Fréttablaðið - 09.03.2006, Qupperneq 18
9. mars 2006 FIMMTUDAGUR18
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Flytjum öll með
Marel!
„Mjög hagkvæmt er að reka
fyrirtæki í Slóvakíu. Landið
er innan Evrópusambands-
ins, sem tryggir aðgang að
opnum vinnumarkaði og
stöðugt rekstrarumhverfi.“
HÖRÐUR ARNARSON FORSTJÓRI
MAREL UM UPPBYGGINGU FÉLAGS-
INS Í SLÓVAKÍU. FRÉTTABLAÐIÐ.
Samt nánast
ekki nein.
„Virkjanir hafa vissulega
áhrif á umhverfið sem teljast
mega neikvæð, skoðað út
af fyrir sig. En það er ekkert
sérstakt á Íslandi.“
JAKOB BJÖRNSSON FYRRVER-
ANDI ORKUMÁLASTJÓRI Í GREIN Í
MORGUNBLAÐINU.
„Það er allt gott að frétta, veðrið
er gott þó það sé rétt aðeins grátt
í rót,“ segir Sigurjón Samúelsson á
Hrafnabjörgum við Ísafjarðardjúp. „Svo
varð ég víst sjötugur í síðasta mánuði
og bauð þá vinum heim. Ætli að það
hafi ekki verið um fjörutíu manns
hérna. Nokkrir kunningjar tóku sig til
og færðu mér þá Edison-spilara sem
þeir fundu í Bandaríkjunum þannig
að ég get nú spilað Edison-hólkana
sem ég á. Þeir eru frá þar síðustu
aldamótum. Ég hlusta svo sem ekki
mikið á þetta, þetta er meira til að
monta sig af,“ segir Sigurjón og hlær
við.
Bóndinn hefur úr nægu að velja
þegar hann vill njóta tónlistar því hann
á um sjö þúsund plötur og nokkur
hundruð geisladiska.
„Svo er að hægjast um í þessu póst-
máli sem hefur verið allt of mikið til
umræðu hérna við Djúpið. Mín afstaða
hefur alltaf verið skýr í þessum málum.
Mér finnst að menn eigi að láta póstinn
vera og leysa þessi samgöngumál með
öðrum hætti. Þegar við sameinuðumst
Suðureyri 1995 var því lofað að bæta
samgöngur hér við Djúpið og peningar
látnir í það en síðan hefur ekkert gerst.“
Þegar hann er spurður um heilsu-
farið segir hann: „Ég er við góða heilsu.
Kannski finnst sumum nóg um hvað
ég er heilsuhraustur en það er ekki
æskilegt að menn verði of gamlir,“ og
svo hlær hann við.
„Allt of miklir peningar fara í kosn-
ingar, hvort heldur sem er prófkjör,
sveitarstjórnar- eða alþingiskosningar,“
segir Anna Marta Guðmundsdóttir,
bóndi á Hesteyri í Mjóafirði. Henni
hreinlega blöskrar fjárausturinn og vill
að gripið verði í taumana. „Fólk á að
hætta öllu þessu brölti til að ná sér í
atkvæði. Það á ekki að þurfa að borga
neitt fyrir að bjóða sig fram eins og
raunin virðist vera. Allir eiga að hafa
sama rétt á njóta sinna verðleika,“
segir Anna og stingur upp á að
auglýsingar fyrir prófkjör og kosningar
verði bannaðar. „Frambjóðendur eiga
að fá að tala fyrir ekki neitt í sjónvarpi
og útvarpi. Allir eiga að fá jafnan tíma
og standa þannig jafnir að vígi. Það
ætti ekki að vera neitt vandamál fyrir
stöðvarnar því það þarf alltaf eitthvað
efni.“
Anna Marta telur anda spillingar svífa
yfir vötnum eins og málum er nú hátt-
að. „Þetta er farið að líkjast mútum.
Og það þó enginn ætti að geta mútað
öðrum þegar kosningar eru leynilegar.“
Hún segist hafa fært þessar hugleið-
ingar í tal við fólk og ávallt fengið þau
svör að svona hafi þetta alltaf verið
og verði því svona áfram. „Ég spyr
hins vegar; þarf það að vera svona
áfram þó það hafi verið svona áður?
Ef maður sér galla þá lagar maður þá.
Og þetta sé svona í útlöndum þá þarf
ekki að apa allt eftir þeim. En aðrir
gætu svo síðar apað eftir okkur.“
HVAÐ SEGIR ANNA Á HESTEYRI
KOSTNAÐURINN VIÐ STJÓRNMÁLIN
Líkist mútum
ANNA MARTA GUÐMUNDSDÓTTIR BÓNDI Á HESTEYRI
Frétta- og upplýsingavefurinn
bakkafjordur.is hóf nýverið að
flytja fréttir frá Bakkafirði og
nágrenni á pólsku. Á þriðja tug
Pólverja býr á Bakkafirði og annar
eins fjöldi í nágrannabyggðunum
Vopnafirði og Þórshöfn og segist
Víðir Már Hermannsson, umsjón-
armaður vefsins, hafa fengið góð
viðbrögð við uppátækinu.
„Ég geri þetta svo að Pólverj-
arnir geti betur fylgst með því
sem er að gerast í sveitarfélag-
inu,“ segir Víðir Már, sem nýtur
aðstoðar hjónanna Sigríðar Óskar
Indriðadóttur og Krysztof Kraw-
cyk við þýðingar úr íslensku yfir á
pólsku.
Víðir Már hefur haft umsjón
með vefnum síðan í byrjun desem-
ber og sinnir því vandasama verki
samhliða vinnu sinni í ratsjárstöð-
inni í Gunnólfsvíkurfjalli.
Víðir Már segist ekki vita til
þess að aðrir vefir flytji fréttir á
pólsku en þó má geta þess að í
Textavarpi Ríkisútvarpsins eru
helstu fréttir á pólsku. „Pólverj-
arnir sem hér eru hafa flestir
keypt hér hús og eru því komnir
til að vera,“ segir Víðir Már og
bætir við að þeir setji sinn svip á
bæjarlífið.
Öllum helstu tíðindum er snar-
að yfir á pólsku og helst er í frétt-
um þessa dagana á bakkafjordur.
is að viðræður um sameiningu við
Þórshöfn standa nú yfir og Ingvar
Jónasson hefur keypt sér nýjan
bát. Þá eru nýjustu aflatölur vita-
skuld tíundaðar. Víðir Már segist
ekkert skilja í pólsku en vonar að
þýðendurnir fari sæmilega rétt
með. „Ég veit ekkert hvað stendur
þarna og það getur vel verið að
þau séu að skrifa illa um mig,“
segir hann og hlær.
-KK/BÞS
VELKOMIN TIL BAKKAFJARÐAR Pólverjar
geta nú lesið fréttir frá Bakkafirði á móð-
urmáli sínu.
VÍÐIR MÁR HERMANNSSON „Það getur vel
verið að þau séu að skrifa illa um mig.“
Fréttir frá Bakkafirði á pólsku
Unnið er að niðurrifi
tveggja stórhýsa sem bæði
eiga sinn kafla í athafna-
sögu Reykjavíkurborgar.
Stórvirkum vinnuvélum er nú beitt
á hús Lýsis við Grandaveg og Hrað-
frystistöðvarinnar við Mýrargötu.
Um árabil voru þetta með fjöl-
mennari vinnustöðum í vesturhluta
borgarinnar og af færiböndunum
streymdu verðmætar vörur sem
fluttar voru úr landi.
Lýsi hf. var stofnað 1938 og var
til húsa á Grandaveginum allt
fram á síðasta sumar þegar fyrir-
tækið flutti starfsemi sína í nýtt
hús við Fiskislóð.
Hús Hraðfrystistöðvarinnar í
Reykjavík við Mýrargötu var
byggt 1941. Hraðfrystistöðin var
lengi með blómlegri vinnustöðum
borgarinnar en árið 1990 var starf-
semi hennar sameinuð Granda.
Húsin tvö eru með síðustu stóru
iðnaðar- og athafnahúsum hverf-
anna sem þau stóðu í og er það til
marks um þróun borgarinnar að í
þeirra stað verða byggð íbúðahús,
þó ólík verði. Fyrirhugað er að reisa
hjúkrunarheimili fyrir aldraða á
Lýsislóðinni en nýtísku íbúðahús á
lóð Hraðfrystistöðvarinnar. - bþs
HAMAST Á STEYPU OG VÍRUM Síðustu vikur hefur verið unnið af kappi viður niðurrif gömlu
Lýsisverksmiðjunnar við Grandaveg en fyrirtækið hóf starfsemi 1938. Fyrirhugað er að
hjúkrunarheimili fyrir aldraða rísi á lóðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Steinsteypan brotin í mél
RUSLINU MOKAÐ UPP Hús Hraðfrystistöðv-
arinnar í Reykjavík var reist 1941 og þar var
fryst uns fyrirtækið sameinaðist Granda 1990.
Nýtísku íbúðahús verður byggt á lóðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? SIGURJÓN SAMÚELSSON BÓNDI OG PLÖTUSAFNARI
Óæskilegt að menn verði of gamlir
HEFUR LEITAÐ MEÐFERÐAR VIÐ SJ
ÚKLEGRI KLÁMFÍKN
FJÖLNISMENN HRINGDU Í BÖRNIN OG
ÚTSKÝRÐU BROTTHVARF ÞJÁLFARANS
Unglingaþjálfari leyndi fangelsisdómi fyrir barnaklám
BARNAKLÁMSFÍKILL
REKINN SEM
UNGLINGAÞJÁLFARI
EFTIR AFHJÚPUN DV
2x15 - lesið 8.3.2006 20:55 Page 1