Fréttablaðið - 18.11.2005, Síða 34
[ ]
Sigríður Gunnlaugsdóttir hefur
bakað enska jólaköku á þess-
um árstíma í tuttugu og sjö ár.
„Ég hef bakað enska jólaköku á
hverju einasta ári síðan 1978,“ segir
Sigríður Gunnlaugsdóttir kennari
sem féllst á að deila reynslu sinni
með lesendum Fréttablaðsins.
„Þetta er siður sem við tókum heim
með okkur frá Bretlandi þar sem
við bjuggum frá 1977 og til 1980 en
þar féll ég fyrir ensku jólakökunni.“
Hún segir að fjölskyldunni finnist
þetta ómissandi þáttur á jólunum,
bæði kakan en ekki síst allt stússið
í kringum hana. „Ég held að mínum
börnum fyndust ekki jól nema væri
búið að skreyta ensku jólakökuna
og setja á sinn stað. Þeim finnst hún
mjög góð og betri eftir því sem þau
verða eldri.“
Sigríður bakar kökuna alltaf um
mánaðamótin október- nóvember.
„Ég geymi hana alltaf í sömu dós-
inni enda eru miklar serimóníur í
kringum þetta. Ég vökva hana á tíu
til fjórtán daga fresti og þá ágæt-
lega en það er bara smekksatriði.“
Hún á þau ráð helst handa þeim
sem vilja leggja út í jólakökubakst-
ur að enskum sið að taka málunum
með ró. „Besta ráðið er að vera
afslappaður gagnvart kökunni,
fara eftir uppskriftinni og vera
þolinmóður. Geyma hana í járndós
uppi á skáp nema þegar er verið
að vökva og njóta þess þá að þefa
af henni.“ Sigríður vökvar kökuna
með brandí en segir áfengisteg-
undina vera smekksatriði, eins og
fram kemur í uppskriftinni.
Og enska jólakakan er fastur
liður hjá fleirum en heimilisfólk-
inu. „Fyrstu árin var hún ekkert
sérstaklega vinsæl nema hjá bónd-
anum en svo hafa ættingjarnir
lært að meta hana og pabba mínum
finnst ómissandi að koma hingað
í heimsókn á kvöldin milli jóla og
nýárs og fá bita af ensku jólakök-
unni.“ Sigríður féllst á að gefa upp-
skrift að kökunni sem hún bakar
og þá er bara að leggja form undir
deig um helgina svo að kakan nái
að lagerast vel fyrir jól.
Gulrótar- og
linsubaunabuff
Ítalskt
linsubaunabuff
Hvítlauks- og
hvítbaunabuff
- Matur er
mannsins
megin
Heilsubuff
Réttir kvöldsins
Fordrykkur í boði hússins
M/ þriggja rétta seðlinum Canasta Cream
Forréttur verð f/ einrétta verð f/ þriggja
rétta máltíð
Humarsúpa kr. 850
m/ rjómatoppi og hvítlauksbrauði
Aðalréttir
Smjörsteiktur skötuselur kr. 2.950 kr. 3.890
m/ hvítvínssósu , grænmeti
og bakaðri kartöflu
Lambafillet kr. 2.980 kr. 3.890
m/ sherrybættri sveppasósu, grænmeti
og bakaðri kartöflu
Nautalundir kr. 3.150 kr. 3.990
m/chateaubriandsósu, grænmeti
og bakaðri kartöflu
Eftirréttur
Súkkulaðifrauð kr. 690
Borðapantanir í síma 562 1988
Veitingahúsið Madonna / Rauðarárstíg 27 / www.madonna.is
Tilboðin gilda öll kvöld
Fá›u hól
fyrir framan sjónvarpið
Slátur er hollt og gott og algjörlega málið á haustin. Þeir sem ekki
taka slátur geta keypt það tilbúið í flestum matvörubúðum.
Svona lítur kakan út hálfum mánuði eftir
bakstur en löngu fyrir skreytingu.
Kakan er allaf geymd í sömu dósinni en miklu
skiptir að hún sé loftþétt og auðvitað jólaleg.
Enska jólaköku ber að vökva vel og vand-
lega á tíu til fjórtán daga fresti.
Ómissandi
á jólunum
Svona lítur kakan út þegar hún er tilbúin. Þessi var bökuð árið 1999.
Bear Crossing er heiti á vínlínu frá ástralska
vínfyrirtækinu Angove´s. Flöskurnar bera merki
Australian Koala Foundation, samtaka til verndar
kólabjörnum en þessi smávöxnu og vinalegu poka-
dýr eru í mikilli útrýmingarhættu. Hluti andvirðis
af hverri seldri flösku rennur til sjóðsins og hefur
þetta framtak vakið mikla athygli náttúruunnenda.
Miðinn á flöskunni líkist varnaðarskiltunum sem
eru sett upp við þjóðvegi sem kólabirnir eru gjarn-
ir á að þramma yfir.
Angove´s Bear Crossing Cabernet/Merlot vínið
hefur vakið athygli og þykir þessi þrúgnasamsetn-
ing mjög fersk. Má drekka með flestum kjötrétt-
um, pizzu og mismunandi ostum, einnig mjög gott
eitt og sér. Vínið verður á sérstöku tilboðsverði
fram að jólum.
Lækkað verð í Vínbúðum 990 kr.
BEAR CROSSING:
Kóalabjörninn
á kynningarverði
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10
Ensk jólakaka
(bökuð í nóvember)
FRÁ SIGRÍÐI GUNNLAUGSDÓTTUR
200 g smjör
200 g púðursykur
1 msk. síróp
Rifinn börkur af 1 appelsínu eða sítrónu
4 stk. egg
2 msk. brandí, viskí, romm, púrtvín eða
sérrí eftir smekk
Hrærið saman smjör og púðursykur
þar til létt og ljóst. Bætið þá sírópi
og appelsínuberki út í. Eggin eru sett
út í, eitt og eitt í senn, og hrært vel
á milli. Síðan er áfenginu bætt í.
250 g hveiti
1/4 tsk. múskat (helst ferskt rifið af
hnetu)
1/4 tsk. kanill
1/4 tsk. brúnkökukrydd
1/4 tsk. negull
1/4 tsk. salt
Blandið öllum þurrefnum saman og
setjið smátt og smátt út í eggjahrær-
una.
600 g þurrkaðir ávextir að eigin vali (epli,
rúsínur, kúrenur, sultönur, kirsuber, döðlur,
aprikósur)
50 g möndlur, hakkaðar
Ávextir og möndlur eru settir síðast
út í. (Margir velta ávöxtunum upp úr
dálitlu af þurrefnunum áður en þeir
eru settir út í blönduna)
Setjið í springform (u.þ.b. 22 cm í
þvermál) sem hefur verið fóðrað
með bökunarpappír og bakið neðst
í ofni við 150°C í eina klukkustund
og síðan í tvær klukkustundir og
fimmtán mínútur við 140°C.
Kælið kökuna, hellið áfengi yfir eftir
smekk, pakkið inn í álpappír og
geymið í loftþéttri málmdós. Vökvið
á 10-14 daga fresti í um einn mánuð.
Að lokum er marsipan flatt út og
sett utan um kökuna. Ég held mig
við enska siðinn og set „icing“ utan
á marsipanið og skreyti svo með
jólaskrauti sem mér var gefið á fyrstu
kökuna sem ég bakaði 1978.
2 eggjahvítur
500 g flórsykur
1/2 msk. sítrónusafi
1/2 msk. glyserol (fæst í apótekum)
Öllu hrært saman.
20% afsláttur
af vínþrúgu mánaðarins