Fréttablaðið - 17.02.2006, Side 52
Ég hef margsinnis komið í Land-
mannalaugar að sumri til. Mig
hafði alltaf dreymt um að fara
þangað um vetur en aldrei kom-
ist, einfaldlega vegna þess að
fyrstu bílprófsárin mín var ég ekki
útbúinn fyrir vetrarferðir.
Það var svo um páska 2005 að
ég var á leiðinni ásamt ferðafélög-
um mínum í Jökulheima og Gríms-
vötn. Við urðum frá að hverfa þar
sem það var allt meira og minna
á floti frá Fellsendavatni og upp
í Jökulheima. Þá var ákveðið að
reyna við Landmannalaugar.
Það var töluvert vatn og mik-
ill krapi á leiðinni og ferðin sóttist
seint. Svo seint að við ákváðum
að gista í bílunum um nóttina. Við
höfðum hugsað okkur að sjá til
næsta dag, hvernig veður og færð
væri.
Næsta dag gjörbreyttist veðrið.
Það var logn og sólin var farin að
láta sjá sig. Okkur fannst við svo
sannarlega eiga það skilið eftir erf-
iði næturinnar. Það sem eftir var
ferðarinnar var mun auðveldara.
Nema það var töluvert í ánni inni
við Landmannalaugar.
Við vorum komin inn í Laug-
ar um hádegi og hluti af hópnum
nýtti sér það sem eftir var dags í
að labba upp á Bláhnúk með skíði
og snjóbretti.
Um kvöldið var síðan grillað
við skálann og farið í laugina.
Næsta dag var haldið heim og gekk
sú ferð mun betur. Lítið hafði bæst
við af vatni og snjórinn hélt bílun-
um betur.
Leiðin lá í stuttu máli frá
Hrauneyjum um línuveg framhjá
Eskihlíð og Hnausum. Þaðan í átt
að Frostastaðavatni og inn í Laug-
ar. Hún hentar bæði til vetrar- og
sumarferða þó að sagan hér að
framan sé úr vetrarferð.
Á veturna er ekki ráðlegt að fara
í Landmannalaugar nema á breytt-
um jeppa, útbúnum fyrir vetrar-
ferðir. Einn eða fleiri bílar ættu að
vera með í för.
Jafnvel þó færi sé gott eru menn
alltaf að taka áhættu með því að
fara einbíla. Færðin getur breyst á
skömmum tíma.
Ef það er lítill snjór þarf að passa
sig á hrauni sem er í kringum slóð-
ann. Það getur auðveldlega valdið
tjóni á ökutækjum, til dæmis með
því að rífa dekk.
Í rigningum getur krapi hægt
verulega á ferðinni eða það getur
hreinlega orðið ófært.
Árnar við laugarnar eru mis-
jafnar og bakkarnir geta verið
mjög háir. Því er gott að gera ráð
fyrir því að þurfa að vaða á.
Meðal merkilegra staða til að
skoða á leiðinni eru Hnausar, ljóti-
pollur, Frostastaðavatn og svo
auðvitað Landmannalaugar.
18
Sigölduhraun í Landmannalaugar
Norðurbarmur, Bláhnúkur og Brennisteinsalda blasa við ferðalöngum þegar stutt er í Landmannalaugar. LJÓSMYNDIR: ÓSKAR ANDRIÞessi fjöll kallast Hnausar og eru á leiðinni. LJÓSMYND: ÓSKAR ANDRI
■■■■ { á fjöllum } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
ÓSKAR ANDRI EIRÍKSSON
Starfar við myndavélaviðgerðir
Bíll: Toyota Hilux DoubleCab á 38“
dekkjum
{ leiðin mín }
Það er of algengt að ferðalangar
noti ekki bílbelti þegar komið er til
fjalla. Skortur á laganna vörðum
veitir litla vörn í bílveltum og því
ættu allir að vera í beltum allan
þann tíma sem bíllinn er á ferð.
Einu undantekningarnar eru þegar
ekið er yfir ár. Þá ættu allir að losa
beltin til að vera sneggri út ef bíll-
inn skyldi velta eða stingast á kaf.
ekki gleyma...
Bílbeltunum
MÝRDALSJ0KULL
Landmanna-
laugar
Þóristungur
R. Sigmundsson býður upp á öfl-
ugasta Íslandskortið í GPS-tæki
sem völ er á. Þetta er eina kortið á
markaðnum sem er bæði jeppakort
og vegleysukort, og er unnið upp úr
bestu gögnum frá Landmælingum,
bæjarfélögum og gögnum frá jepp-
amönnum. Fyrirtækið Hnit hannar
og býr til kortið og sífellt er verið
að uppfæra það. Kortið gengur í
öll nýleg Garmin-tæki sem hafa
kortaminni, auk þess sem hægt er að
nota það í PC-tölvu. Hálendiskortið
er í mælikvarðanum 1:50.000. Á
kortinu eru 40.000 örnefni, flest
allir sveitabæir, allir þjóðvegir og
hver einasti jeppaslóði.
Íslenskt kort
elísabet
vill bara
ánægða
viðskiptavini
Vátryggjandi er Tryggingamiðstöðin hf.