Fréttablaðið - 09.03.2006, Qupperneq 31
Heimild: Almanak Háskólans
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL.
Svavar Örn Svavarsson
fylgist vel með tískunni
og veit hvað er flottast
hverju sinni. Uppáhaldið
hans núna er hálsklútar
sem hann segist nota
mikið.
Svavari finnst Íslendingar
almennt vera mjög meðvitað-
ir um tískuna og fara eftir
henni. „Mér finnst mjög
skemmtilegt hvað við erum
snögg að tileinka okkur tísk-
una miðað við marga aðra,“
segir hann.
Svavar segist aðallega
kaupa föt á Íslandi en ekki
vera einn af þeim sem kaupa
bara föt í útlöndum. „Ég hef
ekkert efni á Gucci eða Prada
svo ég get alveg eins keypt
mér föt hérna heima. Búðirn-
ar hérna standast fyllilega
samanburð við verslanir
erlendis og margar þeirra
eru að fá nýjar sendingar
vikulega. Ég fæ alltaf góða
þjónustu og mér finnst mjög
gott að versla hérna. Íslend-
ingar mættu vera duglegri
við að notfæra sér þjónustu
starfsfólks verslana því það
er mjög mikil hjálp í því.“
Uppáhaldsverslun Svav-
ars er Sautján. „Mér finnst
mjög gott að versla í þar og
svo finnst mér líka gaman að
fara í GK og All Saints. Ég er
duglegur að notfæra mér
þjónustu starfsfólksins og í
Sautján þekkir einn sölumað-
urinn mig og lætur mig vita
ef að koma vörur sem henta
mér.“
Svavar keypti sér síðast
belti í Sautján og þverrönd-
óttan bol. „Beltið er alveg
æðislegt. Bolurinn hins vegar
gerir ekki mikið fyrir bumb-
una á mér en af því að rönd-
ótt er í tísku þá treð ég mér í
hann,“ segir hann og hlær.
Svavar segir að svört
jakkaföt séu ómissandi í fata-
skápinn. „Það er gott að eiga
jakkaföt í fleiri en einni
stærð. Ég stækka um nokkur
fatanúmer á milli vikna
þannig að ég þarf að eiga
jakkaföt í small, medium og
large. Ég er mjög hrifinn af
stuttum dálítið kvenlegum
jökkum þessa dagana.“ Hann
segist líka vera með með
hálsklútaæði núna. „Háls-
klútar eru mjög smart og ég
nota þá mikið.“
Þrátt fyrir að hafa mikið
vit á tískunni segist Svavar
ekki hugsa mikið um hana
þegar hann er heima hjá sér.
„Þegar ég er heima finnst
mér best að vera bara í nógu
stórum fötum,“ segir hann.
emilia@frettabladid.is
Hugsar ekki
um tísku heima
Ungabörn kljást við mun flóknari
tilfinningar en áður var haldið.
Ný rannsókn sýnir að áður en
ungabörn byrja að tala eða sitja
óstudd eru þau farin að kljást við
tilfinningar eins og afbrýðisemi,
kærleik og vonbrigði en áður var
talið að börn upplifðu þetta ekki
fyrr en seinna á ævinni. Þetta
kemur fram í nýlegri rannsókn.
www.persona.is
Lindsey Lohan er líkleg
til að verða næsta
andlit í auglýsinga-
herferð fyrir Louis
Vuitton. Lohan
hefur áður
komið fram í
auglýsingum
fyrir Dooney
& Bourke,
bandarískan
töskufram-
leiðanda.
Raddir hafa
einnig heyrst
að Keira
Knightley
verði næsta
andlit Chanel en tíminn einn
mun leiða í ljós sannleikann í
því máli.
Borgholm-leðursófar eru á
tilboði hjá Ikea. Um er að ræða
tveggja til þriggja sæta leðursófa
á verðbilinu 50 til 60 þúsund
krónur. Sófana má skoða á
www.ikea.is.
ALLT HITT
[TÍSKA HEIMILI HEILSA]
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 8.08 13.38 19.10
Akureyri 7.55 13.23 18.53
GÓÐAN DAG!
Í dag er fimmtudagurinn
9. mars, 68. dagur ársins
2006.
Notaðir Bílar - Bíldshöfða 10
587-1000 - Bílasalan Skeifan
Mercedes Bens ML-350
Nýskráður 8.2005
Ekinn 11.000 km.
Sjálfskiptur, glertopplúga, ESP stöðuleikarbúnaður,
leðuráklæði, leiðsögukerfi, litað gler, innbyggður sími,
hraðastillir, rafdrifin sæti, o.m.fl.
Tilboð kr. 5.390.000,-
Svavar Örn Svavarsson notar hálsklúta mikið
þessa dagana.FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
FALLEG LISTAVERK
Á GÓÐU VERÐI
Af hverju að eyða stórum fjár-
fúlgum í málverk þegar hægt er
að fá skemmtilegar eftirprentanir
til að prýða heimilið?
HEIMILI 10
FLIPP OG FÁGUN
Í KRONKRON
Um helgina opnar stækkuð
verslun með nýjum vöru-
merkjum. TÍSKA 4