Fréttablaðið - 09.03.2006, Side 67
FIMMTUDAGUR 9. mars 2006 31
UMRÆÐAN
ÓPERUHÚS
MAGNÚS HELGI BJÖRGVINSSON
Ég vil leyfa mér að gera
nokkrar athugasemdir við
þessar fyrirætlanir hans sem
Kópavogsbúi og skattgreiðandi
í Kópavogi.
Nú síðustu mánuði hefur bæjar-
stjóri Kópavogs farið mikinn í
fjölmiðlum og kynnt fyrir okkur
hugmynd sína um byggingu
óperuhúss í Kópavogi. Nú síðast
heyrðist að hann væri búinn að
safna allt að 800 milljónum, í
byggingarkostnað hússins. Og
þar af eru víst 400 milljónir á
rekstraráætlun Kópavogs til
næstu þriggja ára.
Ég vil leyfa mér að gera
nokkrar athugasemdir við þess-
ar fyrirætlanir hans sem Kópa-
vogsbúi og skattgreiðandi í
Kópavogi. Hefur verið kannað
hver byggingarkostnaður við
slíkt hús er? Ég gæti sem best
trúað því að slíkt hús fyrir 700
áhorfendur kosti ekki undir
rúmum milljarði. Hef heyrt að
Gunnar hafi sagt að Kópavogur
ábyrgist það sem útaf stendur.
Hver á að sjá um rekstur slíks
húss? Er það Íslenska óperan?
Mér hefur nú skilist að henni
hafi nú ekki gengið vel að standa
undir rekstri í „Gamla Bíó“ þrátt
fyrir styrki frá Ríkinu og fleir-
um. Ég minni á að Leikfélag
Reykjavíkur ætlaði líka að reka
Borgarleikhúsið á sínum tíma,
en raunin var sú að það gekk
ekki og Reykjavíkurborg hefur
þurft að standa að baki þeiim
með hundruð milljóna framlagi
ár eftir ár. Hefur verið kannaður
rekstrargrundvöllur óperuhúss?
Hvað eru t.d. margir sem líkleg-
ir eru til að sækja óperusýning-
ar? Ég leyfi mér að efast um að
þeir skipti mörgum tugum þús-
unda. Og hvað þá þegar húsið
kemur að hluta til með að keppa
við tónlistarhús í Reykjavík, því
að þau keppa væntanlega bæði
um að ná til sín tónlistaráhuga-
fólki?
Hvað með staðsetningu húss-
ins? Að troða því upp við Borg-
arholt, eitt af kennileitum Kópa-
vogs sem er friðað og þrengja
enn að Kópavogskirkju. Hvað
með bílaumferð og bílastæði?
Kirkjan, Salurinn, Gerðarsafn,
bókasafnið, og svo tómstunda-
húsið hljóta að keppa um þessi
bílastæði. Þarna gætu orðið á
stórum ráðstefnum kannski allt
að 1000 manns á kannski 700
bílum og svo er kannski jarðar-
för í kirkjunni. Verður farið að
keyra fólk til að vera við jarðar-
farir í rútum?
Þetta eru bara nokkrar spurn-
ingar sem ég vil fá svör við. Eins
vil ég vita af hverju bær sem
hefur augljóslega svona mikið
fjármagn í gæluverkefni bæjar-
stjóra, er svo dýrasta bæjarfélag
hér á höfuðborgarsvæðinu fyrir
barnafólk (sbr. Könnun ASÍ og
Kastljóss). Er kannski kominn sá
tími í sögu Kópavogs að hér ríkir
einræðisherra og byggir sér
bautasteina (óperuhús og knatt-
spyrnuhallir) á kostnað okkar?
Það er algjört lágmark að við
fáum að vita meira um þetta mál
áður en ákvarðanir eru teknar. ■
BRÉF TIL BLAÐSINS
Óperuhús í Kópavog
Elís Björgvin Hreiðarsson skrifar:
Ég var að tala við kunningja sem býr í
Alaska þar sem er myrkur eins og hér á
veturna, og þeir eru með bílabíó sem
byrjar klukkan þrjú á daginn og stendur
til tvö að nóttu. Spurningin er af hverju
hugkvæmist engum að koma sér upp
bílabíói með góðri aðstöðu hér á Fróni.
Ég er viss um að það yrði vinsælt. Ég
man að þetta var reynt fyrir einhverjum
árum síðan niður við höfn en veit ekki
af hverju þetta var ekki þróað áfram. Ég
legg til að fram fari umræða um þetta
sem allra fyrst svo hægt sé að sjá hversu
mikill áhuginn er.
J.M.G. skrifar:
Jónas Kristjánsson er færasti blaðamað-
ur landsins nú. Það gengur ekki að hann
sé án blaðs. DV þarf að fá hann aftur til
starfa og það án tafar. Á sínum tíma braut
Jónas blað í sögu blaðaútgáfu á Íslandi.
Þess verður lengi minnst og merkið sem
hann reisti má ekki falla.
Þórarinn hringdi:
Ég vil koma þökkum til strákanna á Esso
í Borgartúninu. Svo er mál með vexti að
miðstöðin í bílnum mínum var farin að
leka og mengunin barst um allan bíl, svo
ekki var gefið að maður ætti afturkvæmt
úr sunnudagsbíltúrnum. Ég sá fram á
stórfelld fjárútlát, enda eru bifvélavirkjar
einkar lunknir við að finna nýja kvilla á
bílnum eftir að hafa fengið hann á skurð-
arborðið. Þegar ég sagði strákunum á
Esso frá þessu voru þeir ekki lengi að
benda mér á að setja bara vatnskassa-
þétti á bílinn, það ætti að þétta miðstöð-
ina og skrúfa fyrir útblásturinn. Það er
skemmst frá því að segja að þetta gekk
eins og í sögu og ég get dregið öndina
með léttum leik.
AUGL†SINGASÍMI
550 5000