Fréttablaðið - 18.11.2005, Page 40
Á dagskrá Daga myrkurs var til
dæmis dimmt diskótek fyrir krakka í
sundhöll Seyðisfjarðar í gærkvöld,
ljós- og skuggaleikir á leikskólum í
Fellabæ, á Stöðvarfirði og Fáskrúðs-
firði í dag, margvíslegar listsýningar
víða um Austurland, og jafnframt
verður Seyðisfjörður almyrkvaður í
kvöld og getur fólk farið í aftur-
göngu um kaupstaðinn. Í Kaupvangi
á Vopnafirði verða magnaðar
draugasögur lesnar í kvöld. Róman-
tísk stemning verður á laugardags-
kvöld víðs vegar um Austurland, til
dæmis verður ástareldur kveiktur á
Mjóeyri við Eskifjörð og Langabúð á
Djúpavogi býður upp á seyðandi
myrkrastund. Á sunnudag verður svo
sýning og málþing haldið um
Brynjólf biskup Sveinsson og 17.
öldina á Skriðuklaustri, og á Minja-
safninu Burstafelli við Vopnafjörð
verður dagskráin Gamli bærinn í
rökkurró haldin, auk margs fleira.
Frekari upplýsingar um dag-
skrána má finna á vefslóðinni
http://isl.east.is. Í tengslum við
Daga myrkurs á Austurlandi verður
handverks- og listiðnaðarsýning
opnuð á Hótel Héraði síðdegis í dag.
Handverk og hönnun, Menningar-
ráð Austurlands, Markaðsstofa
Austurlands og Þróunarstofa Aust-
urlands standa að sýningunni, sem
ber nafnið Auður Austurlands.
Sýndir verða munir frá 24 hand-
verks- og listamönnum, og eru
munirnir unnir úr hráefni sem teng-
ist Austurlandi, svo sem hreindýra-
skinni, hreindýrshorni og beini, lerki
og líparíti. Áætlað er að sýningin
verði sett upp á fleiri stöðum á
landinu í ársbyrjun 2006. Aðgang-
ur er ókeypis.
Nálhús úr hreindýrshorni eftir Ritu Freyju Bach.
2 ■■■ { Austurland } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Upplýsingaþjónusta
Vegagerðarinnar
opin alla daga kl. 07:00 – 22:00 í vetur
Færð og veður
Textavarp síður 470–490
Talvél sími 1779
Engin gjöld eru tekin fyrir að leita
upplýsinga hjá Vegagerðinni
1777
www.vegagerd in . i s
hátíð }
Þjóðsagan segir að kona nokkur
hafi gefið dóttur sinni hring úr
gulli. Stúlkan hafði heyrt að ef
maður léti orm liggja á gulli, þá
stækkaði það. Hún lagði því hring-
inn undir lyngorm og setti svo
bæði lyngorminn og hringinn ofan
í lítið skrín.
Þegar stúlkan leit í skrínið
nokkrum dögum síðar var ormur-
inn orðinn svo stór að skrínið var
farið að gliðna í sundur. Stúlkan
varð hrædd, þreif upp skrínið og
grýtti því og orminum út í Lagar-
fljót.
Um langa hríð vissi enginn af
orminum, en loks fór hann að bæra
á sér og drap þá bæði menn og
skepnur sem fóru yfir fljótið, og
teygði sig stundum upp úr fljótinu
og spjó eitri á bakkana.
Eins og gefur að skilja voru bág-
indin mikil sem af þessu sköpuðust,
og tókst engum að leysa úr vand-
anum um langa hríð.
Sumir segja að tveir galdramenn
hafi að lokum steypt sér í fljótið og
tókst þeim að binda ókindina niður
að framan og aftanverðu. Aðrir
segja hins vegar að Guðmundur
góði biskup hafi bundið orminn.
Enn eru til menn sem halda því
fram að ormurinn sjáist reka krypp-
una upp úr Lagarfljótinu, og eru
sumar þessar sögur frá allra síðustu
árum. Sagt er að hann stækki enn
og muni halda áfram að lifa á botni
Lagarfljóts alveg fram að
heimsendi, þegar hann á að losna
og leggja allt Fljótsdalshérað í eyði.
Ormsins er fyrst getið í annálum
1345, og var sagt að það boðaði
stórtíðindi þegar hann skyti upp
kryppum úr fljótinu. Nú hefur gas
fundist á tveimur stöðum, sem
streymir upp úr vatninu, og þykir
þar komin skýringin á Lagar-
fljótsorminum.
Lagarfljótsormurinn er lyngormur
Þjóðsagan um orminn í Lagarfljóti.
Brú liggur yfir Lagarfljótið við Egilsstaði, og ekkert sést í lyngorminn hroðalega á þessari mynd. FRÉTTABLAÐIÐ/FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Fljótsdalshérað afar
fjölskylduvænt
Egilsstaðir er stærsta þéttbýlið innan sveitarfélagsins Fljótsdalshéraðs, sem varð til fyrir ári
síðan þegar Austur-Hérað, Fellahreppur og Norður-Hérað sameinuðust. Héraðið er það
fjölmennasta á Austurlandi, með um 3.500 íbúa.
Umhverfis þéttbýlið Egilsstaði eru
blómleg landbúnaðarsvæði og
smærri þjónustukjarnar á Hall-
ormsstað, Eiðum og Brúarási.
Sveitarfélagið er mjög víðfeðmt og
með þeim landmestu á Íslandi.
Með tilkomu álversins á Reyð-
arfirði eru fleiri og fleiri utan-
sveitarmenn farnir að líta Egils-
staði hýru auga, enda er margt þar
sem tryggir góðan lífstíl. Til dæm-
is er samfélagið mjög fjölskyldu-
vænt og býður upp á fjölbreytta
námsmöguleika. Fimm leikskólar
eru í Fljótsdalshéraði, fjórir
grunnskólar, þrír tónlistarskólar,
hússtjórnarskóli, menntaskóli og
góð aðstaða til fjárnáms á há-
skólastigi.
Aðstaða til íþróttaiðkunar er
mjög góð, hægt er að velja um
fjögur íþróttahús og þrjár sund-
laugar, þar er glæsilegur íþrótta-
leikvangur, skemmtilegur golfvöll-
ur og góð aðstaða fyrir hesta-
menn. Tvær félagsmiðstöðvar eru
á Fljótsdalshéraði og kaffi- og
menningarhús ungs fólks.
Fljótsdalshérað er rómað fyrir
náttúrufegurð og gott veðurfar,
sem minnir oft á loftslag á megin-
landi Evrópu. Skóglendi einkennir
svæðið og fjölmargir staðir eru vel
fallnir til útivistar. Mannlífið er
litskrúðugt og hlýlegt, rétt eins og
landslagið. Þar er afar fjölbreytt
og lifandi menningarlíf, öflug tón-
listar-, myndlistar- og leiklistar-
starfsemi og fjölþætt starfsemi í
klúbbum og félagasamtökum. Lif-
andi safnastarf býður upp á sér-
sýningar og ýmiskonar kynning-
ar- og skemmtidagskrár. Fjöldi ár-
vissra menningarhátíða er haldinn
á Fljótsdalshéraði með þátttöku
fjölda listamanna sem laða að fólk
úr öllum landshlutum, en mikill
straumur ferðamanna leggur leið
sína um Egilsstaði ár hvert, og er
aðstaða fyrir ferðamenn í Fljóts-
dalshéraði mjög góð, enda margt
að sækja til þessa landshluta. Þar
liggja krossgötur mikilvægra sam-
gönguleiða innan fjórðungs og til
annarra landshluta, þar er alþjóð-
legur flugvöllur og miðstöð land-
samgangna.
Egilsstaðir að haustlagi.
Vaxandi skógar víða
Innan við tvö prósent af
landinu er skógi vaxin í
dag. Þó fer trjánum ört
fjölgandi, ekki síst vegna
starfa skógarbænda.
„Fljótsdalshérað er vagga bændaskóg-
ræktarinnar, þar sem bændur rækta
skóga á sínum jörðum með framlagi frá
ríkinu,“ segir Þröstur Eysteinsson, þró-
unarstjóri Skógræktar ríkisins.
Bændaskógrækt hófst í kringum
1970 í Fljótsdalshéraði með aðstoð
Skógræktarinnar. Í kjölfar niðurskurðar
vegna riðu á áttunda og níunda ára-
tugnum óx bændaskógræktin mikið, og
þá voru Héraðsskógar stofnaðir, en þeir
tóku við af Skógræktinni við að sinna
þörfum bændanna.
„Undanfarin fimmtán ár hefur þetta
verið mesta skógræktarátakið á tiltölu-
lega afmörkuðu svæði hér á landi, og er
í raun og veru fyrirmynd annarra
landshlutabundinna skógræktarverk-
efna,“ segir Þröstur. 70 til 80 prósent
allrar gróðursetningar á landinu fara
fram á vegum þessara verkefna.
Héraðsskógar kaupa mikið magn af
plöntum í einu og afhenda bændunum,
sem þeir svo gróðursetja á jörðum sín-
um. „Hér er markmiðið að úr verði
nytjaskógur, og það bendir allt til þess
að það takist,“ segir Þröstur, en Skóg-
rækt ríkisins veitir bændunum ýmis-
konar ráðgjöf og sinnir rannsóknum á
skógum og skógrækt.
Dagar myrkurs
SKAMMDEGISSKEMMTUNIN DAGAR MYRKURS HÓFUST Á
AUSTURLANDI Í GÆR. DAGSKRÁIN ER AFAR FJÖLBREYTT.
02-03 lesið 17.11.2005 15:11 Page 2