Fréttablaðið - 09.03.2006, Page 44
4
Sjö millimetra hvítagullshringar frá Siggu & Timo. Nöfn eru áletruð utan á hringana.
Átta millimetra hringur úr hvítagulli frá
Siggu & Timo. Demantar, þrettán punkta,
liggja langsum á dömuhring.
Sex mm gullhringar frá Siggu & Timo. Kven-
hringur er með sex punkta demöntum.
Það heyrir til algjörra undantekn-
inga að fólk gifti sig án þess að setja
upp hringa. Eins og í flestu öðru eru
sveiflur í hringavali frá ári til árs.
Ólína Þorvaldsdóttir, verslunar-
stjóri Siggu & Timo, segir hringana
í breiðari kantinum þetta árið, oft
um sex til sjö millimetra á breidd.
Bæði séu þeir teknir flatir og kúpt-
ir þó hið síðarnefnda sé alltaf vin-
sælla og klassískara. Talsvert hefur
verið um að fólk taki sér hringa úr
hvítagulli en Ólína segir gullið vera
að koma sterkt inn aftur.
Ekki eru dömu- og herrahring-
arnir alltaf eins. Misjafnt er hvað
klæðir fólk og karlmenn taka oft
breiðari hringa fyrir sig. Hins vegar
hefur mikið borið á því upp á síð-
kastið að settur sé steinn í kven-
hringinn og er það þá yfirleitt dem-
antur. Algengt er að skrifað sé inn
í hringana en nú láta margir grafa
nöfn utan á þá.
Ekki vilja þó allir hefðbundna
giftingarhringa og geta þeir
þá meðal annars leitað í
Gullsmiðju Ófeigs. Ófeig-
ur kveðst ekki stíla inn á
giftingarmarkaðinn en
bjóða þó fólki upp á
sérsmíðaða giftingar-
hringa ef fólk kjósi.
Þá geti hann lítið
sagt um tísku-
bylgjur í gift-
ingarhringum
þar sem fólk
sem komi til
hans kjósi
sérstaka og
óhefðbundna
hringa.
Breiðari hringar þetta árið
Breiðir giftingarhringar eru vinsælir þessa dagana. Algengast er að herrahringarnir séu
látlausari en dömuhringarnir.
Átta millimetra hringur úr hvítagulli frá
Siggu & Timo. Demantar, fjögurra punkta,
liggja í þverrönd á dömuhring.
Sex millimetra
gullhringar frá
Siggu & Timo.
Dömuhringur hefur
25 punkta demant.
Silfurhringar frá Gullsmiðju Ófeigs, hvort
sem er fyrir dömur eða herra. Inni í átján
karata gullferhyrningnum er demantur.
Silfur- og bronshringar frá Gullsmiðju Ófeigs. Hringarnir eru hvort sem er fyrir herra eða
dömu.
Kvenhringinn klæðir röð af demöntum, um eitt karat, en herrahringurinn er látlaus. Hringarnir eru úr hvítagulli frá Siggu & Timo.
■■■■ { stóri dagurinn } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Hlutverk veislustjóra er viðamikið
og hefur hann í mörg horn að líta
svo allt gangi snurðulaust fyrir sig.
Best er að veislustjórinn sé glað-
lyndur og skemmtilegur en ekki má
gera það að aðalatriði að hann sé
fyndinn. Skemmtiatriði eru yfir-
leitt í annarra höndum. Mestu máli
skiptir að hann sé skipulagður og
hafi góða yfirsýn yfir gang mála.
Veislustjóri þarf að sjá um að taka á
móti gestum og sjá til þess að borð-
haldið gangi vel fyrir sig og ræðu-
höld og skemmtiatriði séu kynnt til
leiks á réttum tíma.
HLUTIR SEM BER AÐ HAFA Í
HUGA VIÐ VEISLUSTJÓRN:
1. Ef veisla er haldin í sal ætti
veislustjóri að líta við í salnum
áður og athuga hvernig salurinn
er uppsettur, sjá hvort hljómflutn-
ingstæki eru í góðu lagi og slíkt.
2. Veislustjóri þarf að skrifa niður
hjá sér punkta. Hann ætti að hafa
nöfn brúðhjónanna skrifuð hjá sér,
ásamt nöfnum foreldra og jafnvel
systkina.
3. Veislustjóri tekur á móti gestun-
um við upphaf veislunnar, slær á
létta strengi og kynnir dagskrána.
Hann sér einnig um að stýra því að
það sé skálað.
4. Hann skráir hjá sér nöfn þeirra
sem vilja halda ræður og eru með
skemmtiatriði. Gott er að skipu-
leggja ræðuhöldin vel. Ekki má
hafa of þétt prógramm, því fólk
þarf að fá færi til þess að spjalla
saman á milli. Atriði og ræður
sem krefjast þess að fólk hlusti
af athygli ættu að koma snemma
í veislunni, þar sem fólk miss-
ir gjarnan athyglina þegar líða
tekur á kvöldið, sérstaklega þegar
vín er haft um hönd og jafnvel
fiðringur kominn í fólk sem vill
dansa.
5. Ekki er gott ef borðhald dregst
langt fram eftir kvöldi, þannig að
veislugestir séu orðnir órólegir eða
borðhaldið jafnvel búið að leysast
upp áður en kemur að eftirrétt-
inum. Mikilvægt er að drífa það
áfram, en þó ekki meira en svo að
fólk fái tækifæri til að njóta matar
síns.
6. Brúðkaup eru jafn misjöfn
og þau eru mörg. Stundum er
það mikið af skemmtiatriðum að
veislustjórinn gerir lítið annað en
að kynna þau. Stundum er afar
lítið um skemmtiatriði og mest um
þurrar ræður. Þá þarf veislustjóri
aldeilis að grípa í taumana og jafn-
vel stýra skemmtilegum leikjum og
segja gamansögur.
Léttlyndur og
skipulagður
Starf veislustjóra í brúðkaupsveislum er afar mikilvægt
og skiptir máli að vera vel undirbúinn.
Veislustjóri þarf að stýra því að reglulega sé skálað í veislunni. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Heill heimur af rómantík og glæsileika
Brúðargjafir og brúðargjafalistar
Dúkar og skraut á veisluborðið
Bæjarlind 6, Kóp.
s. 5347470 • www.feim.is
Opi› virka daga 10-18
og laugardaga 10-16