Tíminn - 23.01.1977, Page 3
Sunnudagur 23. janúar 1977
{ l| l| I H l( II l( I!
3
1
Akureyri
Sjúkrahótel
á vegum
R.K.Í. tekið
í notkun
Guðmundur Blöndal, framkvæmdastjóri Rauða kross deildar Akureyr-
ar, t.v. og við hlið hans eru hjónin Björg Jónsdóttir og Jón Guðmunds-
son, en þau veita sjúkrahótelinu forstöðu. — Timamynd: Karl.
i Eldhúsinnréttingar af lager
nú getum við afgreitt heilu eld-
húsin af lager með nokkurra
daga fyrirvara. Staðlaðar skápa-
einingar í úrvali. Tvö útlit. —
brúnbæsuð fura „exklusiv” og
eikarlíki úr plasti.
)Klæðaskápar og baðskápar
Ennfremur fyrirliggjandi 40 og
50 cm fataskápar. Hæðin er 210
cm. AAismunandi innréttingar.
Baðskápar með frönskum
hurðum úr Ijósri furu.
iiicciuiii bMjjuicyyjuin uy leitu
ykkur að kostnaðarlausu og
allra skuldbindinga af yk
hálf u.
OG SJAIÐ HVAÐ VIÐ HOFUAA
Kalmar
- Innréttingar h.f. Grensásvegi 22 - Simi
8-26-45 —
Formaður R.K.l. á Akureyri er
Halldór Halldórsson, læknir og
framkvæmdastjóri er Guðmund-
ur Blöndal. Sjúkrahótelið á Akureyri.
Hjörtur Björnsson, einn vistmanna á nýja sjúkraheimilinu. Hjörtur,
sem búsettur er i Grund I Svarfaðardal, hefur dvalið á sjúkrahótelinu
frá opnun þess 4. janúar siðastliðinn.
K.S. Akureyri. — Fjórða janúar
sl. var sjúkrahótel Rauða kross
deildar Akureyrar formlega tekið
I notkun með komu fyrsta sjúk-
lingsins.
Aðdragandi sjúkrahótelsins er
sá, að seinnipart vetrar 1975 fór
stjórn Fjórðungssjúkrahúss
Akureyrar þess á leit við deildina,
að hún athugaði möguleika á þvi
að hefja rekstur sjúkrahótels I
bænum. Eftir að stjórn R.K.t.
hafði heitið deildinni fjárstuðn-
ingi var ákveðið að leita eftir
húsakaupum og varð fyrir valinu
húseignin að Skólastig 5, en það
hús er þægilega nærri sjúkrahús-
inu og þótti henta vel að flestu
leyti.
Kaupsamningurinn var gerður
fyrri hluta sumars, en siðan þá
hafa gagngerðar breytingar farið
fram á húsinu.
Fyrsti sjúklingurinn kom á
hótelið eins og áður sagði þann 4.
janúar, en siðan þá hafa alls
dvalizt þar 12 sjúklingar frá einn
og upp i fimmtán sólarhringa
hver.
Eins og stendur er hægt að hafa
á hótelinu 7 sjúklinga samtimis,
en þegar framkvæmdum er að
fullu lokið geta dvalizt þar 13 i
senn.
Um áramót höfðu verið greidd-
ar 8 milljónir af stofnkostnaöi
hótelsins, en hins vegar mun
deildin skulda tæpar 10 milljónir
vegna þessara framkvæmda.
Hjónin Björg Jónsdóttir og Jón
Guðmundsson hafa verið ráðin til
þess að annast rekstur sjúkra-
hótelsins. begar hóteliö verður
fullnýtt verður svo aöstoðarfólk
ráðið.
Þetta sjúkrahótel verður rekið
með svipuðu sniði og sjúkrahótel
R.K.I. i Reykjavik og er það ætlað
sjúklingum sem i fyrsta lagi biða
vistunar á sjúkrahúsi t.d. meðan
á forrannsókn stendur. I öðru lagi
sjúklingum, sem dvalizt hafa á
sjúkrahúsi, en þurfa á eftirmeð-
ferð að halda, eða geta ekki strax
lagt á sig venjulega heimferð né
geta séð um sig sjálfir.
1 þriðja lagi verða þarna sjúk-
lingar, sem eru i meðferö á
sjúkradeild og ferðafærir, en
þurfa ekki að liggja i rúmi á
sjúkrahúsi og i fjórða lagi sjúk-
lingar, sem geta dvalizt utan spit-
ala t.d. á milli aðgerða.
Til þess að fólk fái inni á
sjúkrahóteli þarf það aö hafa
læknisvottorð frá lækni, sem ber
ábyrgð á þvi, meðan það dvelst
þar, þvi að þar fær það ekki aðra
þjónustu en fæði og húsnæði. Sú
þjónusta er reyndar ókeypis á
sama hátt og dvöl á sjúkrahúsi.
Sjúkrasamlög greiða daggjöld,
sem eru ea. 2000 kr. á dag til
sjúkrahótelsins, en til viðmiðunar
má segja að Fjórðungssjúkrahús
Akureyrar fær frá sjúkrasamlag-
inu 15.000 kr. I daggjöld.
Sjúkrahótel R.K.l. á Akureyri
er hið vistlegasta i alla staöi og á
örugglega eftir að verða vinsælt
af þeim, sem þar dvelja.
Hreint|
^iond I
fogurt I
lond I
LANDVERND