Fréttablaðið - 15.11.2005, Síða 2
2 15. nóvember 2005 ÞRIÐJUDAGUR
SPURNING DAGSINS
„Hjálmar, er þetta ekki of lítið
til að hafa áhyggjur af?
„Framsóknarmenn eru bjartsýnir og
trúa að fylgið muni rísa á ný eins og
alltaf. Menn eru kannski hógværir í
svörum í skoðanakönnunum, eins og
framsóknarmanna er von og vísa.“
Framsóknarmenn hafa áhyggjur af litlu fylgi í
skoðanakönnunum og hefur Hjálmar Árnason
kynnt aðgerðaáætlun flokksins til að gera
hann sýnilegri.
BAUGSMÁLVerjendur sakborninga í
Baugsmálinu hafa skriflega krafið
embætti Ríkislögreglustjóra skýr-
inga á því hvers vegna Jón Gerald
Sullenberger sé ekki ákærður
fyrir sömu brot og þrír sakborn-
inga í Baugsmálinu eru ákærðir
fyrir.
Bréf þessa efnis var lagt fram
við þinghald í Héraðsdómi Reyka-
víkur í gær þar sem taka átti fyrir
þær átta ákærur af fjörutíu sem
ekki var vísað frá dómi.
Fjórar af ákærunum átta varða
innflutning Jóns Ásgeirs, Kristín-
ar og Jóhannesar Jónssonar, föður
þeirra, á bifreiðum frá Bandaríkj-
unum á tilteknu tímabili. Öll neita
þau sök í málinu.
„Við teljum að í gögnum máls-
ins liggi fyrir játningar Jóns Ger-
alds um refsiverðan verknað sem
hann hefur ekki verið ákærður
fyrir en ákærum af sama tilefni
verið beint að aðilum sem neita
sök,“ sagði Gestur Jónsson, verj-
andi Jóns Ásgeirs, þegar hann
gekk úr dómssalnum.
Verjendur spurðu Ríkislög-
reglustjóra þessarar sömu spurn-
ingar, meðal annars í bréfi hinn
30. ágúst síðastliðinn. Í svari
saksóknara tveimur vikum síðar
segir að sú niðurstaða að ákæra
ekki Jón Gerald sé grundvölluð
á sjónarmiðum laga um að höfða
ekki mál nema það sem komið hafi
fram sé nægilegt eða sennilegt til
sakfellis yfir viðkomandi.
Fyrir réttri viku sendu verj-
endur Haraldi Johannessen rík-
islögreglustjóra bréf um þetta
efni. Þar segir að í sex ákærum
af fjörutíu lýsi Jón Gerald refsi-
verðu athæfi sínu. Hann sé auk
þess eini aðilinn sem játað hafi á
sig brot. Þrátt fyrir það sé hann
ekki ákærður líkt og hinir sem
neiti sök í sama máli.
Verjendur telja að þetta stand-
ist ekki í ljósi þess að ákærur hafi
verið gefnar út á hendur öðrum
einstaklingum, einkum á grund-
velli framburðar Jóns Geralds
vegna sömu háttsemi og hann hafi
gengist við. johannh@frettabladid.is
Sullenberger játar
en er ekki ákærður
Verjendur í Baugsmálinu vilja að Ríkislögreglustjóri svari því hvers vegna Jón
Gerald Sullenberger hafi ekki verið ákærður fyrir brot sem hann hafi gengist
við. Embættið taldi sama brot duga til ákæru gegn þremur sakborninganna.
Í HÉRAÐSDÓMI REYKJAVÍKUR Verjendur
segja suma ákærða en aðra ekki fyrir sama
brot.
JÓN GERALD SULLENBERGER
Jón Gerald játar brot við skýrslutöku en
ríkislögreglustjóri gefur til kynna að þau
dugi ekki til sakfellingar.
SJÁVARÚTVEGUR Stærsta síld sem
veiðst hefur við Íslandsstrendur
í hálfa öld fannst í veiðarfærum
Hákonar EA 148 á dögunum þegar
skipið var að veiðum í Breiðamerk-
urdýpi. Eftir á að rannsaka síldina
en Hreiðar Valtýsson, fiskifræðing-
ur hjá Hafrannsóknastofnuninni,
telur að um síld af norsk-íslenskum
stofni sé að ræða.
„Þetta er næststærsta síld sem
vitað er til að veiðst hafi við Ísland
en hún var 730 grömm að þyngd.
Stærsta síldin sem veiðst hefur
við landið reyndist 760 grömm að
þyngd og veiddist á Skjálfanda árið
1955,“ segir Hreiðar. - kk
Sjómenn á Hákoni EA:
Fengu tröll-
vaxna síld
RISASÍLD Talið er að síldin sé af norsk-
íslenskum stofni en hún var 730 grömm.
Djúpstæður ágreiningur ríkir milli verj-
enda og embættis Ríkislögreglustjóra
um stöðu Sigurðar T. Magnússonar,
sem dómsmálaráðherra skipaði sér-
stakan saksóknara í Baugsmálinu seint
í október.
Þegar taka átti fyrir þær átta ákærur
sem enn eru til efnislegrar meðferðar
í Héraðsdómi Reykjavíkur sagði Pétur
Guðgeirsson dómari að Bogi Nilsson
hefði lýst því yfir síðastliðinn föstudag
að málið væri honum óviðkomandi.
Dómarinn lagði ríka áherslu á að
það yrði upplýst í hvers umboði Jón
H.B. Snorrason, saksóknari hjá emb-
ætti Ríkislögreglustjóra, væri.
Jón kvaðst flytja málið á vegum Rík-
islögreglustjóra, en bætti við síðar að
ef á reyndi heyrði málið undir Sigurð T.
Magnússon.
Bogi Nilsson ríkissaksóknari segir
að hvorki ríkislögreglustjóri né lögreglu-
stjórar vinni í umboði ríkissaksóknara.
En ef slík staða kæmi upp í þessu máli
heyrði það undir settan saksóknara.
Verjendur hafa krafist þess að hér-
aðsdómur dæmi um það hvort dóms-
málaráðherra hafi verið hæfur til þess
að setja Sigurð T. Magnússon saksókn-
ara yfir þeim átta ákærum sem enn eru
til efnismeðferðar.
Ágreiningurinn verður tekinn fyrir í
Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag.
- jh
Verjendur vilja úrskurð:
Telja ráðherra
vanhæfan
Í HÉRAÐSDÓMI REYKJAVÍKUR
Verjendur ákærðra í Baugsmálinu hafa
krafist dómskúrskurðar þess efnis að
sakborningar fái þegar í stað aðgang hjá
Ríkislögreglustjóra að tölvugögnum sem
fengin eru frá Jóni Gerald Sullenberger.
Gögnin varða samskipti sakborninga
og sakborninga og vitna. „Við fengum
skriflegt svar Ríkislögreglustjóra í byrjun
september þar sem aðgangur var sam-
þykktur en af einhverjum óútskýrðum
ástæðum hefur ekki enn fengist þessi
aðgangur þótt leitað hafi verið eftir því
aftur og aftur,“ segir Gestur Jónsson, verj-
andi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Í bréfi verjenda til dómara segir að sú
ákvörðun Ríkislögreglustjóra að heimila
ekki í reynd aðgang að gögnunum sé í
senn ólögmæt og móðgandi gagnvart
sóknaraðila auk þess sem háttsemin
valdi því að sakborningar fái ekki notið
lögbundinna úrræða til þess að verjast
útgefinni ákæru.
Í bréfi, sem undirritað er af Jóni H.B.
Snorrasyni saksóknara 7. september
síðastliðinn, er heitið ótakmörkuðum
aðgangi að umræddum gögnum en í
Héraðsdómi Reykjavíkur lagði hann í
gær fram beiðni um mat á þessum sömu
gögnum. - jh
Sakborningar Í Baugsmáli hafa ekki fengið aðgang að umbeðnum tölvugögnum:
Krefjast dómsúrskurðar
VERJANDI JÓNS ÁSGEIRS JÓHANNESSONAR Gestur Jónsson segir að vegna einhverra óút-
skýrðra ástæðna hafi hann ekki fengið umbeðin gögn.
NOREGUR Aurskriða féll í gær á
hús skammt utan Björgvinjar þar
sem sjö manns voru að störfum.
Einn þeirra lést í skriðunni.
Óvenjumikil úrkoma hefur
verið í vestanverðum Noregi
undanfarna daga og hafa sterk-
ir vindar fylgt votviðrinu. Í
gærmorgun féll aurskriða á hús
sem verið var að gera við, rétt
fyrir utan Björgvin. Sjö manns
voru þar að störfum, þrír kom-
ust úr rústunum af sjálfsdáðum
og fundu björgunarsveitarmenn
hina þrjá á lífi, grafna í leðjunni.
Leitað var að þeim sjöunda í
allan gærdag með aðstoð hunda
og hitaskynjunarbúnaðar en allt
kom fyrir ekki því síðla dags fan-
nst hann örendur í brakinu.
Að sögn dagblaðsins Aften-
posten hvöttu veðurfræðingar
Björgvinjarbúa til að skilja bíla
sína eftir heima í gær vegna
ótta um að götur lokuðust sökum
vatnselgs. Miklar tafir urðu auk
þess á lestarsamgöngum, til
dæmist sat lest á leið frá Ósló til
Björgvinjar föst á teinunum í drj-
úga stund.
Hús voru rýmd í bænum Voss
vegna hræðslu um skriðuföll og
á bóndabæ skammt frá féll aur-
skriða á hlöðu sem gjöreyðilagð-
ist.
- shg
ÓFÖGUR SJÓN Sjö manns voru við smíðar í húsinu þegar skriðan féll á það. Sex sluppu
með skrámur en sá sjöundi týndi lífinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Skriðuföll í vestanverðum Noregi vegna óvenjumikillar úrkomu og hvassviðris:
Einn lést eftir að aurskriða féll á hús
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������