Fréttablaðið - 09.03.2006, Síða 86
Heildsölu lagersala
Listaverð Utsöluverð frá
Utivistarjakki 29,990 11,900
Hlaupajakki 8,990 3,900
Flíspeysa 12,990 5,900
HiTec Golfskór 12,990 5,900
Fótboltaskór 13,990 5,900
Einnig mikið úrval af:
Skíðafatnaði, Utivistarfatnaði, Golffatnaði,
Iþróttafatnaði, Brettafatnaði
Barna-, unglinga- og fullorðinsstærðir
50-90% afsláttur!!
Við rýmum til á lagernum vegna sumarlínu
okkar sem kemur fljótlega til landsins.
Við seljum því eldri lager og sýnishorn á ótrúlegu verði!
www.zo-on.com
ZO-ON Iceland
Nýbýlavegur 18
(gengið inn Dalbrekku megin)
Opnunartími
Fimmtud. 14-20
Föstud. 14-20
Laugard. 10-18
Sunnud. 11-17
Mánud. 14-20
9-13 mars 2006
Fyrstur kemur,
fyrstur fær!
Komið tímanlega
því takmarkað magn er
til af öllum vörum
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Skoski dúettinn Arab Strap er ekki
mikið fyrir að pakka hlutum í
fallegan pappír. Dúettinn er þekktur
fyrir að færa hlustandanum mjög
óslípaðar plötur með djörfu en alltaf
ótrúlega heiðarlegum textum.
Kannski ekki svo mikil furða í ljósi
þess að sveitin heitir Arab Strap,
sem er á ensku heiti fyrir plastdildó
sem stelpur festa á sig með beltisól-
um til að geta elskast með öðrum
stelpum. Ég ætla að leyfa ímyndun-
arafli ykkar að sjá um afganginn.
Stundum eru textar söngvarans
Aidan Moffett í það miklu aðal-
hlutverki að lögin hljóma nánast
eins og ljóðalestur yfir indírokk.
Hreimur hans er svo ótrúlega
skoskur að það er eins og maður sé
að hlusta á senu úr Trainspotting.
Maður fær það á tilfinninguna að
Aidan noti texta sína sem eins konar
sáluhjálp, leið til þess að tappa af
innri pirring. Fyrir vikið er stund-
um erfitt að átta sig á því um hvað
hann er að tala, en það skiptir litlu.
Ég veit ekki alveg hvort það sé
svo góð hugmynd að nota textagerð
sína sem sáluhjálp. Þannig dreifir
textahöfundurinn bara sínum eigin
skít yfir á hlustandann, sem er
kannski ekki alltaf reiðubúinn til
þess að hlusta. Til allrar lukku er
það oftast unaður að fá að kíkja inn
í sjúkan haus herra Moffetts.
Það er erfitt að segja hvort Arab
Strap sé að þróast eitthvað með
þessari nýju plötu sinni eða ekki.
Tónlistin er kannski örlítið fjörugri
en áður, en samt hljóma þeir eins og
þeir séu lokaðir inni í sínum eigin
heimi. Það er ekkert lag hérna sem
grípur mann einhverjum heljartök-
um og það eru aðallega textarnir og
flutningur þeirra sem gerir þetta
áhugavert. Það er alveg óhætt að
segja að þetta sé ekkert sérlega
skemmtilegt. Það er heldur ekki
hægt að segja að þessi stöðnun komi
mikið á óvart. Að mínu mati hefur
Arab Strap ekki gert neitt sérstak-
lega áhugavert með tónlist sinni
síðan Philophobia kom út árið 1998.
Síðan þá hafur bandið verið fast á
svipuðum nótum, en þó alltaf boðið
upp á góða textagerð og hlutirnir
verið matreiddir nægilega hrátt svo
það sé enn safi í þeim.
Arab Strap er orðin ein af þess-
um sveitum sem gagnrýnendur
hlusta á nánast af virðingu einni
saman. Nánast af kurteisi, vegna
þess hversu sjálfstæðir og einstakir
þeir voru þegar þeir birtust okkur
upphaflega fyrir tæpum 10 árum
síðan. Núna eru þeir orðnir eins og
Jói frændi sem maður hittir árlega í
jólaboðinu og maður á sama samtal-
ið við ár eftir ár. Það gerist bara
vegna þess að menn eru einfaldlega
of ólíkir til þess að geta tengst á
djúpstæðari hátt andlega.
„Gaman að sjá þig Arab, hvernig
hefurðu það? Ennþá að blæða úr
hjarta þínu á plastdiska fyrir þá
sem nenna að hlusta? Flott hjá þér...
jæja, hvernig líst þér á kalkúninn í
ár?“ Birgir Örn Steinarsson
Sama samtalið, aftur,
aftur og aftur
ARAB STRAP:
THE LAST ROMANCE
Niðurstaða: Sjötta breiðskífa Arab Strap er
ekki slæm en heldur ekki góð. Sama tegund af
kaffi og síðast, á sama kaffihúsi og menn eru
í sömu sætunum að segja sömu brandarana.
Öllum líður samt sæmilega.
Fyrsta sólóplata söngkonunnar Cor-
inne Bailey Rae, sem er nýkomin út
hér á landi, fór beint á topp breska
breiðskífulistans.
Bailey Rae gaf út EP-plötuna Like
a Star í nóvember í fyrra og síðan þá
hefur hún notið mikillar hylli í Bret-
landi. Miklar vonir eru bundnar við
Rae í framtíðinni enda þykir rödd
hennar með eindæmum góð auk þess
sem lögin og textarnir á nýju plöt-
unni eru sagðir standa vel fyrir sínu.
Hefur henni þegar verið líkt við stór
nöfn á borð við Billie Holiday, Erikah
Badu, Lauren Hill og Macy Gray.
Platan, sem er samnefnd söng-
konunni, hefur fengið mjög góðar
viðtökur víðast hvar og fékk meðal
annars fjórar stjörnur í hinu virta
tónlistartímariti Q.
Fyrsta smáskífulag plötunnar,
Put Your Records on, kom út 20.
febrúar. ■
Rae beint á toppinn
C0RRINE BAILEY RAE Breska söngkonan
hefur gefið út sína fyrstu breiðskífu.
Miðasala er hafin á tónleika Ians
Anderson í Laugardalshöll þann
23. maí. Þar mun hann koma fram
ásamt hljómsveit sinni og meðlim-
um Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Ian Anderson á að baki langan
og farsælan feril með hljómsveit-
inni Jethro Tull. Sveitin hefur selt
yfir 60 milljónir platna á þeim
tæpu fjórum áratugum sem hún
hefur starfað.
Miðasalan á tónleikana fer
fram í verslunum Skífunnar, BT á
Akureyri og Selfossi á á midi.is.
Miðaverð er á bilinu 5.500 til 8.900
auk miðagjalds.
Miðasala
hafin
IAN ANDERSON Flautuleikarinn og söngvar-
inn knái er á leiðinni til Íslands.
Grínistarnir Steinn
Ármann Magnússon,
Bjarni töframaður, Rökkvi
Vésteinsson og Þórhallur
Þórhallsson koma fram á
sérstöku góðgerðaruppi-
standi á Gauki á Stöng í
kvöld til styrktar floga-
veikum. Kynnir verður
Oddur Boxser.
Síðasta góðgerðaruppi-
stand var haldið fyrir mán-
uði síðan þegar 52.000 krón-
ur söfnuðust handa
krabbameinsjúkum börnum.
Aðgangseyrir í kvöld er 500
krónur og opnar húsið klukk-
an 21.30.
Uppistand á Gauknum
STEINN ÁRMANN MAGNÚSSON
Fjórir grínistar láta gamminn geisa
á Gauki á Stöng í kvöld.
Staðfest hefur verið að Nick Mason,
fyrrum trommuleikari Pink Floyd,
muni spila meistaraverkið Dark
Side of the Moon með Roger Waters
á tónleikum hans í Frakklandi.
Eins hefur Waters boðið Rick
Wright, fyrrum hljómborðsleikara
Pink Floyd, að spila með sér á tón-
leikunum.
Svo gæti því farið að Mason og
Wright muni spila með Waters á tón-
leikum hans í Egilshöllinni hinn 12.
júní. Þeir þrír komu saman í London
síðasta sumar ásamt fjórða meðlimi
Pink Floyd, David Gilmore, á Live 8
við frábærar undirtektir.
Mason með Waters
ROGER WATERS Fyrrum forsprakki Pink
Floyd heldur tónleika hér á landi 12. júní.