Fréttablaðið - 18.11.2005, Blaðsíða 65
18. nóvember 2005 FÖSTUDAGUR40
menning@frettabladid.is
! 8.30-17.30Hugvísindadeild og Hugvísinda-
stofnun standa í dag fyrir Hugvís-
indaþingi í Aðalbyggingu Háskóla
Íslands. Dagskráin, sem verður í
gangi frá klukkan 8.30-17.30, sam-
anstendur af um 80 erindum sem
flutt verða í 22 málstofum og þar má
glögglega sjá hversu vítt svið hug-
vísindin spanna. Dagskráin er birt
á heimasíðu Hugvísindastofnunar
www.hugvis.hi.is .
AL-ANON samtökin voru
stofnuð á Íslandi hinn 18.
nóvember 1972 og fagna
því 33 ára afmæli sínu í dag.
AL-ANON er félagsskapur
ættingja og vina alkóhólista
og er sprottin upp úr AA-
samtökunum. Félagar í AL-
ANON telja að alkóhólismi
sé fjölskyldusjúkdómur og
að breytt viðhorf geti stuðlað
að bata. AL-ANON samtökin
hafa aðeins einn tilgang,
að hjálpa aðstandendum
alkóhólista. Samtökin halda
opinn afmælis- og kynn-
ingarfund klukkan 20.30 í
Háteigskirkju í kvöld en þar munu tveir AL-ANON
félagar og einn AL-ATEEN félagar segja sögu sína
auk þess sem félagi í AA-samtökunum segir sögu
sína. Félagar í AA-samtökunum og AL-ANON eiga
það sameiginlegt að sam-
hæfa reynslu sína, styrk og
vonir til þess að hjálpa hver
öðrum og því eru regluleg-
ir fundir þungamiðja starfs
hópanna þar sem fólk getur
komið saman og deilt sögum
sínum. Að loknum fundi tekur
við kaffispjall.
Nafnleyndar er gætt í AL-
ANON og staðinn er vörður
um nafnleynd allra AL-ANON,
AL-ATEEN og AA-félaga og
ekkert félagatal er haldið.
AL-ANON er andlegur félags-
skapur en ekki trúarlegur en
allir eru velkomnir hvort sem
þeir tilheyra einhverjum trúarhópi eða ekki. Engra
félagsgjalda er krafist af félögum AL-ANON eða AL-
ATEEN deildanna og kostnaði er mætt með frjálsum
framlögum félaganna á fundum.
Fjölskyldusjúkdómurinn alkóhólismi > Ekki missa af...
... 18. sjónþingi dr. Bjarna Þórarinsson-
ar á Grand Rokk. Sjónþingið hófst á
miðvikudaginn en Vísiakademía Bjarna
er í forgrunni en hann kynnir ýmsar
nýjungar sem sprottið hafa upp úr yfir-
gripsmiklum rannsóknum hans.
... síðdegistónleikum ungrar söngkonu
sem kallar sig Mr. Silla í Gellrí HUmar
eða frægð. Þessi unga og efnilega
tónlistarkona hefur verið að vekja á sér
verðskuldaða athygli síðustu misseri.
... tónleikum Lúðrasveitar Hafnarfjarðar
í Víðistaðakirkju laugardaginn 19. nóv-
ember. Meðal annars eru á dagskrá tveir
marsar eftir Árna Björnsson, tónskáld,
en hann hefði orðið 100 ára á þessu
ári. Tónleikarnir hefjast klukkan 16 og er
aðgangseyrir 500 krónur.
Miðvikudaginn 16. nóvem-
ber, á degi íslenskrar tungu,
sendi Edda útgáfa frá sér
Íslandsatlas sem er viða-
mesta kortabók yfir Ísland
sem hefur komið fyrir al-
menningssjónir og markar
ákveðin þáttaskil í íslenskri
kortasögu. Landið allt, frá
hæstu tindum til annesja og
eyja, er sýnt á 132 kortum í
mælikvarðanum 1:100 000.
„Þið eruð stórfurðulegir Íslending-
ar – ætliði nú líka að verða bestir í
kortaútgáfu?“ Þetta sagði Andrew
Heritage, fyrrum forkólfur hjá
Times kortaútgáfunni, við Sigurð
Svavarsson, útgáfustjóra hjá
Eddu, þegar hann sá Íslandsatlas
forlagsins á bókastefnunni í Frank-
furt í síðasta mánuði. „Þá leið mér
vel,“ sagði Sigurður í ávarpi sem
hann flutti á Bessastöðum á mið-
vikudaginn, þegar fyrstu eintök
bókarinnar voru afhent forseta
Íslands, Ólafi Ragnari Gríms-
syni, og Sigríði Önnu Þórðardótt-
ur umhverfisráðherra. Sigurður
sagði að það hefði glatt sig ósegj-
anlega að sjá hversu mikla athygli
og aðdáun atlasinn vakti á sýning-
unni. „Menn furðuðu sig á því að
einstaklingur og einkafyrirtæki á
jafn dvergvöxnum bókamarkaði
og þeim íslenska gætu ráðist í gerð
slíks stórvirkis – án stórkostlegs
opinbers stuðnings.“
„Með stafrænni kortatækni eru
svipbrigði landsins sýnd með ótrú-
legri nákvæmni svo hvert manns-
barn skynjar hæð fjalla, dýpt dala
og víðáttur öræfanna líkt og flogið
væri yfir“, segir í frétt Eddu um
útgáfuna.
Íslandsatlas Eddu er unninn í
samstarfi við fyrirtækið Fixlanda
sem er í eigu kortagerðarmanns-
ins Hans H. Hansen. Byggt er
á grunngögnum úr gagnabanka
Landmælinga Íslands, en þau
eru síðan unnin í sérstöku land-
upplýsingakerfi með hjálp við-
bótargagna úr ýmsum áttum. Í
frétt frá Eddu segir að atlasinn
brjóti blað í íslenskri útgáfusögu.
Atlasinn, sem er í mælikvarðan-
um 1: 100.000, sýni landið alger-
lega í nýju ljósi. Aðeins einu sinni
áður hafi verið unninn heilstæður
atlas af landinu í þessum mæli-
kvarða – það hafi Danir gert árið
1944 og hafi sú kortabók, Islands
kortlægning, aðeins verið gefin út
í 200 eintökum og selst upp fyrir
lok stríðsins.
Í Íslandsatlasinum eru ein-
nig stórir inngangskaflar sem
skýra og styðja kortahlutann. Örn
Sigurðsson landfræðingur skrif-
ar ágrip af kortasögu Íslands,
Haukur Jóhannesson gerir jarð-
sögu landsins skil, Oddur Sig-
urðsson lýsir jöklum og jökla-
breytingum og Eyþór Einarsson
gróðurfarssögunni.
Stórvirki í
kortagerð
ÍSLANDSATLAS AFHENTUR Á BESSASTÖÐUM Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, og
Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra taka við fyrstu eintökum bókarinnar úr hönd-
um Hans H. Hansen kortagerðarmanns og Arnar Sigurðssonar landfræðings.
íslensk menning hefur verið
kynnt í Serbíu frá því í júní undir
heitinu Íslenskir menningardagar
í Serbíu. Í tengslum við það hefur
íslensk list og listamenn verið
kynnt í þarlendum fjölmiðlum,
jvikmyndahátíð og ljósmynda-
sýningar verið haldnar, rithöfund-
ar verið kynntir sem og íslensk
matseld, tónlist, hönnun og fleira.
Þá hefur Sjón verið boðið á bók-
menntahátíðina í Belgrad ásamt
Tatjönu Latinovic, sem þýddi bók
hans Skugga-Baldur yfir á serb-
nesku.
Það er Bakankult stofnunin í
Belgrad sen stendur að kynning-
unni, en tveir fulltrúar hennar
eru staddir hér á landi um þessar
mundir því að ári stendur til að
halda samskonar kynningu hér á
Íslandi undir heitinu Serbneskir
menningardagar á Íslandi.
Serbía í brennidepli
ÞÁTTTAKENDUR OG SKIPULEGGJENDUR
Sjón, Tatjana Latinovic, þýðandi
Skugga-Baldurs, Ana Krstic og
Dimitrije Vujadinovic, fulltrúar
Bakankult stofnunarinnar.
FRÉTTABLAÐIÐ/ STEFAN
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI