Fréttablaðið - 18.11.2005, Síða 84

Fréttablaðið - 18.11.2005, Síða 84
FÖSTUDAGUR 18. nóvember 2005 59 FYLGIRFYLGIR War of the Worlds Nýjasta mynd Steven Spielbergs er gerð eftir hinni heimsfrægu sögu H.G. Wells sem upphaflega var skrifuð 1898. Þessi magnaða útfærsla gerist hinsvegar í nútímanum og Tom Cruise leikur fráskilinn föðir sem þarf að flýja undan árás geimvera með börnin sín. Stanslaus hasar, góð saga. snakk fylg ir á meðan bir gðir 1.999 KÖRFUBOLTI Landsliðsmaðurinn Helgi Már Magnússon átti frá- bæran leik fyrir lið sitt Catawba í leik gegn hinu fræga háskólaliði North Carolina í fyrradag. Helgi Már skoraði 20 stig á aðeins 28 mínútum og hitti vel úr skotum sínum en North Carolina er í styrkleikaflokki fyrir ofan Cat- awba í bandaríska háskólabolt- num og fór með öruggan sigur af hólmi, 89-63. Helgi Már var stigahæstur allra á vellinum en bróðir hans Finnur, sem leikur einnig með Catawba, lék aðeins eina mínútu en komst ekki á blað. - vig Helgi Már Magnússon: Finnur sig vel með Catawba HELGI MÁR MAGNÚSSON Er að finna sig mjög vel í Bandaríkjunum. FÓTBOLTI Það verður brasilíski miðjumaðurinn Ronaldinho sem mun fá gullknöttinn og titilinn besti knattspyrnumaður Evrópu þann 24. nóvember næstkom- andi, eftir því sem spænska blaðið Marca greinir frá. Það er tímarit- ið France Football sem stendur að valinu, eins og það hefur gert síðustu áratugi, og segist Marca hafa öruggar heimildir fyrir því að Ronaldinho hafi orðið fyrir valinu. Í frétt blaðsins kemur einnig fram að Frank Lampard hjá Chel- sea hafi orðið númer tvö í kjörinu af þeim 50 sem tilnefndir voru í upphafi. France Football hefur enn sem komið er ekki neitað frétt Marca og þykir það gefa til kynna að fullyrðingar spænska blaðsins séu á rökum reistar. - vig Besti leikmaður Evrópu: Ronaldinho fær gullknöttinn RONALDINHO Verður valinn besti leikmað- ur Evrópu. Evrópukeppni karla í körfu: KEFLAVÍK-BK RIGA 121-90 Stig Keflavíkur: AJ Moye 37, Zlatko Gocevski 18, Magnús Gunnarsson 20, Arnar Freyr Jónsson 16 stig, Gunnar Einarsson 14, Sverrir Þór Sverrisson 7, Gunnar Stefánsson 5, Jón Nordal Hafsteinsson 4. Evrópukeppni kvenna í körfu: HAUKAR-PAYS D´AIX 41-105 Stig Hauka: Jelena Jovanovic 13, Helena Sverris- dóttir 12, Ösp Jóhannsdóttir 6, Hanna Hálfdánar- dóttir 4, Sara Pálmadóttir 2, Pálína Gunnlaugsdóttir 2, Kristrún Sigurjónsdóttir 2.. DHL-deild karla í handbolta: ÞÓR AK.-FYLKIR 28-37 Mörk Þórs: Aigars Lazdins 8, Guðmundur Trausta- son 5, Sindri Haraldsson 4, Sigurður B. Sigurðsson 3, Sindri Viðarsson 2, Rúnar Sigtryggsson 2, Atli Ingólfsson 1, Bjarni Bjarnason 1, Heiðar Þór Aðal- steinsson 1, Arnór Þór Gunnarsson 1.. Mörki Fylkis: Brynjar Þór Hreinsson 8, Heimir Örn Árnason 6, Arnar Þór Sæþórsson 6, Arnar Jón Agnarsson 4, Sigurður Valur Jakobsson 4, Ásbjörn Stefánsson 3, Davíð Þór Óskarsson 2, Pétur Heiðar Þorláksson 2, Guðlaugur Arnarsson 1, Ágúst Örn Guðmundsson 1. ÚRSLIT GÆRDAGSINS KÖRFUBOLTI Keflvíkingar sýndu hreint magnaða frammistöðu á heimavelli sínum gegn BK Riga í Evrópukeppni félagsliða í gær- kvöldi og sigruðu BK Riga frá Lettlandi 121-90. Fyrir leikinn var ljóst að Keflavík þurfti að vinna með að minnsta kosti 20 stiga mun til að vinna upp tapið frá því í fyrri leiknum. Það gerði Keflavík og ellefu stigum betur í þokkabót og er liðið þar með komið áfram í Evrópukeppninni. Jafnræði var með liðunum í upphafi leiks en undir lok fyrsta leikhluta settu leikmenn Kefla- víkur í fluggírinn og náðu að breyta stöðunni úr 20-19 í 30-19. Sú rispa kveikti heldur betur í þeim fjölmörgu áhorfendum sem lögðu leið sína í Sláturhúsið í gær og bættu Keflvíkingar við for- ystuna í 2. leikhluta. Í hálfleik var staðan 60-40 og eftir þriðja leik- hluta voru Keflavík komið með 26 stiga forystu, 84-58. Í 4. og síðasta leikhluta bættu Keflvíkingar enn frekar í og fóru að lokum með 31 stigs sigur af hólmi. Það var fyrst og fremst frábær varnarleikur Keflvíkinga sem skóp sigur þeirra og þá má segja að leikurinn í gær hafi verið sá fyrsti í Evrópukeppninni þar sem hittnin hjá leikmönnum liðsins var með eðlilegu móti. AJ Moye átti stórleik og skoraði 37 stig og tók þar að auki 12 fráköst. Zlatko Gocevski skoraði 18 stig og tók 11 fráköst og þá var Magnús Gunn- arsson með 20 stig. - vig Keflavík tókst hið ómögulega í Evrópukeppninni í körfubolta: Frábær frammistaða Keflvíkinga MAGNÚS GUNNARSSON Skoraði 20 stig fyrir sína menn í gærkvöldi og spilaði mjög vel, eins og reyndar allt Keflavíkurliðið. FÓTBOLTI Framherjinn Arnar Gunn- laugsson var í byrjunarliði Vals í fremstu víglínu ásamt Garðari Gunnlaugssyni þegar liðið mætti Fjölni í æfingaleik í Egilshöllinni í gærkvöldi. Staðan var 1-1 þegar Fréttablaðið fór í prentun í gær- kvöldi og skoraði Arnar mark Valsmanna. Nýju sóknarmenn- irnir sem Valur samdi nýlega við, þeir Jakob Spangsberg og Andri Valur Ívarsson, máttu þurfa að sætta sig við að byrja á bekknum. Arnar yfirgaf herbúðir KR í lok síðasta sumars vegna persónulegra ástæðna en mætti á sína fyrstu æfingu hjá Val í síðustu viku. - vig Æfingaleikur Vals og Fjölnis: Arnar skoraði fyrir Val
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.