Fréttablaðið - 15.11.2005, Page 57
28. janúar 2005 FÖSTUDAGUR
Þriðja plata Írafárs kemur út í dag.
Fyrstu tvær plöturnar hafa selst í yfir
30 þúsund eintökum. Upptökum
stýrðu Vignir Snær Vigfússon og
Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson.
Tryggðu þér eintak í næstu verslun BT.
Aðeins verður áritað á plötuna!
CD og DVD
verð kr. 2199
1.999
CD verð
Hljómar betur!
Íslenska listakonan Gunnella var
heiðruð í gær af bandaríska dag-
blaðinu New York Times, sem
valdi hana eina af tíu bestu mynd-
skreytum ársins 2005. Gunnella er
fyrst allra Íslendinga sem hlýtur
þessa viðurkenningu, en hana
hlýtur hún fyrir bókina The Probl-
em with Chickens, eða Hænur eru
hermikrákur, eins og hún heitir
í íslenskri þýðingu Sigurðar A.
Magnússonar.
Bókin var valin úr þúsundum
bókatitla sem koma út í Banda-
ríkjunum ár hvert. Höfundur
bóka hennar, Bruce McMillan,
er bandarískur en hefur dvalið
langdvölum á Íslandi og meðal
annars skrifað bækur um íslensk
börn. Bókin kom út samtímist í
Bandaríkjunum og á Íslandi en
bókaforlagið Salka gefur hana út
hér á landi.
Gunnella er á samsvarandi
lista hjá Publisher Weekly og
hjá Scholl Library Journal en í
umsögn hins fyrrnefnda segir að
naumhyggjulegur texti McMill-
ans fari vel við hlægileg bókstaf-
leg málverk Gunnellu og útkoman
sé fyndin á óvæntan hátt.
Gunnella fór ytra til að taka
við viðurkenningunni en er vænt-
anleg aftur til Íslands síðar í vik-
unni. - bs
Heiðruð af New York Times
GUNNELLA Bók hennar og McMillans var
valin úr þúsundum titla sem út koma ár
hvert í Bandaríkjunum.