Fréttablaðið - 09.03.2006, Side 74
9. mars 2006 FIMMTUDAGUR38
menning@frettabladid.is
!
Sinfóníuhljómsveit Íslands
heiðrar Jón Nordal í tilefni
af áttræðisafmæli tón-
skáldsins og flytur fimm
verka hans á sérstökum
afmælistónleiknum í kvöld.
Jón kveðst ánægður með efnis-
skrána, verkin sem flutt verða
spanna langan tónskáldaferil hans
en hann segir að á dagskránni séu
til að mynda „fjórir einleikskons-
ertar sem verða fluttir af framúr-
skarandi tónlistarfólki.“
Elsti konsertinn er fyrir píanó
en hann frumflutti Jón sjálfur árið
1957 ásamt Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Það var fyrsti píanókons-
ert íslensks tónskálds og fyrsta
íslenska tónsmíðin fyrir einleiks-
hljóðfæri og hljómsveit síðan Jón
Leifs lauk við sinn orgelkonsert
árið 1930. „Nú mun ungur tónlist-
armaður leika píanókonsertinn,
ungur maður með æskuþrótt,“
segir Jón en Víkingur Ólafsson
píanóleikari mun spila konsertinn
í kvöld. Yngsta verkið á efnis-
skránni er klarínettukonsert sem
Sinfóníuhljómsveitin frumflutti
árið 2000 í stjórn Petri Sakari sem
einnig er hljómsveitarstjóri í
kvöld. Á undan tónleikunum verð-
ur kynning á vegum Vinafélags
Sinfóníuhljómasveitar Íslands í
Sunnusal Hótel Sögu þar sem Árni
Heimir Ingólfsson tónlistarfræð-
ingur mun fara yfir feril Jóns Nor-
dal. Hann segir að efnisskrá tón-
leikanna í kvöld muni gefa mjög
góða mynd af ferli Jóns. „Þessi
dagskrá sýnir breiddina frá unga
manninum sem er enn að draga í
sig áhrif, nýkominn heim úr námi
erlendis og svo fylgjumst við með
honum finna sinn eigin tón og fín-
pússa hann.“
Áhrifavaldur og frumherji
Jón Nordal var einn af forvígis-
mönnum módernismans í íslenskri
tónlist og starfaði m.a. sem for-
maður félagsins Musica Nova,
sem stofnað var árið 1959 til þess
að kynna tónlist íslenskra tón-
skálda og skapa vettvang fyrir
yngri hljóðfæraleikara. Því hefur
verið haldið fram að með Musica
Nova hafi nútíminn hafið innreið
sína í íslenskt tónlistarlíf. Jón Nor-
dal var skólastjóri Tónlistarskóla
Reykjavíkur frá 1959 til 1992 og
hafði ómæld áhrif á fjölmargar
kynslóðir tónlistarmanna. Árni
Heimir segir að það skipti miklu
máli fyrir ung íslensk tónskálda
að geta sótt í viðlíka sjóð og höf-
undarverk Jóns er. „Öll yngri tón-
skáld hér á Íslandi hljóta að vera
undir áhrifum frá Jóni - ekki
aðeins í tónlistinni sjálfri, þó
músíkin sé sterk og búi yfir mikilli
tjáningu þá skipta líka viðhorf
hans og hugmyndafræðin sem
speglast í verkum hans miklu máli.
Jón er tónskáld sem lætur ekki
glepjast af yfirborðinu sem fólk
vill oft týnast í, hann skrifar vand-
aðar tónsmíðar þótt hann hafi ekki
samið ótrúlega mikið af verkum,“
segir Árni Heimir Ingólfsson.
Afmælisdagskrá
Jón Nordal hefur sjálfur í nógu að
snúast þessa dagana, á mánudag-
inn fagnaði hann áttræðisafmæli
sínu í Iðnó ásamt vinum sínum og
velunnurum. „Það var ljómandi
samkoma,“ segir Jón. Tónskáldið
segist enn vera að semja þó hann
vilji lítið fara út í smáatriði og
kveðst taka því rólega. „Þetta er
sá tími þegar menn fara að leggja
þetta á hilluna,“ segir hann hóg-
vær. Á næstunni munu fleiri tón-
listarmenn heiðra starf Jóns Nor-
dals, m.a. heldur Tríó Reykjavíkur
tónleika í Hafnarborg nk. sunnu-
dag kl. 20.00 þar sem dagskráin er
helguð starfi og verkum hans.
VÍKINGUR ÓLAFSSON PÍANÓLEIKARI
Brautryðjandi heiðraður
JÓN NORDAL TÓNSKÁLD Á ÆFINGU SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR ÍSLANDS
Skáldspírur Íslands færa út kvíar
sínar og í kvöld efna ung skáld
til „Ljóðarís“ í Stúdentakjallar-
anum. Þessi upplestraröð er
angi af Skáldspírukvöldum sem
Benedikt Lafleur hefur staðið fyrir
vikulega m.a. á Kaffi Reykjavík
og í bókabúðinni Iðu en stefnt
er að því að halda slík Ljóðarí
mánaðarlega. Að upplesturunum
standa líka nemendur í Háskóla
Íslands en í forsvari þeirra er
Björk Þorgrímsdóttir bókmennta-
fræðinemi sem segir að þetta
sé kjörið tækifæri fyrir ungt fólk
að til að troða upp og lesa. „Við
erum ekkert endilega að grafa
eftir neinum stórskáldum, við
reynum að skapa vettvang fyrir
fólk sem er að skrifa og ætlum
að þefa uppi skúffuskáldin.“
Björk segir að fólkið sem ætli að
lesa í kvöld sé úr öllum áttum og
ólíkum deildum innan Háskóla
Íslands. Í hléi mun fjöllistamað-
urinn Leif Vollebekk einnig troða
upp en hann mun spila á gítar
og syngja fyrir ljóðaunnendur og
aðra gesti auk þess að flytja eigin
ljóð. „Við trúum því að það sé
mikill áhugi á svona framtaki og
ætlum að hafa þetta skemmti-
legt,“ segir Björk. Aðstandendur
Ljóðarísins stefna einnig að því
að halda málefnakvöld tengd
ljóðlist á næstunni. Ljóðarí hefst
kl. 21 í Stúdentakjallaranum við
Hringbraut.
Skimað eftir skúffuskáldum
Í hádeginu í dag gefst fólki kostur
á að heyra fagra rússneska tóna í
Hafnarfirði. Hafnarborg, menn-
ingar- og listastofnun Hafnar-
fjarðar, efnir til hádegistónleika
þar sem Bryndís Halla Gylfadótt-
ir og Antonía Hevesi munu spila
tónlist eftir rússnesku meistar-
ana Tsjaikovskí, Rachmaninoff,
Stravinskí og hinn minna þekkt-
ari Glazunov. Tónleikarnir eru
liður í mánaðarlegri tónleikaröð
Hafnarborgar en Antonía er list-
rænn stjórnandi þeirra. Bryndís
Halla spilar í fyrsta skipti á þess-
ari tónleikaröð og finnst framtak-
ið frábært. Hún segir að verkin
séu úr mjög ólíkum áttum en „öll
svona í alvarlegri kantinum,“
sum þeirra séu samin fyrir selló
og píanó en önnur séu útsett fyrir
hljóðfærin eins og t.d. verkið eftir
Stravinskí sem er aría úr óperu.
Tónleikarnir standa yfir í u.þ.b.
hálftíma og eru sérstaklega hugs-
aðir fyrir fólk sem vill skreppa
frá í hádeginu og njóta góðrar
tónlistar og jafnvel fá sér léttan
hádegisverð á kaffistofu Hafnar-
borgar. Ókeypis er á tónleikana
og þeir eru öllum opnir á meðan
húsrúm leyfir.
Austrið ómar
ANTONÍA HEVESI PÍANÓLEIKARI OG BRYNDÍS HALLA GYLFADÓTTIR SELLÓLEIKARI
BJÖRK ÞORGRÍMSDÓTTIR
Kl. 20.00
Hljómsveitirnar Big Kahuna, el
Rodeo, Blindsight og The Best
Hardcore Band in the World spila
á Fimmtudagsforleik í Hinu hús-
inu, Pósthússtræti 3-5. Hressandi
tónlist sem er tilvalin upphitun fyrir
helgina.
> Ekki missa af
...samsýningu Ragnheiðar
Georgsdóttur og Júlíusar Sam-
úelssonar sem stendur yfir um
þessar mundir á kaffihúsinu
Sólon á horni Bankastrætis og
Ingólfsstrætis.
...Hungri, sálfræðitrylli eftir Þór-
dísi Elvu Þorvaldsdóttur Bach-
man á fjölum Borgarleikhússins.
Anorexía og aðrar annarlegar
raskanir í óhugnalegum búningi.
...málþingi um menningu á
Íslandi og íslensk fræði sem
Stofnun Sigurðar Nordal stendur
fyrir í Norræna húsinu á morgun.