Fréttablaðið - 09.03.2006, Side 70

Fréttablaðið - 09.03.2006, Side 70
 9. mars 2006 FIMMTUDAGUR34 timamot@frettabladid.is Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og sonur, Hjálmur Sigurjón Sigurðsson Mánabraut 5, Skagaströnd, lést á heimili sínu 2. mars og verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 10. mars klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Geðhjálpar í síma 570 1700. Sigríður Rut Sigurðardóttir Guðbjörg Hjálmsdóttir Harpa Hjálmsdóttir Brett Harris Ólafur Freyr Hjálmsson Ásdís Hjálmsdóttir Guðbjörg Hjálmsdóttir Sigurður Sigurjónsson ANDLÁT Jóhann Kristinn Gunnarsson frá Flatey á Skjálfanda, Garðarsbraut 57, Húsavík, lést á Heilbrigðis- stofnun Þingeyinga föstudaginn 3. mars. Ágúst Helgason húsgagnabólstr- ari, síðast til heimilis á hjúkrunar- heimilinu Eir, lést á Landspítalan- um við Hringbraut sunnudaginn 5. mars. Helga Jónsdóttir, dvalarheimilinu Hlévangi, Keflavík, lést sunnudag- inn 5. mars. Klemenz Halldórsson bóndi, Dýrastöðum, Norðurárdal, lést á heimili sínu föstudaginn 3. mars. Magnús Heimir Gíslason, Granaskjóli 80, Reykjavík, varð bráðkvaddur á heimili sínu föstu- daginn 3. mars. JARÐARFARIR 13.00 Guðmundur Jónsson vélfræðingur, Dalbraut 20, Reykjavík, verður jarðsung- inn frá Bústaðakirkju. 13.00 Rannveig Sigurðardóttir, Lautarsmára 1, Kópavogi, verður jarðsungin frá Vídal- ínskirkju í Garðabæ. 15.00 Ragna Lísa Eyvindsdóttir (Góa), Borgarheiði 13v, Hveragerði, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju. 15.00 Haraldur Sigurjónsson, Eyjabakka 26, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík. 15.00 Guðrún Jónsdóttir, Bakka- flöt 14, Garðabæ, verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík. Margrét Kristín Pétursdóttir leikkona er 44 ára. Símon Helgi Ívars- son gítarleikari er 55 ára. AFMÆLI Guðjón Friðriksson sagnfræðingur er 61 árs. Á þessum degi árið 1950 hélt Sinfóníuhljómsveit Íslands sína fyrstu tónleika í Austurbæjar- bíói. Margir vísar höfðu verið að hljómsveit „Íslendinga“ en það sem þessi hljómsveit hafði umfram aðrar sem fyrr höfðu komið var að hún starf- aði eftir samþykkt útvarpsráðs. Samkvæmt samþykktinni voru tuttugu og fimm hljóðfæraleik- arar ráðnir til starfa í sveitinni og auk þeirra léku í henni hljóðfæraleikarar sem áður höfðu verið á samningi hjá Ríkisútvarpinu. Rekstur sveitarinnar gekk þó ekki sem skyldi fyrstu árin því hún hafði engin föst fjárframlög. Meðlimir hennar þáðu afskaplega lág laun fyrir að leika í sinfóníuhljómsveitinni og þurftu því allir að hafa önnur störf til að framfleyta sér. Eftir að rekstur hennar hafði stöðv- ast í fimm mánuði einungis nokkrum árum eftir stofnun var hún gerð að sjálfstæðri stofnun með tiltekin framlög frá Ríkisútvarpinu, Þjóðleikhús- inu, íslenska ríkinu og Reykja- víkurborg. Það var þó ekki fyrr en árið 1983 sem tilvera Sinfóníuhljómsveitar Íslands var tryggð með lagasetningu og henni gefið ákveðið hlutverk í menningarlífi þjóðarinnar. Nú er hljómsveitin skipuð áttatíu fastráðnum hljóðfæraleikurum með möguleika á stækkun upp í hundrað meðlimi þegar svo ber undir. Hún held- ur um sextíu tónleika á hverju starfsári, flestir eru í Háskólabíói en einnig heldur hljómsveitin tónleika á landsbyggðinni og í útlöndum. ÞETTA GERÐIST > 9. MARS 1950 Fyrstu tónleikar Sinfóníunnar SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS MERKISATBURÐIR 1685 Alls farast 1.132 menn á sjó og sex verða úti í veðri sem nefnt hefur verið Góu- þrælsveðrið. 1841 Hæstiréttur Bandaríkjanna dæmir í Amistad-málinu svokallaða að afrískir þrælar sem tóku yfir þrælaskipið Amistad hafi verið ólöglega í haldi og þar með frjálsir samkvæmt bandarískum lögum. 1908 Ítalska knattspyrnuliðið Inter Milan er stofnað í Mílanóborg. 1953 Jósef Stalín er grafinn í Moskvu. 1959 Fyrsta Barbie-dúkkan er sett á markað. 1997 Flutningaskipið Dísarfell sekkur og tveir farast, en tíu er bjargað af þyrlu Land- helgisgæslunnar. MATTHEW A. HENSON (1866– 1955) LÉST ÞENNAN DAG. „Ég held að ég sé fyrsti maðurinn sem settist á topp heimsins.“ Vegna hörundslitar síns öðlaðist könnuðurinn Matthew A. Henson ekki sömu frægð og félagi hans Robert Peary þegar þeir komust á Norðurpólinn 1909. Skóvinnustofa Sigurbjörns Þorgeirs- sonar í Austurveri hefur verið sann- kallað fjölskyldufyrirtæki í fimmtíu ár. „Pabbi minn stofnaði verkstæðið árið 1956 á Vesturgötunni,“ segir Jón- ína Sigurbjörnsdóttir en hún hefur rekið verkstæðið undanfarin 29 ár. Á fimmtíu árum hefur verkstæðið verið til húsa á fjórum stöðum og margir innan fjölskyldunnar lagt hönd á plóg- inn í rekstrinum. „Maðurinn minn, mágkona mín og sonur vinna öll hérna núna þannig þetta er allt saman mjög nátengt,“ segir Jónína. Hún bætir við að auk föður hennar hafi móðir hennar einn- ig unnið á verkstæðinu í fjölda ára. Þau eru öll lærðir skósmiðir fyrir utan son hennar sem er nemi, enda rétt rúmlega tvítugur. „Sonur minn er kominn á samning hjá okkur. Hann er aðeins að þreifa sig áfram og það á eftir að koma í ljós hvort hann verður alveg örugglega hér, en honum líst vel á,“ segir hún aðspurð um hvort stefnt sé að því að halda fyrirtækinu áfram innan fjölskyldunnar. Hún er sjálf einkabarn og því kom enginn annar til greina til að taka við rekstrinum, „fyrst maður vildi halda þessu áfram í ættinni“. Eins og gefur að skilja um svo rót- gróið fyrirtæki á Skóvinnustofa Sig- urbjörns sér ákaflega dyggan kúnna- hóp. „Sumir hafa fylgt okkur alveg frá byrjun. Margir tala um að þeir hafi komið til pabba á Tómasarhag- ann,“ segir Jónína. Reyndar segir hún að viðskiptavinir sínir séu af öllum stærðum og gerðum. „Margir tengja skósmíðina við eldra fólk en okkar kúnnahópur er að mjög miklu leyti til ungt fólk,“ segir hún og bætir við að yngra fólkið sæki kannski meira í annars konar þjónustu verkstæðisins en bara að sóla skó. „Mjög margar konur eiga til dæmis í vandræðum með að finna sér stígvél. Oft er svo mjór leggurinn á þeim, þau hönnuð fyrir einhverjar ítalskar prímadonn- ur,“ segir hún og bætir við að skósmið- ir breyti skóm á alla mögulega vegu. Jónína og fjölskylda hafa þurft að sinna mörgum skónum síðustu daga enda hefur fjöldi manns nýtt sér sér- stök tilboð á viðgerðum í tilefni afmælisins. Hún segir að þau hafi unnið til miðnættis til að halda í við viðskiptavinafjöldann, svo mikið hefur verið að gera. Tilboðin eru þó ekki eina húllumhæið í tilefni afmæl- isins því í dag klukkan fimm mun kvennakórinn Vox feminae syngja á vinnustofunni. Spurð um frekari hátíðarhöld segir Jónína hlæjandi að þau verði að bíða þar til hægist um. „Ég held að við verðum svo þreytt að við höfum ekki orku í að gera neitt næstu vikurnar.“ SKÓVINNUSTOFA SIGURBJÖRNS: HELDUR UPP Á FIMMTÍU ÁRA AFMÆLIÐ Öll fjölskyldan vinnur saman SKÓSMIÐIR Í AUSTURVERI Jónína Sigurbjörnsdóttir ásamt foreldrum sínum en þau hafa öll starfað á Skóvinnustofu Sigurbjörns. Vinnustofan heldur upp á fimmtíu ára afmæli sitt í vikunni. Sorpa hefur fjölgað gjald- frjálsum úrgangsflokkum. Nú geta íbúar höfuðborgar- svæðisins skilað plastumbúð- um og umbúðum úr pappír og kartoni á endurvinnslustöðv- ar án þess að greiða fyrir það. Gjaldskylda fyrirtækja á stöðvarnar er óbreytt en tekið er á móti úrgangsflokk- unum án greiðslu í mótttöku- stöðinni í Gufunesi. Til að Sorpa taki við úrganginum verður hann að vera flokkaður og án allra aðskotahluta. Plastbrúsum, fötum og tunnum á að skila tómum og loklausum þótt lokið megi fylgja með. Einn- ig verður þjónusta í svoköll- uðum grenndargámum bætt. Ásamt því að hægt verði að skila fernum inn til endur- vinnslu má nú setja pappírs- umbúðir í gámana líka. Meira í gámana Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Hallgrímsdóttir Reykhúsum, Eyjafjarðarsveit, áður til heimilis að Miklubraut 58, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grundarkirkju laugardaginn 11. mars kl 14.00. Hallgrímur Ingvarsson Lísbet Ingvarsson Brynjólfur Ingvarsson Rósa S. Aðalsteinsdóttir Páll Ingvarsson Anna Guðmundsdóttir Guðrún María Ingvarsdóttir ömmu- og langömmubörn. Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Sveinsdóttir áður til heimilis að Hamraborg 18 og Þönglaskála, Skagafirði, verður jarðsungin frá Digraneskirkju, Kópavogi, föstudaginn 10. mars kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarstofnanir. Fyrir hönd aðstandenda, Eysteinn Jónsson Edda Þorleifsdóttir Robert James Fischer skákmeistari er 63 ára.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.