Fréttablaðið - 09.03.2006, Side 24
9. mars 2006 FIMMTUDAGUR24
hagur heimilanna
Tvær leiðir eru færar hafi fólk áhuga að sjá síðustu leiki þessarar leiktíðar í enska
boltanum, bindisamningur út leiktímabilið eða venjuleg áskrift. Enginn munur er á
pökkunum tveimur nema að með bindisamningi er viðskiptavinur skuldbundinn til
að greiða út tímabilið til loka maí en fær í staðinn fimm hundruð króna afslátt.
Kostar hver mánuður þá 1.990 krónur. Venjulegri áskrift má segja upp
hvenær sem er en fyrir það greiðist aukalega og er mánaðargjaldið
2.495.
Þar sem sendingar eru aðeins gegnum Breiðbandið og ADSL-þjónustu
verður enn fremur að greiða aukalega fyrir þann aðgang. Síminn
afgreiðir til að mynda ekki sjónvarp gegnum ADSL nema gegn 12
mánaða binditíma og verð á þeirri þjónustu er aftur mismunandi.
Ódýrasti aðgangur kostar því 5.885 krónur á mánuði og er þá miðað
við mánaðargjald á heimasíma, ADSL-línu og áskriftina sjálfa.
Sé heimilið tengt Breiðbandi er hægt að fá myndlykil frían
gegn áskrift að enska boltanum og greiðist þá aðeins áskriftin.
■ Hvað kostar... áskrift að enska boltanum?
Ódýrara með bindisamning
Útgjöldin
Í tilefni þess að breska flugfélagið British Airways hefur reglulegt áætlunarflug
hingað til lands 26. mars næstkomandi hefur félagið ákveðið að bjóða 52 einstakl-
ingum í þriggja daga ferð til London ásamt hóteli og kvöldverði eitt kvöldið þeim
algjörlega að kostnaðarlausu. Allir eiga þess kost að taka þátt í leiknum með því einu
að skrá sig á vef félagsins en það verður að gerast fyrir miðnætti í kvöld. Munu hinir
heppnu fara út 26. mars og koma til baka 29. mars og er
hótelgisting alla dagana og þriggja rétta kvöldverður
lokakvöldið innifalið í ferðinni.
■ Verslun og þjónusta:
British Airways býður til London
Frá fyrsta mars síðastliðnum kostar það 65 krónur að fá upplýsingar um stöðu reikn-
inga hjá KB banka en þessi þjónusta hefur hingað til verið gjaldfrjáls.
Umrætt gjald þekkist einnig hjá Landsbanka og Sparisjóðnum en hefur hing-
að til ekki verið innheimt hjá KB banka. Ekkert slíkt gjald er tekið fyrir þjón-
ustuna hjá Íslandsbanka. Fram kemur í samtali við deildarstjóra viðskiptasviðs
KB banka á vefsíðu Neytendasamtakanna að með gjaldtökunni sé verið að
beina viðskiptavinum í netbanka og hraðbanka þar sem hægt sé að nálgast slíkar upp-
lýsingar án kostnaðar. Gjaldið eigi hins vegar ekki við um viðskiptavini eldri en 65 ára.
■ Verslun og þjónusta:
Nýtt þjónustugjald KB banka
„Ja, stórt er spurt. Það er nú ekki hlaupið að því að
svara þessu, maður er slíkur neyslubolti,“ segir Tolli
en svo tekur við smá bið. Blaðamaður spyr hvort
hann vilji ekki hafa þetta á bak við eyrað í hálftíma
og svo hringi hann aftur. „Reyndu það,“ segir Tolli.
Hálftíma síðar er minning um verstu kaupin orðin
kristaltær í huga Tolla. „Verstu kaupin voru þegar ég
keypti Audi-bíl. Ég hef átt tugi ef ekki hundruð bíla
og alltaf er maður að gera bestu kaupin en svo
verða þau oft verstu kaupin. Þessi Audi, ég
var búinn að liggja undir honum í lengri
tíma og þá fór ég norður á Akureyri og
þar upp í Hlíðarfjall. Þar sem ég er að
aka niður fjallið þá sé ég allt í einu að
það eru rjúkandi hlutir að rúlla undan
bílnum. Þá var græjan að liðast í
sundur í fjallinu. Ég hirti upp járnið,
rauðglóandi, og kom svo bílnum niður
á höfn. Ég var í svo mikilli afneitun um
að þetta væri ónýtur bíll að ég tók far með
bílinn til Reykjavíkur með Ríkisskipum. Bíllinn var
ónýtur en það átti samt að reyna að koma honum
saman. Og ekki er ég neinn mekaniker og bíllinn
endaði auðvitað í brotajárni.“
Bestu kaupin hans Tolla áttu sér stað nýlega.
Hann er búinn að leita lengi að landi á Suðvestur-
landi þar sem hann ætlar að byggja sér heimili. Land-
ið varð að liggja að vatni og fleiri kröfur gerði hann
einnig. Þolgæði hans skilaði sér um síðir og hann
fann loksins land við Meðalfellsvatn í Kjós, aðeins
stutt þaðan sem rætur hans liggja. „Þetta var
eina fáanlega spildan frá Vík í Mýrdal og upp
í Borgarfjörð. Ég er alveg rosalega ánægður.
Það er erfitt að fá svona lóðir nema í ein-
hverjum sumarbústaðagettóum eða uppi á
heiði einhvers staðar. Þetta myndi ég skrá
sem mín bestu kaup.“ Við vatnið ætlar hann
að búa og reisa sér vinnustofu eða
„bækistöð í náttúrunni“, eins og
hann kallar það.
NEYTANDINN: TOLLI MORTHENS MYNDLISTARMAÐUR
Bækistöð í náttúrunni
Töluvert er um að fólk
notfæri sér þjónustu endur-
skoðenda og bókhaldsstofa
við gerð skattframtals.
Algengt viðhorf er að
slík þjónusta geti marg-
sparað það sem hún
kostar, að sögn Þóris
Arnar Ólafssonar, við-
skiptafræðings hjá Debet
- endurskoðun og reiknings-
skilum.
Þórir telur aðgengi og framsetn-
ingu upplýsinga góða hjá Ríkis-
skattstjóra en eðlilegt sé að fólk
leiti sér aðstoðar við þetta saman-
borið við að fólk leiti sér þjónustu
fyrir bílaviðgerðir, það sé ekki
hægt að vera bestur í öllu.
Opnað var fyrir framtalsgerð á
vef Ríkisskattstjóra miðvikudag-
inn 1. mars og og er almennur
skilafrestur á framtölum einstakl-
inga til 21. mars. Hægt er að sækja
um aukinn frest til að skila vef-
framtali sem getur orðið lengstur
til 31. mars.
Þjónustustig Ríkisskattstjóra
hefur farið vaxandi á undanförn-
um árum og sérstök áhersla lögð á
rafræn skil. Á undanförnum árum
hefur sífellt færst í vöxt að fólk
kjósi að skila skattframtalinu á
vefnum í stað pappírs og í fyrra
skiluðu níutíu prósent framtelj-
enda á vefnum. Helstu nýmæli við
framtalsgerðina í ár felast í auk-
inni forskráningu upplýsinga á
skattframtalið.
Þórir bendir á að með aukinni
forskráningu í skattframtöl geti
fylgt að fólk kvitti bara fyrir án
þess að kynna sér almennilega
hvort það hafi rétt á einhverjum
frádrætti frá gjöldum enda ekki
alltaf á færi almenns launamanns
að vita hverju hann hefur rétt á.
Það að fá einhvern til að vinna
framtal fyrir sig sem kann til
verka getur skilað margföldum
ávinningi til baka.
Þórir segir ekki algengt að for-
skráðar upplýsingar séu rangar
en það geti komið fyrir. Hann
tekur bifreiðaupplýsingar sem
dæmi en þær hafa ekki alltaf verið
réttar þegar afskráðar bifreiðar
hanga enn inni á forskráðum fram-
tölum. En það veltur á launagreið-
endum og stofnunum hversu vel
uppfærðar upplýsingarnar eru. Í
leiðbeiningum með skattframtal-
inu er fólk hvatt til þess að sann-
reyna allar forskráðar upplýsing-
ar.
Útfærsla skattframtala og
þjónusta við hana á Íslandi er
langt á undan öðrum löndum að
mati Þóris. Í samanburði við hin
Norðurlöndin, sem almennt teljast
standa mjög framarlega meðal
þjóða í þessum málum, er Ísland
þar fremst í flokki. Niðurstöður
samantektarskýrslu, sem var
unnin í MBA-námi í Háskólanum í
Reykjavík og kynnt í fyrra, sýna
fram á leiðandi stöðu Íslands í net-
framtölum miðað við Norðurlönd-
in. sdg@frettabladid.is
ÞÓRIR ÖRN ÓLAFSSON VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR Segir starfsemi Ríkisskattstjóra varðandi
skattframtöl til fyrirmyndar. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Getur borgað sig að leita
aðstoðar með framtalið
Könnun Mann-
eldisráðs frá 2002
sýnir að auka þarf
ávexti, grænmeti
og sjávarfang í
mataræði okkar
Íslendinga.
Fisk neyslan hefur
dregist saman á
síðustu áratugum,
mest hjá ungu fólki, um allt að þrjátíu
prósent frá 1990. Það er ekki langt
síðan við gátum státað okkur af að
borða hvað mest allra þjóða af fiski
og töldum sjávarafurðirnar eiga stóran
þátt í góðu heilsufari og langlífi. Mikl-
ar breytingar hafa orðið í sjávarútvegi
síðustu árin, tiltölulega fáir Íslendingar
vinna við fiskvinnslu sem hefur aukið
fjarlægð okkar frá fiskinum. Mestall-
ur fiskur er fluttur úr landi og of fáir
virðast hafa hag af aukinni fiskneyslu
innan lands. Í sérverslunum með fisk
er úrvalið gott, en aðgengi að fiski
er misgott í landinu og ekki er mikil
hvatning til að borða fisk. Það er helst
á sumrin í tengslum við Fiskidag-
inn mikla á Dalvík sem talað er á
jákvæðan hátt um fisk í fjölmiðlum. Í
raun ættum við að hampa þorskinum
oftar og þakka honum reglulega allt
sem hann hefur gefið okkur, heilsu og
veraldleg auðæfi.
Staðreyndin er sú að ef við
missum fiskmetið út úr mataræðinu
verður fæðið rýrara. Fiskur er mein-
hollur, ekki einungis fyrir hjarta- og
æðakerfi heldur einnig fyrir heilann.
Hafið í kringum landið er tiltölulega
hreint og varasöm efni í íslensku
sjávarfangi eru langt undir þeim
mörkum sem talin eru varasöm. Því
er fiskurinn ákjósanlegt byggingarefni
fyrir líkamann.
Við þurfum að gera átak til að
auka neyslu fiskmetis og því er rétt
að hvetja alla til að kenna börnunum
að borða fisk. Skólamötuneyti og
matreiðslukennsla er kjörinn vett-
vangur til að sýna ungu fólki alla þá
fjölbreytni sem fiskur hefur upp á að
bjóða. Við neytum mest af mögrum
tegundum, eins og ýsu og þorski,
en af nógu er að taka og æskilegt
væri að bæta við feitum tegundum
eins og laxi og steinbít. Nóg er til
af uppskriftum með fiski, þar má
benda á sjávarréttarsíður Rannsókn-
arstofnunar fiskiðnaðarins, www.rf.is,
en þar er mikið úrval af uppskriftum
úr ýmsum fisktegundum, m.a. háfi,
rauðmaga, rauðsprettu og fleiri sjald-
séðum tegundum.
Fiskurinn er raunveruleg auðlind
okkar Íslendinga. Fiskurinn í kringum
landið er ekki bara kvóti sem hægt
er að deila endalaust um, nei,
fiskurinn er áþreifanleg auðlind allra
landsmanna.
■ Ólína Þorvarðar-
dóttir, skólameistari
Menntaskólans á Ísa-
firði, segist luma á fullt
af húsráðum. Sérstak-
lega kunni hún gott ráð
við eyrnaverk.
„Til dæmis ef barnið þitt er með
eyrnaverk er gott að sjóða lauk í fimm
mínútur, skera hann svo í fjóra hluta,
setja hann heitan inn í þvottapoka og
láta svo barnið liggja með veika eyrað á
þvottapokanum. Þetta er ráð sem bregst
ekki. Svo er ég með gott ráð við vörtu.
En þá er gott að stinga vörtunni, hvort
sem hún er á tá eða fingri, í sláturvömb.
En þá er betra að henda vömbinni að
því verki loknu,“ segir Ólína og hlær við.
GÓÐ HÚSRÁÐ
AÐ LOSNA VIÐ VÖRTU
OG EYRNAVERK
MATUR & NÆRING ÓLÖF HAFSTEINSDÓTTIR MATVÆLAFRÆÐINGUR
Aukum fiskneyslu
9,
6
K
G
7,
5
K
G
7,
6
K
G
* á mann
1960 1990 2004
Kaffineysla Íslendinga