Fréttablaðið - 09.11.2005, Side 80
FRÉTTIR AF FÓLKI
Aðalleikarar nýjustu Harry Potter-myndarinnar mættu í fyrrakvöld á
heimsfrumsýningu hennar í London.
Þúsundir aðdáenda hópuðust saman
fyrir utan kvikmyndahúsið. „Ef þetta
kemur þér ekki í stuð veit ég ekki hvað
gerir það,“ sagði Daniel Radcliffe, sem
leikur Harry Potter. Myndin, sem nefnist
Harry Potter og eldbik-
arinn, kemur
hingað til
lands innan
skamms.
Leikk-onan
Cameron
Diaz
vonast
eftir því
að eiga
langt og
farsælt
hjónaband, rétt
eins og foreldrar
hennar. Diaz
hefur undanfar-
in tvö ár verið
í ástarsam-
bandi með
popparanum
Justin Tim-
berlake. „Þau
hafa verið
gift í 34
ár.
Þau
veita
mér svo mikinn
innblástur. Mig
hefur alltaf
dreymt um
svipaða hluti
fyrir sjálfa
mig,“ sagði
Diaz.
Popp-arinn
Sir Elton
John er að
undirbúa
brúðkaup
um næstu
jól ásamt unnusta sínum David Furnish.
Brúðkaupið mun fara fram 21. desem-
ber og verður það að öllum líkindum
haldið á góðgerðarsamkomu fyrir
alnæmissamtök Eltons í New York.
Sharon Osbourne, eiginkona rokk-arans Ozzy, segir að Madonna líti
út eins og gömul vændiskona. Sharon
skilur ekki af hverju Madonna breytir
sífellt um ímynd og af hverju hún iðkar
Kabbalah-trúarbrögðin. „Hver ertu eig-
inlega? Á þessum aldri áttu að vita hver
þú ert, hvers konar trúarbrögð þú iðkar
og fyrir hvað þú stendur,“ sagði Sharon
og sparaði ekki stóru orðin.
Næstkomandi laugardagskvöld
verður haldið ball á vegum Sam-
takanna 78 á Kaffi Reykavík. Þetta
verður síðasta ballið sem samtökin
halda fyrir árlegt áramótaball sitt.
Dj Skjöldur og Dj Bling munu
þeyta skífum, auk þess sem Idol-
stjarnan Ylfa Lind verður sérstak-
ur gestur. Ballið byrjar klukkan
23.00 og stendur yfir langt fram á
nótt.
Aðgangseyrir er 1000 krónur
fyrir almennning en meðlimir Sam-
takanna 78 greiða 800 krónur.
Ylfa Lind sérstakur gestur
YLFA LIND Idol-stjarnan fyrrverandi verður
sérstakur gestur á ballinu á laugardaginn.
1.090 kr.
Allar pizzur á
Hvítlauksolía fylgir!
Frítt SMS þegar pizzan fer í ofninn
7.–13. nóv.
58•12345
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
4
7
6
2