Fréttablaðið - 09.03.2006, Page 78

Fréttablaðið - 09.03.2006, Page 78
 9. mars 2006 FIMMTUDAGUR42 bio@frettabladid.is > Ekki missa af... Crash sem hefur verið tekin aftur til sýningar í Háskólabíó. Myndin lýsir vel því dulda kynþáttahatri sem lifir góðu lífi meðal íbúa Los Angeles, hvort heldur er meðal svartra eða hvítra. Leikhópurinn er gríðarlega sterkur og nægir þar að nefna Matt Dillon en hann var tilnefndur til Óskarsverð- launa fyrir túlkun sína á lögreglumanninum Ryan. Meðal annarra má nefna Ryan Phillippe, Söndru Bullock og Thandie Newton auk Terrence Howard en hann fékk Óskarstilnefningu fyrir leik sinn í Hustle & Flow. Margir muna eflaust eftir hinni fallegu teiknimynd Pocahontas sem Disney gerði árið 1995. Nú er draumaverksmiðjan mætt aftur með þessa sígildu sögu og að þessu sinni er það hinn goðsagnakenndi Terrence Malick sem situr við stjórnvölinn. Árið 1607 fjármagnaði London Virginia Company leit að gulli eða fjársjóði sem sagður var falinn í Vesturheimi. Þrjú skip sigldu yfir Atlantshafið og gerðu strandhögg við James-ána í Virginiu þar sem bærinn Jamestown var stofnaður. Bátsverjarnir 103 voru hvergi nærri nógu vel búnir undir lífið á framandi slóðum og dvöl þeirra fjarri heimabyggðum gerði þá afhuga gullleitinni. Spurningin var bara hvort þeir myndu lifa dvölina af. Áður en í óefni stefnir ákveður John Smith að taka með sér hóp manna til að leita matar og ganga þeir upp með Chickahominy-ánni. Þar situr Powhatan-ættbálkurinn fyrir óboðnu gestunum og eru allir drepnir nema Smith, sem tekinn er til fanga hjá indjánun- um. Í fangavistinni kynnist hann fagurri dóttur höfðingjans Pow- hatan, Pocahontas, sem kennir honum að lifa af landinu og fræðir hann um menningu þjóðarinnar. Þegar Smith hefur tekist að safna saman nægilegri fæðu fyrir veturinn snýr hann aftur til Jamestown. Veturinn líður en með vorinu er ljóst að samskipti frumbyggja og aðkomumanna eru ekki með besta móti. Höfðinginn Powhatan upp- götvar að gestirnir hafa ekki í hyggju að hverfa á braut og stríð virðist óumflýjanlegt en Pocahont- as varar vin sinn Smith við yfir- vofandi árás föður hennar. Þegar ættbálkinum er slátrað uppgötvar höfðinginn að dóttirin hefur svikið hann og ákveður að selja hana í hendur öðrum ættbálki sem síðan skiptir henni fyrir frið við Eng- lendinga. Hún lærir að aðlagast lífi þeirra með hjálp Smiths en hann er fljótlega kallaður aftur til Englands þar sem honum er gert að leiða nýjan leiðangur. Fleiri forvitnir Englendingar streyma að til nýja heimsins og þeirra á meðal er John Rolfe. Poca- hontas verður ástfangin af honum og Rolfe flytur hana með sér til heimalandsins en þar er Pocahont- as kynnt sem prinsessan af Virg- iniu. Á Englandi veikist hún hins vegar og deyr á leiðinni til Banda- ríkjanna, aðeins 21 árs að aldri. Terrence Malick verður seint sakaður um að vera afkastamikill leikstjóri. Þegar hann gerði Thin Red Line árið 1998 voru tuttugu ár liðin frá hans síðustu mynd, Days of Heaven. Hann á að baki fimm myndir í fullri lengd en þeirra þekktust er vafalítið Badlands sem kom út árið 1973. Hér hefur hann fengið til liðs við sig Colin Farrell sem leikur John Smith en stutt er síðan írski leik- arinn var í hlutverki Alexanders mikla sem Oliver Stone gerði við litlar undirtektir. Gamla brýnið Christopher Plummer fer einnig með stórt hlutverk auk Batman- leikarans Christians Bale. Tán- ingsstúlkan Q’Orianka Kilcher leikur svo Pocahontas. freyrgigja@frettabladid.is POCAHONTAS Síðast birtist indjánaprinsessan í teiknimynd frá Disney en nú hefur Terrence Malick gert sína eigin útgáfu. Sagan af Pocahontas Lengi vel hefur Colin Farrell verið einn efnilegasti leikarinn í Holly- wood. Lífernið hefur hins vegar sett strik í reikningin og andlit Farrells birtist oftar á síðum blaðanna vegna skandala sinna á börunum en afreka á hvíta tjaldinu. Farrell gæti því átt það á hættu að enda í b-myndunum víðfrægu og feta í fótspor ótrúlega margra leikara sem mega muna fífil sinn fegri eftir að hafa átt frekar stutta dvöl á toppnum. Farrell er fæddur í Dublin og hefur fengið mörg bitastæð hlutverk út á hinn sérkennilega hreim sinn. Það verður reyndar að segja Farrell til hróss að honum hafði tekist að leika í myndum eftir leikstjórana Joel Schumacher og Steven Spielberg áður en hann náði 25 ára aldri. Farrell hefur lengi haft orð á sér fyrir að vera „óheftur“ þegar kemur að neyslu brennivíns og annarra vímugjafa. Samleikari hans úr Miami Vice, Jamie Foxx, sagði þó þessar sögur oft vera ýktar og úr lausu lofti gripnar. Farrell hefur með mikilli vinnu tekist að verða ein af stærstu stjörnum Hollywood um þessar mundir. Hvað framtíðin ber með sér verður síðan að koma í ljós. Meðal næstu verkefna sem kvik- myndahúsagestir geta átt von á að sjá írska leikarann í er áðurnefnd Miami Vice sem byggð er á sjónvarpsþátt- unum vinsælu og I‘m Not There eftir Todd Haynes þar sem Richard Gere og Julianne Moore eru meðal leikara. Sú þykir um margt merkilegt en Bob Dylan er þar leikinn af átta mismun- andi leikurum. Næsti stórleikari? COLIN FARRELL Hefur verið efnilegasti leikarinn í Hollywood um nokkurt skeið en nú bíða menn eftir því að hann hætti því og verði góður. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES Hey, I‘m not square, you‘re the one that‘s square. You‘re full of shit, man. What are you talking about? You walk out with those fuckin‘ creeps and low-lifes and degenerat- es out on the streets and you sell your little pussy for peanuts? For some low-life pimp who stands in the hall? And I‘m square? You‘re the one that‘s square, man. I don‘t go screwing fuck with a bunch of killers and junkies like you do. You call that bein‘ hip? What world are you from? Travis Bickle les Iris pistilinn í hinni mögnuðu Taxi Driver sem gerði Robert De Niro að stórstjörnu. Aeon Flux birtist fyrst sem teikni- myndapersóna á tónlistarstöðinni MTV en bardagagellan er hugar- fóstur Peter Chung. Nú hefur verið gerð kvikmynd um stúlkuna í níðþrönga latex-gallanum og hana leikur engin önnur en Ósk- arsverðlaunahafinn Charlize Theron sem var einmitt tilnefnd á þessu ári fyrir leik sinn í North Country. Karyn Kusama situr í leikstjórastólnum en hún vakti mikla athygli með kvikmyndinni Girl Fight. Aeon Flux gerist árið 2415 en þá er þjóðfélagið fullkomið. Flux er þó ekki sannfærð enda sá hún útsendara stjórnvalda myrða for- eldra sína með köldu blóði og frá þeim degi hefur hefndarþorstinn náð yfirtökum. Auk Theron eru margir gæðaleikarar í stórum hlutverk- um og nægir þar að nefna Pete Postlethwaite sem íslenskir kvik- myndahúsagestir geta einnig séð í The Constant Gardener. Þá leikur Frances McDormand einnig í myndinni en hlaut, líkt og Theron, tilnefningu fyrir leik sinn í North Country. Meðal annarra má svo nefna Sophie Okonedo sem ein- hverjir muna eftir úr Hotel Rwanda. ■ Hefndarengillinn Aeon Flux AEON FLUX Ofurgellan Charlize Theron þykir taka sig vel út í níðþröngum latex- galla þótt myndin sjálf hafi ekki hlotið náð fyrir augum erlendra gagnrýnenda. Óskarinn er vissulega stærsta verðlaunahátíðin í kvikmynda- heiminum en áhugi áhorfenda virðist fara smám saman dvínandi því áhorfið í ár mældist það þriðja minnsta síðan mælingar hófust. Árið 2003 náði það sögulegu lág- marki því einungis 33 milljónir horfðu á Chicago vera útnefnda sem bestu myndina. Þegar Clint Eastwood tók styttuna góðu fyrir Million Dollar Baby í fyrra hafði aðeins bætt í en þá settust 42 millj- ónir áhorfenda fyrir framan við- tækin. Sjónvarps - og kvikmyndaspek- ingar hafa velt vöngum yfir því af hverju áhorfið á Óskarinn fari hríðlækkandi. Í erlendu blöðunum hafa heyrst miklar efasemdar- raddir um ágæti Jons Stewart sem kynnis. Gagnrýnandi Washington Post sagði hátíðina hafa keyrt á vegg og New York Post fannst Stewart ekki ná sér á strik. „Eins fyndinn og hann getur verið í þættinum sínum,“ skrifaði Alessandra Stanley í blaðið. Aðrir benda á að kvikmyndirn- ar fimm sem voru tilnefndar hafi ekki höfðað til „almennings“. Þær hafi verið of djúpt þenkjandi, fjall- að um málefni sem flestum séu hulin, leikarnir hafi ekki verið þekktir skemmtikraftar og því hafi áhugaleysi verið ríkjandi um hver myndi hreppa Óskarinn. Það getur á hinn boginn orðið forvitni- legt að sjá hvernig Akademían bregst við þessum áhorfstölum því væntanlega vill hún draga sjónvarpsáhorfendur að skjánum á ný og gera hátíðina að alheims- viðburði. ■ Vinsældir Óskarsins dala JON STEWART Hefur fengið afar misjafna dóma fyrir frammi- stöðu sína en áhorfið á þessa hátíð var það þriðja lægsta frá því að útsendingar hófust. FRÉTTABLAÐIÐ/AP FRUMSÝNDAR UM HELGINA DÓMAR Í ERLENDUM MIÐLUM The New World Internet Movie Database 7,4 / 10 Metacritic.com 6,8 / 10 Rottentomatoes.com 58% / Rotin Aeon Flux Internet Movie Database 5,3 / 10 Metacritic.com 6,6 / 10 Rottentomatoes.com 12% / Rotin

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.