulum og ó- tryggum tröppugangi lifsins.” Það mun hafa verið einlyft fiskihús, sem Jakoeus kaup- maður lét setja niður á norð- austurhorn lóðarinnar áriö 1795 og annaö fiskihús vestan við hitt nokkrum árum siðar. Og alda- mótaárið 1800 reisti hann nýtt hús þvert við vesturgaflinn á seinna fiskihúsínu. Byggingin er þvi i rauninni þrjú misgömul hús, elzta húsið sett þarna 1795 og þá e.t.v. gamalt. t „þrihúsinu” var sölubúð, ibúð og geymslur. Siðan keypti skozkur kaupmaður, Martin Smith að nafni, húsin. Hann lét sameina þau og setja á sam- eiginlegt þak með kvistum. Mikinn fróðleik er að finna um húsin og ibúa þeirra I bók Arna óla „Sagt frá Reykjavik”. Nágranni þrieina hússins er einnig kominn til ára sinna. Hann stendur i enda Hafnar- strætis einn sér úti viö Lækjar- Snæbjarnar Jónssonar Hafnar- stræti 4, vekur fljótt eftirtekt, mosagrænt með rauðu þaki. Þó stendur það undir vegg hins gráa steinbákns Búnaðar- bankans, sem gnæfir yfir það. Meiri þokki og f jölbreytileiki er yfir gamla húsinu hægra megin við bókaverzlunina. Vönduð steinhús eru hagkvæm, en þeim hættir til að vera kuldaleg á svipinn. torg og ber nú' nr. 22. Lágt strætóskýli rétt hjá (sjá mynd) Þarna er Bókaverzlun Braga Brynjólfssonar, Veiðimaðurinn og klæðskeri. Mun elzti hluti hússins um 170 ára gamall. Þarna byggði I öndverðu Bjarni riddari Sivertsen einlyft, frem- ur lágt hús og lét reka þar verzlun. Haustið 1851 fékk prestaskólinn inni i húsinu og bjó þar um 20 ára skeið mjög þröngt, en flutti þá i Austur- stræti 22. 1872 lét Caroline Linnet, ekkja Hans verzlunar- stjóra sonarsonar Bjarna, stækka húsið og setja hæð ofan á það. Hjá Caroline leigðu margir stúdentar. Aldamótaárið fluttist Tryggvi Gunnarsson banka- stjóri I húsið. Eftir aldamótin var neðri hæðinni breytt i búð og hóf smjörhúsið Irma þar verzlun. Hve lengi fær húsið að standa? Litum á langhryggjað söðulbakað hús, rautt með grænu þaki á horninu við Vesturgötuna , þar sem nú er verzlunin Hamborg og Islenzk- ur heimilisiðnaður. Þar stóð Fálkahúsið. Fálkamyndirnar á mæni hússins minna á það, en sjálft gamla húsið er löngu horfið. Hamborg og heimilis- iðnaðurinn búa i gamla Geysis- húsinu, verzlunarhúsi frá fyrri tið, eins og m.a. vængja- hurðirnar uppi á annarri hæð á gaflinum til móts við Vestur- götuna bera vitni. Umhverfið þarna er fornlegt og hlýlegt. Fyrrum voru fálkarnir fyrst hafðir i Valhúsi á Valhúsahæð, en fluttir þaðan i Fálkahúsið áður en þeir voru sendir sem veiðifalkar til útlandakonungs- og höfðingjagersemi. Litið hús, bókaverzlun BókabúðBraga Hafnarstræti 22 (1974) Bókaverzlun Snæbjarnar Hafnarstræti 6 (1974) Hafnarstræti 18 (1974) Verzl. Ilamborg með fálkamyndirnar (1974)

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.