Fréttablaðið - 09.03.2006, Qupperneq 37
FIMMTUDAGUR 9. mars 2006
Gallabuxur eru sú flík sem
flestir telja ómissandi í fata-
skápinn.
Nýtt merki í galla-
buxnabransanum,
Paige Premium,
kom fram á sjón-
arsviðið fyrir um
það bil ári síðan
og hefur slegið
rækilega í
gegn. Sú sem
stendur á
bak við
Paige
Premi-
um er
ungfrú
Paige
Adams Geller
sem um ára-
raðir var eitt
heitasta galla-
buxnamódelið fyrir stór merki
eins og Seven og True Religion.
Paige-buxurnar eru til í
nokkrum útfærslum, sniðum og
litum en það sem einkennir hönn-
un þeirra allra er að leitast er við
að afturendinn taki sig sem best
út. Til dæmis er mittið hærra en
maður á að venjast, alls ekki of
þröngt, rassvasarnir eru á rétt-
um stað og buxurnar eru pass-
lega þröngar yfir lærin. Allt
þetta hjálpar til við að láta konum
líða sem best í gallabuxunum og
„fíla sig í botn“.
Fyrstu Paige-gallabuxurnar
voru að berast í Whistles í
Kringlunni, passlega dökkbláar,
temmilega snjáðar og pínulítið
útvíðar sem er skemmtileg við-
bót við allar niðurþröngu bux-
urnar sem hafa tröllriðið mark-
aðnum. Fleiri útfærslur eru svo
væntanlegar á næstu vikum og
það verður gaman að sjá hvað
Paige Premium býður upp á fyrir
hásumarið.
Grúví
gallabuxur
Gallabuxurnar kosta
19.900 kr. og fást í
Whistles.
Breska leikkonan Keira
Knightley vakti heldur betur
athygli á Óskarsverðlauna-
hátíðinni.
Óskarsverðlaunahátíðin snýst ekki
bara um einhverja styttu. Hún
snýst líka um það hver var í flott-
asta kjólnum, hver var með flott-
ustu hárgreiðsluna og hver hélt
flottustu ræðuna. Hin unga Keira
Knightley var ein af þeim sem
vöktu töluverða athygli. Ekki ein-
göngu var hún tilnefnd fyrir leik
sinn í myndinni Pride & Prejudice
heldur þótti hún einnig afar glæsi-
leg til fara.
Einna mestu eftirtektina vakti
demantshálsmen sem hún bar.
Mörgum fannst hins vegar skrýtið
að hún bæri hálsmenið, sem var
frá Bulgari, þar sem Knightley er
andlit Asprey. Talsmaður Asprey
sagði hins vegar eftir hátíðina að
ekki væri um samningsbrot að
ræða. Knightley væri eingöngu
andlit Asprey en ekkert í samningi
þeirra á milli skyldaði Knightley
til þess að bera skartgripi frá Asp-
rey. Hefur Knightley mátt sæta
nokkru ámæli vegna þessa.
Því má einnig bæta við að á síð-
ustu Bafta-hátíð bar Knightley
skartgripi frá Cartier. Þrátt fyrir
þessa ótryggð Knightley gerast
þær raddir alltaf háværari og
háværari þess efnis að hún verði
næsta andlit Chanel. Greinilegt að
það er hægt að komast upp með
ýmislegt ef maður er nógu fræg-
ur.
Ekki við eina fjölina felld
Keira Knightley var ein þeirra sem þóttu
bera af varðandi klæðnað á seinustu Ósk-
arsverðlaunahátíð. NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Gríptu
með þér
góða
kvikmynd
-og horfðu
þegar þér
hentar
48DVD fæst á bensínstöðvum Olís, í Hagkaup og 10-11
Nú getur þú leigt þér kvikmynd
um leið og þú tekur bensín
eða kaupir í matinn og horft á hana
þegar þér hentar.
48DVD diskinn er hægt að spila
í 48 tíma eftir að sýning hefst.
Eftir það er leigutími kvikmyndarinnar
útrunninn og diskurinn er ónýtur.
-og þú þarft ekki
að skila henni