Tíminn - 23.01.1977, Qupperneq 27
Sunnudagur 23. janúar 1977
27
Mennta-
mála-
ráðherra-
fundur
Norður-
landa
Óeðlileg vinnubrögð -5
Sigþór Sigurf sson i Litla-
Hvammi i Mýrdal hefur sent
Timanum svolátandi fréttatil-
kynningu af hálfu hóps áhuga-
manna um hafnargerð við Dyr-
hólaey:
A fundi hóps áhugamanna um
hafnargerð við Dyrhólaey, sem
haldinn var i Ketilsstaöaskóla
föstudaginn 14. janúar 1977 var
gerð eftirfarandi samþykkt:
„Fundur hóps áhugamanna
um hafnargerð viö Dyrhólaey,
sem unnið hefur að þeim málum
undanfarið ár og kynnt hug-
myndir sinar þar að lútandi
heima i héraði og opinberum
aðilum, lýsir furðu sinni og vitir
þau vinnubrögð þeirra aðila,
sem stóðu fyrir fundi um
hafnarmál o.fl. i Vik 8. janúar
s.l. að gengiö var fram hjá þess-
um hópi við boðun fundarins og
umræður um máliö, þar sem viö
teljum einnig, að þær fram-
kvæmdir, sem við höfum unniö
að, geti á eðlilegan hátt tengzt
öðrum hugmyndum um stærri
framkvæmdir á sviði hafnar-
mála.
Fundurinn varar við slikum
vinnubrögðum, þegar um mál
sem þessi er að ræöa, og bendir
sérstaklega á, að stefnumörkun
heimamanna hefur til þessa
miðazt við þróun á grundvelli
fiskihafnar, en ekki kollsteypu
tengda slikum risaframkvæmd-
um, sem nú er rætt um. Undan-
fari allra ákvaröana um slikt
mál verður að vera nákvæm
rannsókn á öllum þáttum máls-
ins, jafnt vistfræðilegum sem
félagslegum og almenn umræða
allra þátta þess heima i
héraði”. —_
A menntamálaráðherrafundi
Norðurlanda i Kaupmannahöfn
17. nóv. 1976 var lýst stuðningi viö
að bókmenntaverðlaun Norður-
landaráös yrðu sem allra fyrst
hækkuö úr 50 þúsundum danskra
króna i75þús. d.kr.,eðaium það
bil 2,4 millj. isl. króna. Verð-
launafjárhæðin hefur verið ó-
breytt frá öndveröu eða i 15 ár.
Einnig voru fundarmenn hlynntir
þvi að gert yröi ráð fyrir sérstök-
um styrk að fjárhæð 25 þús. d.kr.
handa rithöfundi, sem birt hefði
fyrstu bók sina á þremur næstu
árum á undan styrkveitúngu.
Þá var gert ráð fyrir nokkurri
skipulagsbreytingu á úthlutun
bókmenntaverðlaunanna, þannig
að fulltrúar frá Dönum, Færey-
ingum og Grænlendingum kæmu i
úthlutunarnefndina, og aö sama
nefnd annist einnig styrkveiting-
ar til útgáfu norrænna rita i þýð-
ingu á máli grannþjóðanna. Þessi
nefnd fjalli einnig um úthlutun
hins nýja 25 þús. króna styrks, ef
samþykktur verður.
Tveir nýir deildarstjórar voru
ráðnir i Norrænu menningar-
málaskrifstofuna, — Lilla Voss
frá Danmörku óg Gustav Skut-
hálla frá Finnlandi. Rúmlega 200
umsóknir bárust um stöðurnar.
Samþykkt var að koma á fót 5
manna nefnd til þess að fjalla um
hugsanlegan fjárhagsstuðning
við norrænt iþróttasamstarf,
einkum iþróttir fyrir börn, ung-
linga og fatlaða, starfsiþróttir
o.s.frv. Einnig er nefndinni ætlað
að athuga hvort þörf er fyrir sér-
stakarráðstafanir tilþessað auð-
velda þátttöku þeirra i norrænu
iþróttasamstarfi, sem eiga um
langan veg að sækja i þessu sam-
bandi. Nefndinni er ætlað að láta
kostnaðaráætlun fylgja tillögum
sinum og raða verkefnum til
framkvæmda eftir þvi hve mikla
áherzlu hún telur að leggja beri á
þau.
Þá var rætt um samstarfið á
sviði leiklistarmála og hugs-
anlegasameiningunefnda þeirra,
sem fjallað hafa um svonefnd
Vasanámskeið og úthlutun f jár til
gestaleikja.
A sameiginlegum fundi ráð-
herranefndarinnar og mennta-
málanefndar Norðurlandaráðs
var m.a. rætt um Menningarsjóð
Norðurlanda og nauðsyn þess að
efla sjóöinn. Sjóðurinn hefur nú
árlega 6,5 millj. danskra króna til
umráða, eða um 208 millj. is-
lenzkra króna, en hafði áður 5,6
millj. d.kr. Árið 1975 bárust
sjóðnum 962 umsóknir að fjárhæð
samtals 66 milljónir danskra
króna. 158 af þessum umsóknum,
að f járhæð 8 millj. danskra króna
féllu undir aðrar norrænar stofn-
anir en sjóðinn, en af þeim 804
umsóknum, sem þá voru eftir, að
fjárhæð 58 millj. d.kr., gat sjóöur-
inn einungis sinnt 126 umsóknum
og veitti samkvæmt þeim 5,6
millj. d.kr. Af fé þvi sem sjóður-
inn greiddi áriö 1975 voru um það
bil 13% til kennslumála, u.þ.b.
67% til annarra menningarmála.
Menntamálanefnd Norður-
landaráðs hefur jafnan lagt á-
herzlu á aö efla Menningarsjóð
Norðurlanda og Itrekaði það enn
á ný á þessum fundi.
Þess má geta að fjárhæð hinna
svokölluöu norrænu „menningar-
fjárlaga”, þ.e. fjárveitingar þjóð-
þinganna til norræns menningar-
samstarfs, eru á árinu 1976 45,3
millj. d.kr. eða u.þ.b. hálfur ann-
ar milljarður islenzkra króna.
1 tengslum viö menntamála-
ráðherrafundinn var haldinn
embættismannafundur og fundur
um dreifingu sjónvarpsefnis um
gervihnetti.
Birgir Thorlacius, ráðuneytis-
stjóri, tók þátt i fundunum af
hálfu menntamálaráðuneytisins.
Hin öra eftirspurn eftir innréttingum
okkar hefur gert okkur kleift að bjóða
nú ódýrustu eldhúsinnréttingarnar á
markaðnum.
í Haga eldhúsum er hver hlutur á
sínum stað í léttu samræmi lita og
forma. Enda um 283 mismunandi
einingar að velja og fjórar gerðir -
fjórar blómalínur, sem bjóða upp á
marga valkosti um verð, efni og sam-
setningu. Þannig er afar auðvelt að
uppfylla óskir kaupandans, hvort sem
hann er að endurnýja gamla innrétt-
ingu eða flytja inn í nýja íbúð.
Spyrjið, hringið eða skrifið og x
biðjið um litmyndabækling. Við /
tökum mál, skipuleggjum og
/
teiknum - ykkur að kostn- /
aðarlausu og gerum tilboð c?
án skuldbindinga af
ykkar hálfu.
hagi :
Suðurlandsbraut 6,
Reykjavík.
Sími: (91) 84585.
4\V ,-••
/
Verslunin Glerárgötu
Akureyri.
Sími: (96) 21507.
26,
Eumusnv eru
ODYRiVRI
Auglýsið í Tímanum