Fréttablaðið - 09.03.2006, Side 87
50 9. mars 2006 FIMMTUDAGUR
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
MARS
6 7 8 9 10 11 12
Fimmtudagur
■ ■ LEIKIR
19.15 Keflavík og Njarðvík mæt-
ast í Iceland Express-deild karla í
körfubolta.
19.15 Fjölnir og Skallagrímur
mætast í Iceland Express-deild karla.
19.15 Grindavík og KR mætast í
Iceland Express-deild karla.
19.15 Höttur og Haukar mætast í
Iceland Express-deild karla.
19.15 Snæfell og Þór mætast í
Iceland Express-deild karla.
19.15 ÍR og Hamar/Selfoss mæt-
ast í Iceland Express-deild karla.
■ ■ SJÓNVARP
16.10 Handboltakvöld á RÚV.
16.25 Formúlukvöld á Sýn.
21.45 Áfangastaður Þýskaland á
Sýn. Lið Sviss og Ítalíu á HM 2006.
Einn umdeildasti og litríkasti einstakling-
urinn í handboltahreyfingunni á Íslandi
er hinn ötuli og kappsami formaður hand-
knattleiksdeildar ÍBV, Hlynur Sigmarsson.
Hann er ekki eingöngu afkastamikill
formaður heldur er hann vel
yfir meðallagi líflegur á
hliðarlínunni þegar hans
lið er í eldlínunni. Dómarar
landsins virðast reyndar
vera á þeirri skoðun
að Hlynur sé
fullkappsamur
áhorfandi því
annað árið í röð
hafa þeir neyðst
til þess að henda
honum út úr húsi.
Það sem meira
er áttu bæði atvikin sér stað í beinni
sjónvarpsútsendingu, hið síðara í beinni
um síðustu helgi.
„Ég hlýt að spyrja mig að því hvort ég sé
að fá sömu meðhöndlun og aðrir áhorf-
endur á landinu. Ég trúi því ekki að ég
sé orðljótasti maðurinn í handboltanum
á Íslandi,“ sagði Hlynur við Fréttablaðið
en hann er að skoða sinn rétt og hvað
reglugerðir Handknattleikssambandsins
segja um rétt dómara til þess að henda
mönnum út úr íþróttahúsum landsins.
„Ég hef aldrei ógnað dómara og það
lengsta sem ég hef gengið er að öskra
dómaraskandall eða dómarafífl. Þjálfarar
tala oft verr um dómara í viðtölum eftir
leiki en ég á leikjum.“
Þó að Hlynur sé eini áhorfandinn á
landinu sem þarf að þola það reglulega
að vera vísað af vettvangi er hann ekki á
því að hann sé fyrsta íslenska handbolta-
bullan. „Ég held ég hafi ekkert farið yfir
strikið að þessu sinni og var hissa á því að
þeir skyldu vísa mér úr húsi. Vissulega var
ég að skipta mér af dómgæslunni þegar
þeir vísa mér út en ég var ekkert grófari
en gengur og gerist í stúkunni,“ sagði
Hlynur, sem er stuðningsmaður ÍBV af lífi
og sál og játar vel að hann eigi að það til
að missa sig.
„Ég er enginn fyrirmyndaráhorfandi. Ég á
það til að sleppa mér á leikjum og það
er minn löstur. Ég lifi mig inn í leikinn og
tel það vera hluta af leiknum að tjá sig og
láta skoðanir sínar í ljós en kannski mætti
ég passa betur upp á orðbragðið,“ sagði
Hlynur en þess má geta að ÍBV var sektað
um 25 þúsund kr. vegna hegðunar Hlyns.
HLYNUR SIGMARSSON, FORMAÐUR HANDKNATTLEIKSDEILDAR ÍBV: HENT ÚT ÚR HÚSI ANNAÐ ÁRIÐ Í RÖÐ
Ég er enginn fyrirmyndaráhorfandi
Arnljótur í Þrótt
Miðjumaðurinn Arnljótur Ástvaldsson
hefur skrifað undir tveggja ára samning
við 1. deildarlið Þrótt. Arnljótur er upp-
alinn KR-ingur en hefur leikið mest með
Þór síðustu ár.
> Loksins gleðifréttir
Stuðningsmenn FH höfðu loks yfir
einhverju að gleðjast í gær þegar í ljós
kom að miðjumaðurinn efnilegi Davíð
Þór Viðarsson mun
spila með liðinu á
komandi leiktíð.
Davíð er búinn
að vera í láni
hjá Lokeren en
félagið kaus að
nýta sér ekki
forkaupsrétt
á stráknum og
hann er því kominn
aftur heim. Davíð
er meiddur sem
stendur og fékk
aldrei almennilegt
tækifæri til að
sanna sig þann
tíma sem hann
var hjá belgíska
félaginu.
HANDBOLTI Reinhard Schütte,
aðstoðarframkvæmdastjóri
Magdeburg í þýska handboltan-
um, segir að margvíslegar ástæð-
ur liggi að baki þess að félagið
vilji losna við Sigfús Sigurðsson
og Arnór Atlason, íslensku lands-
liðsmennina sem eru á mála hjá
liðinu. Eins og kunnugt er hefur
Magdeburg fest kaup á pólskum
línumanni og þá er ólíklegt að
Arnór Atlason fái nokkurn tíma
almennilegt tækifæri til að láta
ljós sitt skína hjá Ghita Licu,
rúmenska þjálfaranum sem tók
við af Alfreði Gíslasyni eftir að
sá síðarnefndi var rekinn fyrr í
vetur.
„Sigfús og Arnór voru í mikl-
um metum hjá Alfreð en núver-
andi þjálfari er ekki jafn hrifinn
af þeim og telur sig betur í stakk
búinn með öðruvísi leikmenn.
Íslensku leikmennirnir eru dýrir
leikmenn og við erum líka að
breyta áherslunum,“ sagði
Schütte við Fréttablaðið í gær.
Bæði Arnór og Sigfús eru
samningsbundnir Magdeburg út
næsta ár og þurfa því ekki að
flýta sér neitt í sínum málum en
markmið stjórnar Magdeburg
með þessum nýlegu yfirlýsing-
um er augljóst - að neyða íslensku
leikmennina til að finna sér nýtt
lið, annars muni þeir líklega
koma lítið sem neitt við sögu á
næstu leiktíð.
„Við höfum tjáð leikmönnun-
um að krafta þeirra sé ekki leng-
ur óskað hjá félaginu. Þeir geta
alveg verið áfram en eins og ég
segi þá er Sigfús línumaður
númer fjögur og Arnór er ekki
fyrsti kostur í neina stöðu,“ segir
Schütte.
Spurður um hvort stjórn
Magdeburg hefði eitthvað á móti
Íslendingum hló Schütte og sagði
svo ekki vera. „Við erum að leita
að vinstri skyttu og ef við sjáum
íslenskan leikmann í þá stöðu
sem við teljum henta okkar liði
munum við örugglega skoða
hann betur. Jafnvel þó hann sé
íslenskur.“
Hvorki Sigfús né Arnór ætti
að vera í vandræðum með að
finna sér nýtt lið fyrir næsta
tímabil og hafa nokkur félög
þegar sett sig í samband við þá.
Tvö þýsk úrvalsdeildarlið og eitt
lið í efstu deildini á Spáni hafa
áhuga á Sigfúsi. Þá hafa þrjú lið í
þýsku úrvalsdeildinni lýst yfir
áhuga á Arnóri og samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins er
Göppingen eitt af þeim liðum sem
hafa hvað mestan áhuga. - vig
Stjórn Magdeburg í Þýskalandi neyðir íslensku leikmennina í burtu:
Höfum ekkert á móti Íslendingum
BORÐTENNIS Guðmundur E. Step-
hensen, margfaldur Íslandsmeist-
ari í borðtennis og atvinnumaður
hjá Malmö í Svíþjóð, hefur fallið
um níu sæti á nýútgefnum heims-
lista í borðtennis og er nú í 208.
sæti. Guðmundur var í 199. sæti á
listanum sem gefinn var út í byrj-
un febrúar. Þess má þó geta að
Guðmundur var í 207. sæti á sama
tíma í fyrra og hefur því unnið sig
upp um eitt sæti á einu ári.
Heimsmeistarinn Wang Liqin
frá Kína er í efsta sæti listans en á
eftir honum er Timo Boll frá
Þýskalandi. Michael Maze, fyrr-
um æfingafélagi Guðmundar, er í
17. sæti listans og er efstur
Norðurlandabúa á listanum.
- vig
Guðmundur E. Stephensen:
Féll um níu
sæti í mars
FÓTBOLTI Sex íslenskir kylfingar
verða meðal keppenda á Sherry
Cup-mótinu í golfi sem fram fer á
Sotogrande á Spáni dagana 29.
mars til 1. apríl næstkomandi.
Mótið er með skemmtilegu fyrir-
komulagi þar sem bæði er keppt í
liðakeppni og einstaklingskeppni í
karla- og kvennaflokki.
Fjórir karlar skipa íslenska
liðið en þrjú bestu skorin hvern
dag telja. Kvennaliðið er skipað
þremur konum en þar telja tvö
bestu skorin. Bæði mótin eru 72
holur en allir þátttakendur í liða-
keppninni eru sjálfkrafa þátttak-
endur í Sherry Cup-einstaklings-
mótinu.
Í karlaliðinu eru Heiðar Davíð
Bragason GKJ, Magnús Lárusson
GKJ, Pétur Freyr Pétursson GR
og Stefán Már Stefánsson GR.
Kvennaliðið skipa Elísabet Odds-
dóttir GR, Nína Björk Geirsdóttir
GKJ og Tinna Jóhannsdóttir GK
en fararstjóri verður Staffan
Johansson landsliðsþjálfari.
- hþh
Golfmót á Spáni:
Íslendingar
keppa á Spáni
HEIÐAR DAVÍÐ BRAGASON Verður meðal
keppenda á Spáni. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI „Þetta verður blóð,
sviti og tár - í orðsins fyllstu merk-
ingu. Ég held að þetta verði rosa-
lega harður leikur sem muni lifa
lengi í manna minnum. Ég hef
fulla trú á því að mínir menn fari
með sigur af hólmi. Keflvíking-
arnir koma dýrvitlausir til leiks
og það verður því enn sárara fyrir
þá þegar við vinnum þetta,“ sagði
Valgeir Magnússon, stuðnings-
maður Njarðvíkur, fyrir stórleik-
inn í kvöld.
Jóhannes Alfreðsson, forsvars-
maður Trommusveitarinnar í
Keflavík, tók undir orð vinar síns
úr nágrannabænum. „Ég býst við
mjög hörðum leik þar sem hraðinn
og spennan verða í fyrirrúmi. Ég á
von á því að þetta verði leikur sem
menn eiga eftir að muna eftir og
vissulega er ég sigurviss,“ sagði
Joey Drummer, eins og hann er
iðulega kallaður, um leikinn sem
hefst klukkan 19.15.
„Við verðum að spila boltanum
mikið á Friðrik Stefánsson og
stöðva A.J Moey, ég tel að það sé
lykilatriði til að vinna leikinn. Jeb
Ivey og Brenton Birmingham
verða líka að skila sínu en vendi-
punkturinn er að finna Friðrik inni
í teignum. Auk þess erum við með
marga unga leikmenn eins og Guð-
mund Jónsson og Jóhann Ólafsson
sem hafa þeir verið að standa sig
mjög vel í vetur en hafa kannski
fallið í skuggann af öðrum leik-
mönnum liðsins,“ sagði Valli um
sína menn í Njarðvík.
„Friðrik, Jeb og Brent eru
þeirra bestu menn. Við verðum að
stöðva þá inni í teignum þar sem
þeir eru bestir. Njarðvíkingar eru
með góða vörn en ef okkur tekst
að fá skotfæri fyrir skytturnar
okkar vinnum við þennan leik.
Friðrik er þeirra mikilvægasti
leikmaður og það er alltaf mikið
hitamál í kringum hann og hans
villufjölda, sérstaklega í þessum
barningi í teignum. Frikki er svo-
kallaður umdeildur leikmaður,“
sagði Joey sposkur á svip en báðir
eru að sjálfsögðu á því að þeirra
lið sé það besta í deildinni.
„Tvímælalaust. Við erum með
besta hópinn í deildinni en stund-
um vantar meiri hroka í liðið.
Njarðvíkingarnir þurfa að láta
eins og þeir séu alltaf bestir, sem
þeir eru auðvitað, eins og Keflvík-
ingarnir eru þekktir fyrir. Þeir
láta alltaf eins og þeir séu bestir,
sama hversu lélegir þeir eru,“
sagði Valli léttur í bragði.
„Keflavík er með besta hópinn
en Njarðvík er ekki langt undan.
Það sem Keflavík hefur framyfir
er breiddin, sem er mjög mikil hjá
okkur og liðið spilar iðulega á tíu
mönnum í leikjum. Njarðvíking-
arnir halda eflaust að þeir séu
bestir en það er bara minnimáttar-
kennd fyrir stóra bróður í Kefla-
vík,“ sagði Joey og hló við.
„Ef fólk mætir ekki á þennan
leik þá mætir það aldrei. Strák-
arnir þurfa á stuðningi að halda og
ég vona að fólk fjölmenni og komi
tímanlega því þetta á eftir að vera
stórkostleg sýning,“ sagði Valli að
lokum og Joey tók undir þau orð.
„Þetta er okkar leikur, þetta er
okkar heimavöllur, Sláturhúsið, og
við ætlum okkur alla leið,“ sagði
Joey að lokum. hjalti@frettabladid.is
Blóð, sviti og tár í orðsins
fyllstu merkingu í kvöld
Keflavík og Njarðvík mætast í kvöld í síðustu umferð Iceland Express-deildarinnar
í körfubolta. Leikurinn er hreinn úrslitaleikur um deildarmeistaratitilinn en tveir
stuðningsmenn liðanna búast báðir við gríðarlegum átökum í leiknum.
JOEY DRUMMER OG VALLI Verða báðir uppi í stúku að hvetja sína menn áfram með
tilheyrandi öskrum og trommuslætti. FRÉTTABLAÐIÐ/VÍKURFRÉTTIR
Hefur
sé› DV
í dag?
flú
JÓNÍNA MEÐ 16 IP-TÖLUR
Óhróðurs-
menn nötra í
netheimum
2x10 8.3.2006 20:54 Page 1