Tíminn - 11.12.1975, Side 61

Tíminn - 11.12.1975, Side 61
JÓLABLAÐ 1975 61 Sjónvarpsmenn frá Ileykjavik og Vestur-lslendingar: Efri röö: örn Harðarson myndatökumaður, Guðbjartur Gunnarsson háskólakennari, þá sonur hans, siðan Marinó Ólafsson upptökumaður, ólafur Kagnarsson, fréttamaður, Emil Björnsson fréttastjóri, Karólina Gunnarsson ritstjóri i Winnipeg, við hlið hennar kona Guðbjarts, og yzt Alfheiður Guðmundsdóttir. VESTURFÖR Framhald af bls. 56 föðurætt þau Kristján Guðmunds- son frá Ytri-Tungu á Tjörnesi og Helga, kona hans, Þórðardóttur. og fluttust vestur um haf árið 1882. Föðurbróður dr. Chris munu margir, einnig hér heima. kann- ast við af orðspori: Séra Albert Kristjánsson, únitaraprest i Manitóba og vestur við Kyrrahaf. málsvara jafnaðarstefnu i vest- ur-islenzkum blöðum snemma á ævi og þingmann um skeið. Sýning var þessa daga á a 11- mörgum málverkum Kmils Walt- ers.sem kunnastur hefur orðið is- lenzkra málara vestan hafs, að minnsta kosti af hinni eldri kyn- slóð. Mörg þessara verka voru landslagsmyndir héðan að heim- an. Mig minnir, að málarinn ferðaðist um Island árið 1930. Sjálfur var hann þarna kominn, aldurhniginn maður, sem virtist heldur frábitinn þvi, að veður væri gert með sig. Einn þeirra, sem nokkuð sá um ferðir okkar, var Norman Berg- mann, en hann er sonur Hjálmars lögmanns Bergmanns, sem frægur varð af þvi fyrir mörgum áratugum, er hann fékk borgið lífi vestur-islenzks ógæfumanns, sem dæmdur var eftir sterkum likum til dauða, sakaður um morö, sem hann játaði þó aldrei á sig. Auðvitað er ekki gerlegt að telja upp það fólk, sem við hittum og áttum skipti við. Einn er þó enn sá maður, sem ég get ekki látiðhjá liða að nefna, þótt ekki sé hann islenzkur. Það er hinn aldurhnigni menningarfrömuður, dr. Watson Kirkconnell, sem nú er kominn á niræðisaldur. Hann var marga tugi ára prófessor i háskólum i Kanada, einstakur tungumálamaður og þýddi á ensku sæg Ijóða — þar á meðal mörg islenzk. Mikið safn is- lenzkra ljóða, sem hann þýddi af fslenzku, kom út alþingishátiðar- árið 1930 og þá orti hann einnig sjálfur alþekktan Ijóðaflokk, Kanada til tslands. En þau verk. sem-hann hefur innt af höndum, varðandi lsland og islenzka menningu eru fleiri en svo, að þau verði hér talin. Dr. Watson Kirkconnell er maður grannur vexli, fágaður i framgöngu og svo fjarri þvi að berast á, að yfirlætislausari mann getur varla. VIII Hér er þá að lokum komið að þeim aðilanum, sem stóð fyrir þessari ferð til tslendingabyggða i Vesturheimi: Karlakór Reykja- vikur, harla kærkomnum gesti á þeim slóðum. Hann hélt sérstaka tónleika i Winnipeg, Brandon, Lundar og Minneapolis, en söng auk þess við mörg önnur ta'kifæri, svo á elliheimilunum á Gimli og i Selkirk, á samkomum i Mikley og á Gimli, við islenzka messu i Winnipeg og fleiri hátiðleg tæki- færi þar. Eins og kunnugt er var Ragnar Ingólfsson, formaður kór- stjórnarinnar, fararstjóri kórs- ins, stjórnandi Páll P. Pálsson, einsöngvarar Sigurður Björnsson óperusöngvari, Friðbjörn G. Jónsson og Hreiðar Pálmason, en undirleikari Anna Áslaug Ragnarsdóttir, dóttir Ragnars H. Ragnars á tsafirði. Það e'r ýkjulaust, að þetta var sigurför hjá kórnum, sem hvar- vetna var ágætlega tekið, þar sem hann kom fram. Oft og viða mátti sjá, að hinu rosknara fólki, sem eðlilega var i miklum meiri hluta á þessum tónleikum, vökn- aði um augu, þegar sungnir voru ætt ja rðarsöngvar. Þar voru snortnir viðkvæmir strengir. En það ekki aðeins, að hér kom is- lenzkur kór um langa vegu til þess að syngja þessu fólki is- lenzka söngva: Menn, sem ekki voru tengdir tslandi neinum blóð- böndum, luku einnig lofsorði á kórinn i heild og stjórnanda hans, sem og einsöngvara og undirleik- ara. Og vist er það, að sumir komu óravegu til þess að hlusta á kórinn syngja. Bændur á Nýja-ts- landi tóku sig upp og óku langar leiðir meðfólk sitt, hvað sem leið illum uppskeruhorfum, og fólk. sem átti heima i fjarlægum borg- um og þorpum, gerði slikt hið sama. Svo að ekki sé á það minnzt, að Richard Beck kom alla leið vestan frá Kyrrahafi — að visu ekki til þess eins að hlusta á kórinn, heldur til meiri þátttöku i hátiðahöldunum. Hér voru ekki heldur neinir við- vaningar á ferð, þar sem Páll P. og söngmenn hans voru, heldur kór, sem á langa sögu og miklar erfðir. ef svo má segja: Mér skilst, að þetta hafi verið tiunda söngför Karlakórs Revkjavikur til annarra landa á eitthvað fjöru- tiu árum. En i hálfa öld mun kór- inn hafa starfað. Það var ekki heldur litill fengur að fá Sigurð Björnsson óperu- söngvara til þessarar farar með kórnum. Til þess fékk hann knappt leyfi frá sönghöllum Evrópu, og var kominn i slika timaþröng, erheim var haldið. að hann hafði aðeins skamma við- dvöl á Keflavikurflugvélli og tók sér þaðan fari með fyrstu flugvél til meginlandsins, þvi að sá timi nálgaðist óðum, að hann ætti að standa á sviði i Mið-Evrópu i frægu hlutverki i' frægum söng- leik Tónleika sina i Minneapolis hélt kórinn i háskólakirkju þar iborg. og var það eina tækifærið. sem við fengum til þess að hitta fólk af islenzkum ættum þar syðra. Meðal annarra voru þar tveir is- lenzkir prestar, séra Sveinbjörn Ólafsson, sem á náið skvldfólk hér heima, og séra Emil Guð- mundsson, sem stundaði á sinum tima guðfræðinám í háskólanum hér. Loks er að geta um ólaf Kár- dal, Húnvetning. sem haft hefur langa útivist, en biður þess. að sól hækki á lofti með nýju vori — vor- inu 1976. Þá hyggjast þau hjón. hann og Helga Stefánsdóttir. að flytjast heim. IX Það, sem hér hefur verið sagt um Vesturheimsförina, er aðeins lauslegt hvarfl — nánast aðeins stiklað á nokkrum atriðum. Við það verður að sitja að sinni. En þeir.sem þekkja til þeirra manna og málefna. er á hefur verið drep- ið, kunna að geta unað við það kvöldstund i skammdeginu að renna augum yfir þetta rabb. Þar með skal kvatt og þeim vestra færð þökk fvrir þá daga. er viö áttum meðal þeirra, sem og Karlakór Reykjavikur, er fyrir förinni gekkst og gaf okkur kost á að fylgjast með. .111 mmmSSSSSSfmmm IL. f f V' ' -ý*Alls konar skrúfboltar, y -U> JJ> -j' V rær og skrúfur úr járni, stáli og kopar HARRISON rennibekkir Black & Decker Rafknúin verkfæri Logsuðu- og rafsuðuvír Oster snittvélar Beygjuvélar og klippur fyrir steypustyrktarjárn Ventlar og hanar fyrir vatn, gufu, olíu o.fl. Þrýstimælar Hitamælar Stálvír Triliuhjól Q m G. J. Fossberg, vélaverzlun hf. Skulagötu 63, Reykjavik Ailskonar verkfæri og mælitæki til járn- og vélsmíði Walkers ,,Lion'‘ vélaþéttingar Vélareimar V-Reimskifur Flutningsbönd Gummíslöi'gur fyrir vain, gufu og loft. Eirpípur Eir og kopar i plotum og stongum. Legubronze Nylon leguefni Hvítmálmur Loðlin Silfurslagloð Ryðfrítt stál

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.