Tíminn - 24.08.1975, Blaðsíða 11

Tíminn - 24.08.1975, Blaðsíða 11
Sunnudagur 24. ágúst 1975 TÍMINN 11 Biskup íslands þriðji heiðursgesturinn á 100 ára afmælinu: íslenzk menningar- erfð í Kanada viðfangsefni ráðstefnu á síðari hluta hátíðahaldanna, sem verða í október. Karlakór Reykjavíkur syngur þá vestra og með honum gefst síi hópferð til Kanada í Síðari hluti hátlöahalda Vest- ur-tslendinga, vegna aldaraf- mælis byggðar þeirra i Kanada, fer fram I Winnipeg og nágrenni dagana 3. til 12. október nk. Það er stofnunin KAN- ADA-ÍSLAND, sem stendur fyr- ir þessum hluta hátlðahald- anna, með stuðningi frá ellefu félögum, söfnuðum, stofnunum og fyrirtækj'um, sem leggja henni lið með fjárframlögum og starfsliði. Megintilgangur hátiðarinnar er að vekja athygli á framlagi islenzka þjóðarbrotsins til fé- lagslegs framtaks, visinda og lista I hinu kanadiska samfé- lagi og verður af þvi tilefni hald- in ráðstefna i þrjá daga I Winni- peg, sem nefnd hefur verið „KANADA-ÍSLAND Aldaraf- mælisráðstefna”, en tema ráð- stefnunnar er: „Hin Islenzka erfð i margþættu menningar- þjóðfélagi”. Fjölmargir menntamenn vlða að úr heiminum flytja þarna er- indi, meðal þeirra dr. Peter G. Foote frá Englandi, dr. Einar Haugen frá Harvard-háskóla i Bandarikjunum og prófessor Haraldur Bessason frá Islandi. Forsetar ráðstefnunnar eru Leifur J. Hallgrimsson, Winni- peg, John P. Sigvaldason, Ott- awa og Valdimar Björnsson, Minneapolis, Bandarlkjunum. lasta tækifærið fyrir afmælisheimsókn Nokkrir gestir flytja þarna kveðjur og ræður, þeirra á með- al dr. Henry E. Duckworth, for- seti Manitoba-háskóla og Har- aldur Kröyer, sendiherra Is- lands I Kanada. I sambandi við ráðstefnuna verða almennar umræður, svo og ýmsar opinberar stofnanir heimsóttar og skóðaðar, þar sem Vestur-lslendingar hafa lengi komið við sögu. Þá verður m.a. Manitoba-háskóli heim- sóttur og flytur þar ræðu menn- ingarmálaráðherra Kanada, John Munro. í framhaldi af ráðstefnunni verður þess og minnzt, að Vest- ur-tslendingar voru miklir trú- menn og að Islenzku frumbyggj- arnir fluttu með sér lúthersku trúna og stofnuðu snemma kirkjufélög I þeim anda, sem fljótlega urðu mjög öflug og starfa enn með miklum blóma vestra. Biskup Islands, herra Sigur- björn Einarsson, verður gestur ráðstefnunnar og flytur ræðu við Islenzka guðsþjónustu, sem haldin verður I Winnipeg 5. október, en þar verða m.a. við- staddir fulltrúar hinna fjöl- mörgu vestur-islenzku kirkju- félaga i Kanarta. Listasýningar og hljómleikar eru haldnir i sambandi við ráð- stefnuna. T.d. syngur KARLA- íslendinga, að fá KÓR REYKJAVIKUR á fyrsta degi hennar hinn 3. okt. ., slð- an I borginni BRANDON hinn 6. október og I LUNDAR hinn 8. október. Kórinn heldur vestur 1. októ- ber og hefur tekið á leigu flugvél hjá „AIR YIKING” til ferðar- innar, en nokkur sæti munu vera laus fyrir þá, sem áhuga hafa á að heimsækja byggðir frænda og vina vestra. Þess má geta hér, að flugvélin mun bíða I Winnipeg meðan kórinn dvelur I Manitoba, en flytjá hann síðan til Minneapolis I Bandarikjun- um og ef til vill viðar, en 10. október heldur kórinn hljóm- leika I Minneapolis. Lokaatriði menningarráð- stefnunnar I Winnipeg verður frumflutningur sinfónluhljóm- sveitar borgarinnar og fíl- harmonlukórsins þar á hljóm- kviðu dr. Hallgrims Helgasonar við ljóð Guttorms J. Guttorms- sonar „SANDY BAR”, sem lýs- ir þrekraunum Islenzku land- nemanna „hverra nöfn þögnin ein geymir”, eins og I ljóðinu stendur, en Guttormur spyr einnig „hvort framtak þeirra hafi verið til einskis?” Það er einmitt inntak og um- ræðuefni fyrrnefndrar ráð- stefnu, sem afkomendur land- nemanna vilja vekja athygli á, að þeir 285 íslenzku frumbyggj- ar, sem komu til Winnipeg 11. október 1875, hafa markaö óaf- máanleg spor I kanadlsku menningarlífi, sem þeir eru stoltir af og kanadlska þjóöin hefur notið góðs af. I sambandi við margnefnda ráðstefnu hefur framkvæmda- nefnd hennar tekið á leigú m/s LORD SELKIRK, sem mun sigla niður Rauðá sömu leið og frumbyggjarnir, sem námu land að Gimli við Winnipegvatn. Biskup Islands, herra Sigur- björn Einarsson og kona hans, frú Magnea Þorkelsdóttir, verða meðal farþega á þessari siglingu, en I ferðinni verða heimsóttir ýmsir þeir staðir, sem fjöldi Vestur-Islendinga byggir nú, t.d. Selkirk, Hecla Is- land og Gimli. A vegum Þjóðræknisfélag- anna á Akureyri og I Reykjavlk, er nú senn lokiö hinum fjöl- mennu vesturferðum. Siðustu hóparnir koma heim I þessari viku. Ferðirnar virðast hafa tekizt mjög vel og dásama menn mjög allar móttökur og vináttu Vestur-tslendinga. 1 október mun formaður Þjóð- ræknisfélgsins, séra Bragi Friö- riksson, afhenda slðari hluta vinargjafar Þjóðræknisfélag- anna til útgáfustjórnar Lög- bergs-Heimskringlu, en fyrri hlutann, 6000 dali, afhenti Arni Bjarnason, formaður Þjóð- ræknisfélagsins á Akureyri, I ágúst-byrjun. I október verða haldnar hátiðasamkomur á vegum þjóðræknisfélaganna I Reykjavík og Akureyri, og munu þar koma fram ýmsir þeir aðilar, sem fóru vestur um haf i sumar og slðar, og enn- fremur er von á gestum að vest- an. I haust mun dr. theol., Valdimar J. Eylands, flytja fyrirlestra við guðfræðideild Háskóla Islands um kirkjusögu Vestur-lslendinga. Þjóðræknis- félögin gera sér vonir um, að þessi fjölþættu samskipti muni hafa örvandi áhrif á nánari samskipti við landa okkar vest- an hafs og munu vinna að þvi af alefli. Kærkomin heimsókn þökkuö þökk fyrir komuna, heilsið heim, er hverfið pið austur um bláan geim; fjörðunum heilsið og fjölium frændum og vinunum öllum. þið komuð meö ísland f hjarta og hönd, hlýjunni þrungin af feðraströnd. sem vorgeislar yija þeir eidar pá ævinnar degi kveldar. í hljómpýðu málinu hjartaslög vér heyrðum fra móðurbarmi--lög, sem hita oss hjartaraetur um haustkvöld og vetrarnætur. vors ættarlands saga með sigurhreim, og svipmikil, reis f kveðjum peim, sem báruð pið hingað um hafið og himindjup árgeislum vafið. ja! þökk fyrir komuna, heilsið heim, er hverfið piö austur um bláan geim til hjartkærrar fagurrar foldar Og feðranna vígðu moldar. RICHARD BECK, RH.D. Ort f tilefni af komu Forseta jslands, dr. Kristjáns Eldjárn og frú Halldóru Eldjárn, og föruneytis þeirra, til Victoríú, RC., og flutt viö móttöku þeim til heiöurs, er herra Gordon Dowding.þingforseti, efndi til í þinghúsi fylkisins par í borg 8.ágúst 1975. Parkettið er full-lakkað og auðvelt að leggja Verð r dag kr. 2700-3600 pr. fermetra - Söluskattur ekki innifalinn Laugavegi 1(»8 — Simi 1-72-20

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.