Tíminn - 23.01.1977, Page 5
Sunnudagur 23. janúar 1977
5
Hver
hlýtur
hnossid?
Karl Bretaprins er eftirsóttasti pip-
arsveinninn í evrópska háaðlinum. Það er
ekkert leyndarmál, að hann er mikið upp á
kvenhöndina og verður auðveldlega ást-
fanginn. Venjulega stendur það þó ekki
nema í fáeinar klukkustundir eða daga, — í
hæsta lagi nokkrar vikur. Englendingar
fylgjast af miklum áhuga með ástamálum
Karls, og miklar umræður hafa sprottið um
það hver verði næsta drottning Bretlands.
Brezku fjölmiðlarnir
láta sitt ekki eftir littja i
þessum umræðum og
hafa þeir ósjaldan komið
með fréttir um að prins-
inn hafi sézt i fylgd með
þessari eða hinni og hafi
farið vel á með þeim.
Fjölmargir kvenmenn
hafa verið orðaðir við
hann siðustu árin, bæði
konur með blátt blóð i æð-
um og réttar og sléttar
almúgastúlkur. Af nógu
er að taka en sem dæmi
má nefna Astrid
prinsessu af Luxemburg,
Georginu Russel, Pene-
lopa Eastwood, Lady
Cecil Kerr, Lady Caroline
M. Percy, prinsessa
Elena frá Rúmeniu,
Karólina prinsessa af
Mónakó og Angela Nevill.
Alexandra Hays og
Charlotte Hasters. Elena
þykir hafa allt til að bera
til að verða góð drottning
og geta alið væntanlegum
kóngi syni. Einhvers
staðar mátti lesa að Karl
og Karólina af Mónakó
yrðu fallegt par, en það
var þó einn hængur þar á.
Þau höfðu aldrei hitzt. Nú
eru uppi sögur um að
Davina Sheffield, sem
verið hefur náin vinkona
Karls um lengri tima
verði næsta drottning
Bretlands, en timinn einn
mun skera úr um það.
Karl, sem orðinn er
tuttugu og átta ára nýtur
lifsins i hvivetna og finnst
sjálfum ekkert liggja á að
festa ráð sitt, Og hann
hefur látið svo um mælt,
að hann verði að vanda
valið vel, þvi hann muni
aðeins kvongast einu
sinni.
„Þrátt fyrir
kreppuna"
t London er smáveitingahús,
se'm er rekið jf Richard New-
port greifa, og er kallað
Kaviar-restaurant. Eins og
nafnið ber með sér er sér-
réttur hússins rússneskur
kaviar. Hann er mjög dýr eins
og allir vita, en Richard greifi
segir, — að þrátt fyrir þá efna-
hagslegu kreppu , sem yfir
Engiand gangi, þá séu, guði sé
lof, (segir greifinn) alltaf
fjöldi fólks, sem eigi mikla
peninga, og þaö vill fá það
bezta fyrir peningana sina —
og það fá þeir hér hjá mér.
Smáskál af kavfar kostar á
þessu veitingahúsi um 4000 isl.
krónur, og svo þarf auövitað
helzt -að drekka kampavfn
með til þess að njóta herleg-
heitanna sem bezt. Þarna
kemur rfka „fina” fólkið I
London mjög oft i hádegismat,
en ekki er getið hvað reikning-
urinn hljóðar upp á með
drykkjarföngum, þjónustu-
gjöldum og öðru slfku, — en
liklega er upphæðin allt að þvi
það há að nægja myndi fyrir
einni „pulsu með öllu” handa
100 manns!
Ímeð j
Imorgun-
| kaffÍnu
11
— Trúöu mér, ég þekki karlmenn,
Þetta er bara bragð hjá honum pabba,
svo að hann komist út einu sinni án
þess aö þú sért með.
— Marta. Karl getur ekki gert viö
sjón varpið. Má ég koma til ykkar og
horfa á dagskrána.
— Ég var aö rifast við manninn minn.
Er hann kominn aftur til yðar, fanga-
vörður?
— Hvað viltu, maður verður þó að fá
sér I glas á kvöldin.