Tíminn - 11.12.1975, Side 21

Tíminn - 11.12.1975, Side 21
JÓLABLAÐ 1975 21 Skyggðu svæðin á kortinu eru hafsbotn, sem myndazt hefur sl. 65 milljó útlinur meginlanda (landgrunnsbrúnir), helztu segulræmur, vixlgengi (ocean trenches) á hafsbotni (brotnar linur). n ár. Ennfremur eru sýndar á hryggjum, og djúpir álar ins. Þessi hreyfing eínisins i jarðmöttlinum er orsök jarð- skorpuhreyfinga og eldvirkni. En hvernig verður slík iðu- hreyfing? Það er alkunna, að saltlög I jörðu, sem eru léttari en bergið ofan .á, stiga upp i gegnum það og mynda svo nefnda saltstöpla. Sömuleiðis má e.t.v. draga lærdóm af hegð- un andrúmsloftsins, þótt um ólik efni sé að ræða. Á sólrikum degi hita neðstu loftlögin vegna endurgeislunar frá jarðaryfir- borði, unz þau verða léttari en kaldari lög ofan við, og þyngd- arójafnvægi skapast. Létta loft- ið ris i strókum gegnum kalda lagiðog myndar þrumubólstra. Jarðmöttullinn virðist haga sér á svipaðan hátt. I möttulstrókn- um ris heitt og tiltölulega létt möttulefni, og þegar þrýstingn- um léttir ofarlega i striknum, bráðnar hluti efnisins og mynd- ar blágrýtiskviku. Ofan á hinum kvika möttli flýtur jarðskurnið likt og is á vatni. Hreyfingar þess á hverj- um stað ráðast af eiginleikum þess sjálfst, sambandi hverrar skurnplötu við plöturnar um- hverfis og iðustrauminn undir. Menn hallast nú fremur að þvi, að iðugöndlar (convection cells), sem slikir, myndist ekki i möttlinum, heldur ræ si efnið um hina staðbundnu möttul- geröi kleyft að hefja könnun sjávarbotnsins, sem verið hafði að mestu óþekktur, en um 2/3 hlutar yfirborðs jarðar eru huldir sjó. Þrenns konar mælingar skiptu hér mestu: Dýptarmæl- ingar gáfu góða hugmynd um landslag á hafsbotninum, og færðu meðal annars heim samminn um hafsprungu- kerfi jarðar, miðhafshrygg- ina, sem liggja um höf öll. kennileg aflöng segulfrávik samsíða miðhafshryggjunum, þar sem skiptist á sterkt og veikt segulsvið, og ollu mönnum miklum heilabrotum til að byrja með. Þá sýndu bættar staðar- ákvarðanir á upptökum jarð- skjálfta, að þeir eiga sér nær eingöngu stað á skýrt afmörk- uðum beltum — hafsprungu- kerfinu annars vegar, og viö virk fellingafjöll hins vegar. En margar aðrar uppgötvanir og rannsóknir komu hér við sögu, sem allar til samans sköpuðu þá þekkingu og skilning, sem leiddi á rökréttan hátt til plötu- kenningarinnar. Ariö 1962 kom út ritgerðin „Saga hafsbotnanna” eftir Bandaríkjamanninn Harry Hess, þar sem settar voru fram hugmyndir þær, sem nefndar hafa verið botnskriðskenningin. Kenning þessi byggðist að hluta til á rannsóknum höfundar á Kyrrahafssvæðinu, er hann var aömiráll I bandariska sjóhern- um i styrjöldinni, og er I stuttu máli sú, aö undir miðhafs- hryggjunum stigi upp möttul- efni, jarðskorpan gliðni, og bergkvika velli þar upp. Þannig skriði hafsbotninn út frá mið- hafshryggjunum til beggja hliöa. Sönnun sina (að margra mati) fékk botnskriöskenningin ári siðar, er Bretarnir Vine og Matthews skýrðu segulfrávik þau,sem áður vorunefnd, iljósi botnskriðskenningarinnar. Þegar bergkvika storknar, segulmagnast storkan i sam- ræmi við stefnu segulsviðs jarð- ar á hverjum tima. Mælingar á segulstefnu hrauna leiddu f ljós, upp úr 1950, að segulsvið jarðar hefur tekið skautaskiptum hvað eftir annað, þ.e.a.s. snúizt við, með alllöngu millibili. Er sagt að hraun með núverandi segul- stefnu séu rétt segulmögnuð, en annars öfugt. Tekizt haföi að aldursgreina fáeinar siöustu umskautanirnar, og virðist segulskeið ná yfir u.þ.b. 1 milljón ára. Þeir Vine og Matthews skýrðu segulræmurnar samsíða mið- hafshryggjunum, þar sem skiptast á sterkt og veikt segul- svið þannig, að hafsbotninn undir sé ýmist rétt eöa öfugt segulmagnaður — segulmagn bergsins ýmist bætist við eða dragist frá jarðsegulsviðinu. Meö hliösjón af botnskriðs- kenningu Hess töldu þeir allt berg á hafsbotninum myndað við hryggina, þar sem það taki segulstefn.u segulsviðsins á þeim tima sem það storknar en berist siðan út drá hryggjunum. Þannig er segulskiptasaga sið- ustu 100 m ára skráð á hafsbotn- inn. Þessi litla grein þeirra Vine og Matthews hefur e.t.v. haft meiri áhrif en nokkur önnur rit- gerðum jarðvisindi, og það sem eftir lifði áratugsins fór mikil orka jarðvisindanna viða um heim f það að safna frekari gögnum, og að fella aðrar grein- ar jarðfræðinnar að hinu nýja kerfi. Plötukenningin, sem áður var nefnd, gefur frekari skilgrein- ingu á hreyfingum hafsbotn- anna, en skv. henni skiptist jarðskorpan i plötur, sem sifellt eru i myndun við miðhafshrygg- ina, en eyðast i jarðtrogum og við fellingafjöll. Jarðskjálfta- virkni verður eingöngu á mörk- um platnanna — þar sem þær myndast, eyðast, eða nuddast saman á hliöunum. Enn einn þáttur i plötukerfinu eru svonefndir heitir reitir, sem eru staðir á yfirborði jarðar, þar sem eldvirkni er meiri en annars staðar. Menn hugsa sér að undir reitum þessum, en tsland er einn þeirra og annar Hawaii, risi heitt möttulefni af mörg hundruð km dýpi i sivöl- um stróki. Þar heita möttul- strókar. Strókar þessir eru heit- ari en möttullinn i kring, og þvi ögn eðlisléttari, og hafa nokkuð aðra efnasamsetningu. Þeir eru m.a. auðugri að geislavirkum efnum, sem valda hitanum, og af þessum ástæðum er islenzka blágrýtið að ýmsu leyti frábrugðið blágrýti hafsbotn- anna. í augum hinna fyrstu land- reksmanna, og raunar allar göt- ur fram til 1968 eða 1970, virtist Island falla illa að þessu kerfi. Jaröfræði landsins virtist of flókin fyrir svo einfalda mynd. En nýjar rannsóknir og túlkanir hafa gerbreytt þessu sjónar- miöi, og jarðfræði Islands telst nú snar þáttur i kerfi miðhafs- hryggja, platna, heitra reita og möttulstróka, og ýmsir þættir hennar, sem áður virtust hver öðrum óskyldir, falla náttúr- lega hver á sinn stað i hinni nýju mynd. Meö plötukenningunni hefur endurtekiö sig saga ann- arra visindagreina. Mökkur staðreynda hefur verið felldur I heilsteypt kerfi, likt og fyrrum gerðist i liffræðinni með þróunarkenningu Darwins, i eðlisfræðinni með afstæðiskenn- ingu Einsteins, og i efnafræð- inni með lotukerfi Mendelejefs. Aflvaki jarðskorpuhreyfinga er sá varmi, sem myndast i iðr- um jarðar við klofnun geisla- virkra efna. Varminn streymir til yfirborðsins. Þegar jafn- mikill hiti tapast við yfirborðið og myndasthið innra, rikir jafn- vægi. Berg er lélegur Hreyfingum á yfirborði kúlu má lýsa sem snúningi um punkt (pól). Plöturnar tvær á myndinni mætast i miðhafshrygg (tvö- föld lina). Vixlgengin.sem tengja hryggjarbrotin, mynda smá- bauga sammiðja um pólinn A. Vixlgengi eru þvi samsiða skrið- stefnu plötunnar, en breidd segulræma gefur skriðhraðann. varmaleiðari, en hitamyndun i jörðinni meiri en svo að geislun og leiöni nægi til að losna við varmann. Þess vegna hefur hitastig jarðmöttulsins náð þvi marki aö iðustraumar taki viö og beri varmann til yfirborðs- 180' stróka og berist siðan til allra átta undir jarðskurninu. Aður töldu menn miðhafshryggi myndast þar sem möttulefni ris á mótum tveggja iðugöndla, skurnplöturnar berist siðan út frá hryggjunum hver á sinum göndli, og eyðist loks i jarðtog- um á niðurstreymishlið göndulsins. Gegn þessu mælir sú mjög svo mikilvæga stað- reynd, að segulræmurnar á hafsbotninum ' eru ævinlega samhverfar um hryggina, sem sannar, að þeir hreyfast sjálfir. Þeir berast fram og aftur eftir þvi, hvapa mótstöðu hver plata sætir. Þessi staðreynd er mikil- væg i jarðfræði íslands. Hún sýnir lika, að hryggjakerfi jarð- arinnar er ekki spegilmynd iðu- göndla i möttlinum. Þvert á móti knýr uppstreymi efnis i möttulstrókum allt hryggja- og platnakerfið, sem hreyfist yfir jarðkúluna eftir leiðum hinnar minnstu mótstöðu. Island er einn af 20-30 heitum reitum á yfirborði jarðar. Þetta sést m.a. af þvi, að það er held- ur óvenjulegur hluti af Mið-Atlantshafshryggnum enda mátti raunar til skamms tima telja það jarðfræðilega þver- sögn, að Island er yfirleitt til. ísland er stafli af tiltölulega þungu bergi, sem rís hátt yfir sjávarbotninn umhverfis. Samt er þessi þunga dyngja i flotjafn- vægi viö umhverfið, en til þess aö svo mætti verða, varð að gera ráð fyrir eðlisléttu lagi undir landinu. Ekki voru menn á eitt sáttir um náttúru þess lags, en liklegast var talið, að islenzki basalthlaðinn flyti á fleka af fornu meginlands- skurni,sem væri munléttara en blágrýtið. Annar kostur sliks lags undir landinu var sá, að ljósgrýti, öðru nafni liparit, sem ér miklu algengara hér en á öðr- um blágrýtissvæðum, mátti skýra með uppbræðslu sliks lags. En nú sýndu rannsóknir á Sr. og Pb samsætum i ýmsum islenzkum bergtegundum að ljósgrýtið er af sama toga spunnið og blágrýtið, en ekki frá meginlandsskurni undir land- inu. Slikt meginlandsskurn er nú óþarft orðið þvi hinn tiltölu- lega létti möttulstrókur undir landinu ber það uppi. A Islandi mætast tveir hrygg- ir, Mið-Atlantshafshryggurinn og Grænlands-Færeyjanrygg- urinn. Eðli þeirra er þó mjög ólikt. Mið-Atlantshafshryggur- inn er rekhryggur með eld- og jarðskjálftavirkni, en Græn- lands-Færeyjahryggurinn er dauður og skjálftalaus hryggur. Hann tengir hin tertieru blágrýtissvæði á A-Grænlandi annars vegar og Færeyjum og Bretlandi hins vegar. Þegar islenzki möttulstrókur- inn varð virkur fyrir 60-70 milljónum ára.lágu þessi svæði saman sem hluti af einu megin- landi. Hin nýja eldvirkni hlóð fyrst upp blágrýtisstafla á meginlandsskurnið, sem brátt klofnaði I tvennt, og Grænland rak til vesturs en Evrópu til austurs. Grænlands-Færeyja- 0" Jaröskjálftabelti jarðar marka samskeyti skurnflekanna. Grunnir skjálftar eru merktir með lieilum linum, opnir hringir eru meöaldjúpir, en fylltir hringir djúpir skjálftar. Rekbryggir eru sýndir, svo og hreyfingar hinna ýmsu platna. Hringir merktir 1-6 eru pólar eftirtalinna plötukerfa: 1) Ameríka — Afrika, 2) Ameríka — Kyrrahaf, 3) Suðurskautsland — Kyrrahaf, 4) Amerika — Kvrasia, 5) Afrika — Indland, 6) Suðurskautsland — Afrlka.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.