Fréttablaðið - 09.03.2006, Page 76
9. mars 2006 FIMMTUDAGUR
„Ég hef málað sömu könnuna og
sömu skálina mörg þúsund sinn-
um en finnst ég samt ennþá vera
að þróast og þroskast,“ segir Pétur
Gautur Svavarsson myndlistar-
maður, sem um síðustu helgi opn-
aði stóra sýningu á málverkum
sínum í Hafnarborg.
Á sýningunni eru stór mál-
verk frá síðustu tveimur árum.
Pétur Gautur er þekktur fyrir
kyrralífsmyndir sem hann hefur
málað árum saman og þessi sýn-
ing er engin undantekning þótt
myndirnar séu orðnar stærri og
inni á milli bregði fyrir blóma-
myndum.
„Blómamyndirnar hafa reynd-
ar líkst meira og meira uppstill-
ingunum sjálfum. Blómaknapp-
arnir eru búnir að taka á sig
skálaformin og blómastilkarnir
orðnir eins og röndóttu dúkarnir
mínir voru áður á borðunum.
Það má segja að þetta sé
nákvæmlega það sama og ég var
að gera áður, bara undir öðrum
merkjmum. Og ég er mjög
ánægður með það.“
Hann tekur reyndar fram að
þótt sjá megi skálar og könnur á
myndunum séu þetta ekkert endi-
lega myndir af skálum og könn-
um, „heldur er þetta allt leikur að
litum og formum. Það er enda-
laust hægt að leika sér að
þessu.“
Hann bjó úti í Danmörku í mörg
ár og byrjaði þar að mála uppstill-
ingar.
„Þar er gömul og þekkt kyrra-
lífsmyndagerð, líka eftir okkar
gömlu málara. Ég var alltaf dálítið
hrifinn af gömlu kyrralífsmynd-
unum og hef haldið mig við þær
síðan.“
Pétri finnst reyndar oft mynd-
irnar hreinlega mála sig sjálfar.
„Bestu myndirnar eru þær sem ég
hef minnst fyrir, þær sem ég mála
til dæmis ef ég næ að gleyma mér
í útvarpssögunni eða hljóðbókun-
um. Þetta er eins og að reyna að
sofna. Þegar maður rembist sofn-
ar maður aldrei, en svo þegar
maður fer að slaka á gerast hlut-
irnir.“
Sýning Péturs Gauts er í Aðal-
sal Hafnarborgar og henni lýkur
mánudaginn 27. mars. ■
Skál er ekki bara skál
PÉTUR GAUTUR SVAVARSSON Hefur málað skálar og könnur í þúsundavís, en er samt alltaf
að uppgötva eitthvað nýtt. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Fös. 10. mars. kl. 20
Lau. 18. mars. kl. 20
SÝNINGUM LÝKUR Í MARS!
Ef
eftir Valgeir Skagfjörð/
Einar Má Guðmundsson
Mán. 6. mars. kl. 09.00 UPPSELT
Þri. 7. mars. kl. 09.00 UPPSELT
Mið. 8. Mars. kl. 09.00 UPPSELT
VIÐTALIÐ
eftir Lailu Margréti Arnþórsdóttur
lau. 11. mars kl. 20
sun.12. mars kl. 20
fös. 17. mars kl. 20
sun. 19. mars kl. 20
fös. 24. mars kl. 20
sun. 26. mars kl. 20
KVIKMYNDIR
[UMFJÖLLUN]
Stephen Gaghan hefur helst getið
sér til frægðar að hafa skrifað
handritið að myndinni Traffic
frá árinu 2000. Þá hafði Steven
Soderbergh tögl og haldir, en í
þetta sinn settist Gaghan sjálfur
í leikstjórastólinn og Soderbergh
er meðal þeirra sem framleiða
myndina. Fíkniefni voru við-
fangsefnið í Traffic; ljósi var
brugðið á útbreiðslu þeirra, áhrif
og baráttuna gegn þeim, en
sögum ólíkum einstaklinga úr
öllum stéttum, sem áttu fátt eða
ekkert sameiginlegt nema fíkni-
efni, var fléttað saman.
Það sama er nú uppi á teningn-
um. Syriana segir sögu nokkurra
manna; Bob Barnes (Clooney) er
bandarískur leyniþjónustumað-
ur í Mið-Austurlöndum sem er
settur út í kuldann af yfirmönn-
um sínum þegar kreppir að.
Bennett Holiday (Wright) er lög-
fræðingur sem er falið að
rannsaka samruna tveggja risa-
olíufyrirtækja. Bryan Woodman
(Damon) er ráðgjafi arabísks
prins (Siddig) í orkumálum og
Wazim (Munir) er ungur farand-
verkamaður í leit að vinnu fyrir
botni Miðjarðarhafs og er farinn
að daðra við hryðjuverkahópa.
Allir eiga þessir menn eitt sam-
eiginlegt: olíu.
Gaghan ræðst ekki á garðinn
þar sem hann er lægstur, frekar
en í Traffic, en með öllu brokk-
gengari árangri. Það helgast
helst af því að hann kýs að fara
nákvæmlega sömu leið í leik-
stjórastólnum og Soderbergh fór
- allt frá útliti að innihaldi. Hand-
ritið að Traffic er notað sem
skapalón með nýju þema. í fyrri
myndinni hélt Topher Grace inn-
blásna ræðu um hin alltumlykj-
andi fíkniefni og tilgangslausa
baráttuna gegn. Í Syriönu er það
hlutskipti Tim Blake Nelson að
halda ræðu um hina alltumlykj-
andi spillingu og tilgangslausu
baráttuna gegn henni.
Syriana er þó langt því frá
slæm mynd; persónusköpunin og
frásagnirnar eru áhugaverðar:
George Clooney fer fremstur
meðal jafningja sem samvisku-
laust handbendi bandarísku
leyniþjónustunnar sem fer loks-
ins að velta fyrir sér hvað liggur
að baki starfi hans - hugsanlega
of seint. Jeffrey Wright er sann-
færandi sem lögfræðingurinn
sem er um það bil að segja skilið
við samvisku sína og ganga út í
fen sem ekki verður snúið til
baka úr. Sagan af ungu farand-
verkamönnunum sem ganga til
liðs við hryðjuverkasamtök er
hins vegar of einföld til að rista
sérlega djúpt og og margir þræð-
ir eru óhnýttir í lokin.
Það hefði verið óskandi að
Gaghan hefði fetað aðrar slóðir í
Syriönu en í Traffic, en þegar
öllu er á botninn hvolft tekst
honum þó ágætlega að lýsa því
sem virðist vera sjálfskapaður
vítahringur olíuiðnaðarins, með
afleiðingum sem snerta nánast
hvern einasta jarðarbúa. Óbreytt
ástand getur aðeins endað á einn
veg og skilaboðin eru skýr: Eng-
inn verður hreinn af því að baða
sig í olíu. Bergsteinn Sigurðsson
Svarta gullið glóir ekki
SYRIANA
LEIKSTJÓRI: STEPHEN GAGHAN
AÐALHLUTVERK: George Clooney, Jeffrey
Wright, Chris Cooper, Matt Damon,
Anthony Siddig, Amanda Peet, Christopher
Plummer og Mazhar Munir.
Niðurstaða: Ágæt mynd um risavaxið og eld-
fimt efni, en Stephen Gaghan fetar full troðnar
og öruggar slóðir fyrra höfundarverks.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MARS
6 7 8 9 10 11 12
Fimmtudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Bryndís Halla Gylfadóttir
sellóleikari og Antonía Hevesi
píanóleikari flytja rússneska rómantík
á hádegistónleikum í Hafnarborg,
Hafnarfirði.
19.30 Fimm einleikar-
ar, þau Víkingur Ólafsson,
Guðný Guðmundsdóttir,
Ásdís Valdimarsdóttir, Einar
Jóhannesson og Erling Blöndal
Bengtsson. heiðra tónskáldið Jón
Nordal og flytja einleikskonserta
eftir hann ásamt Sinfóníuhljómsveit
Íslands á tónleikum í Háskólabíói,
sem haldnir eru í tilefni af áttræðis-
afmæli tónskáldsins.
20.00 Hljómsveitirnar Big Kahuna,
el Rodeo, Blindsight og The Best
Hardcore Band In The World spila
á Fimmtudagsforleik í Hinu húsinu,
Pósthússtræti 3-5. Sextán ára aldurs-
takmark.
22.00 Michael Pollock heldur
tónleika á Rósenberg þar sem hann
kannar rætur tónlistarinnar. Við
sögu koma m.a. lagasmíðar Woody
Guthrie, Hank Williams, Johnny Cash,
Bob Dylan og Robert Johnson.
22.30 Danska hljómsveitin Epo-
555 spilar á Grand Rokk.
■ ■ OPNANIR
17.00 Tumi Magnússon opnar
sýningu í i8, Klapparstíg 33.
■ ■ SAMKOMUR
21.00 Ljóðarí, fyrsta upp-
lestrarkvöldið með ungum og
nýjum skáldum, verður haldið í
Stúdentakjallaranum.
■ ■ UPPISTAND
21.00 Uppistand.is hóar saman
hæfileikafólki til og efnir til
uppistands. Fram koma Steinn
Ármann, Bjarni töframaður,
Rökkvi Vésteinsson og Þórhallur
Þórhaldsson. Kynnir kvöldins er
Oddur Boxer. Allur ágóði rennur til
styrktar flogaveikur. Aðgangseyrir er
500 kr.