Fréttablaðið - 09.03.2006, Page 57
FIMMTUDAGUR 9. mars 2006 11
Nú þyrfti aldeilis að taka til hendinni
heima við þar sem sólin er farin
að skína og lýsir upp allt rykið sem
safnast hefur á hillur og gólf yfir
veturinn.
Fyrir utan að skúra, skrúbba og
bóna er ágætt að gefa heimilinu
vorupplyftingu. Með hækkandi sól
er gott að draga frá gluggum, losa
sig við þung teppi og kaupa nokkrar
inniplöntur til að gera heimilið
iðagrænt. Skipta má um diskamott-
ur, servíettur og annað smálegt sem
gefur skemmtilega vorstemningu.
Páskarnir eru líka á næsta leiti og því
ekki úr vegi að gera gult að þema-
litnum í komandi vorhreingerningu.
heimilið }
Hreingerning
Ef þú ert kominn með leið á
flísunum heima hjá þér er um
að gera að mála þær.
Það er ekki mikið mál að mála
flísar en það krefst góðs undir-
búnings. Mikilvægt er að þrífa
flísarnar mjög vel og skipta um
þær sem eru lausar. Einnig skal
pússa yfirborð þeirra ef þær eru
glansandi og nota sveppaeyði ef
nauðsyn krefur. Ef flísarnar hafa
verið málaðar áður skal skrapa
málninguna af.
Áður en málað er þurfa flísarn-
ar að vera orðnar alveg þurrar.
Eingöngu ætti að nota pensla með
gervihárum. Grunnið með vatns-
þynnanlegum grunni. Málið alltaf
í sömu áttina, annaðhvort lóðrétt
eða lárétt. Þegar grunnurinn
hefur þornað skal strjúka yfir
hann með fínum sandpappír og
tusku með smá terpentínu. Málið
svo aftur yfir með grunni og end-
urtakið allar aðgerðir. Næst er
málað yfir og eru reglurnar þær
sömu og fyrir grunninn og passa
þarf vel upp á að hylja grunninn
alveg svo hann leysist ekki upp
við raka.
Innihaldsmeiri lýsingar má
finna á www.husasmidjan.is.
Flísar skipta um lit
Mikilvægt er að þrífa flísarnar vel áður en hafist er handa.
Reykingalykt
Hægt er að minnka stórlega reyk-
ingalykt eftir veisluhöld með því að
setja glös á alla ofna stofunnar með
blöndu til helminga af ediki og vatni.
Best er að vera búinn að láta glösin
á ofnana áður en gestirnir koma og
láta þau standa til næsta morguns.
Skítugar hansagardínur
Það er ósköp leiðinlegt að þrífa
skítugar hansagardínur og það vita
ekki allir að til er frábært tæki sem
gerir þetta verk að leik einum. Þetta
er nokkurs konar rykkústur sem fæst
meðal annars í Ikea. Kústurinn fer
milli rimlanna og þurrkar rykið. Hrein
snilld.
Blettir á parketi
Stundum koma blettir á parketið
undan til dæmis húsgögnum eða
blómapottum. Yfirleitt má losna við
þessa bletti bara með blautri tusku.
Sömuleiðis getur verið sniðugt að
setja smávegis borðedik í tuskuna.
Skerpum skærin
Ef skærin eru orðin bitlaus er hægt
að klippa álpappír eða sandpappír
með þeim. Það skerpir þau. Þetta
ráð er einnig hægt að nota á nálar í
saumavélar. Saumið nokkrum sinn-
um yfir sandpappírinn á sex mánaða
fresti og nálarnar ættu að endast
von úr viti.
Húsráð