Fréttablaðið - 09.03.2006, Side 89
9. mars 2006 FIMMTUDAGUR52
������������������������
�������� ��������������
�����������������
�������������������������������������
����������������������������������
���������������������������������
����������������������������������
FÓTBOLTI David Beckham, lands-
liðsfyrirliði Englands, segir að
honum líki best við að spila á
hægri kantinum þrátt fyrir að
hafa oft verið notaður á miðjunni,
sérstaklega eftir að hann gekk til
liðs við Real Madrid. Í ár hefur
hann þó mestmegnis verið látinn
spila hægra megin og eru flestir
sammála um að hann hafi verið
einn besti leikmaður Real í ár.
„Sumir segja að ég sé frábær á
miðjunni, aðrir segja að ég sé mun
betri á hægri vængnum. Mér líkar
vel að spila á miðjunni en ég held
að mín besta staða sé hægra
megin. Þar næ ég mestu út úr
hæfileikum mínum,“ sagði Beck-
ham í viðtali við Andy Gray á Sky
sjónvarpsstöðinni. „Ég gef mun
fleiri stoðsendingar þegar ég er
hægra megin og almennt kemur
meira út úr mínum leik.”
Í viðtalinu greindi Beckham
einnig frá því að hann hygðist ekki
gerast knattspyrnustjóri eftir að
leikmannaferli hans lýkur. „Það
verður ekki. Alls ekki,“ sagði
Beckham ákveðinn og bætti við að
ástæðan væri sú að áhuginn fyrir
því væri einfaldlega ekki til stað-
ar.
„Ég elska að vera á vellinum en
ég held að sama ástríðan verði
ekki til staðar á hliðarlínunni.
Eftir að ég hætti að spila hyggst
ég einbeita mér að knattspyrnu-
skólanum sem ég setti nýlega á
laggirnar auk þess sem ég ætla að
sinna fjölskyldunni eftir fremsta
megni,“ sagði Beckham.
- vig
David Beckham, fyrirliði enska landsliðsins og leikmaður Real Madrid:
Ég er bestur á hægri kantinum
DAVID BECKHAM Ætlar ekki að verða
knattspyrnustjóri eftir að leikmanna-
ferlinum lýkur.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Samkvæmt þeim samn-
ingi sem Cassano skrifaði undir
við Real í janúar sl. fær hann 467
milljónir íslenskra króna í árslaun
frá félaginu. Þessu boði tók
Cassano þrátt fyrir að hafa fengið
tilboð um framlengdan samning
við Roma sem kvað á um rúmlega
490 milljón króna árslaun. Cassano
bar saman skattaprósentuna á
Spáni og ítalíu og var í kjölfarið
ekki lengi að skrifa undir samning
við Real. Ástæðan var einföld - hjá
Real fær hann rúmar 374 milljónir
í vasann árlega en hjá Roma hefði
hann fengið um 245 milljónir.
Fyrir ekki meira en tveimur
árum var skattahlutfall launa á
Spáni með því hæsta í Evrópu.
Þessu kerfi var þá breytt af stjórn-
völdum í landinu á þann veg að
erlendir ríkisborgarar fengu und-
anþágu til skattgreiðslna fyrir allt
að 9/10 þess sem þeim bæri venju-
lega lögboðin skylda til. Til-
gangurinn var að laða að
erlenda fjárfesta til að stunda
sín viðskipti á Spáni, sem
myndi að sjálfsögðu hafa góð
áhrif á efnahag landsins. Með
öðrum orðum - erlendur rík-
isborgari með risavaxin
laun sín bókfærð á Spáni
gæti, með góðum endur-
skoðanda, borgað á milli
10-20% af launum sínum
í skatt. Skólabókardæmi
um slíkan launþega er
hinn erlendi fótbolta-
maður - eins og Ant-
onio Cassano.
Evrópska knattspyrnusam-
bandið er með stöðu mála á Spáni í
gjörgæslu hjá sér og segja sér-
fræðingar að það sé aðeins tíma-
spursmál hvenær gripið verði í
taumana. Þeir benda á að það verði
hreinlega að gera áður en
Spánn breytist í nýlendu
fyrir fótboltamenn hvaðan-
æva úr heiminum. Félög þar
í landi þurfa í raun að
greiða sínum leikmönnum
mun lægri laun en félög
t.d. í Frakklandi og
Þýskalandi til þess að
viðkomandi leikmenn
fái sömu laun útborg-
uð. Áður voru ensk
knattspyrnufélög í
sömu stöðu og þau
spænsku eru nú
þar sem skatta-
hlutfallið í Bret-
landi er 40%, samanborið við 50%
í Frakklandi og Þýskalandi og áður
Spáni. Þessi 10% munur setti ensk
félög í yfirburðastöðu áður og því
þarf ekki að fara mörgum öðrum
hversu mikið forskot félög á Spáni
hafa nú, með sínu 25-35% for-
skoti.
Knattspyrnuyfirvöld í löndum
utan Spánar benda á að félög eins
og Real Madrid og Barcelona eru í
beinni samkeppni við Manchester
United, AC Milan, Lyon, Bayern
München og fleiri í Meistaradeild
Evrópu og því er ósanngjarnt að
spænsku félögin skuli njóta slíkra
yfirburða þegar kemur að launa-
greiðslum til leikmanna. Líklegt
þykir að næsta skref knattspyrnu-
yfirvalda í öðrum deildum Evrópu
verði sameiginleg beiðni til Evr-
ópusambandsins um að gera knatt-
spyrnumenn undanþegna frá
aðgangi í þá skattaparadís sem
stjórnvöld á Spáni hafa búið til
fyrir erlenda ríkisborgara.
- vig
Stundum borgar það
sig að fá minna borgað
Þegar rætt er um laun knattspyrnumanna er sjaldan eða aldrei er minnst á það
hlutfall launanna sem greiðist í skatt, sem er í raun lykilatriði fyrir bæði leikmenn
og félög. Nýjasta dæmið er félagaskipti Antonio Cassano frá Roma til Real Madrid.
ANTONIO CASSANO Fær lægri laun hjá Real Madrid en hjá Roma en fær samt meira borg-
að. Hvernig má það vera? NORDICPHOTOS/AFP
FORMÚLA 1 Formúlu-1 tímabilið
hefst um helgina í Barein en
margar nýjar reglur hafa verið
teknar upp til að hafa keppnina
enn meira spennandi. Skipuleggj-
endur Formúlunnar telja sig loks-
ins hafa fundið góðan grundvöll
fyrir keppnina eftir mismunandi
mótafyrirkomulag ár eftir ár.
Allar keppnirnar í ár verða í
beinni útsendingu á RÚV.
Ein helsta breytingin felst í
tímatökunni en hún verður á laug-
ardögum þar sem keppt verður í
þremur lotum. Eftir fyrstu lot-
una, sem varir í fimmtán mínútur
og fjöldi keyrðra hringja er frjáls,
detta sex hægustu bílarnir út og
eftir það eru tímarnir af þeim
bílum sem eftir eru þurrkaðir út.
Önnur tímataka fer alveg eins
fram. Eftir það tekur við tíu bíla
kappakstur sem varir í tuttugu
mínútur þar sem ökumennirnir
keppast við að ná hraðasta tíman-
um.
Í Formúlunni í fyrra mátti ekki
skipta um dekk yfir keppnishelg-
ina en það er nú aftur leyfilegt en
liðin hafa úr þrettán mismunandi
dekkjum að ráða.
Fernando Alonso varð í fyrra
yngsti heimsmeistarinn í sögu
Formúlu 1 en hann býst við æsi-
spennandi keppni í ár. „Ég held að
við í Renault verðum án efa aftur
með í baráttunni um titilinn.
Honda, Ferrari, McLaren og Ren-
ault hafa verið sterkust í vetur en
nú fer að koma tíminn til að sanna
sig þegar alvaran byrjar. Renault
er heimsmeistari og allt liðið er
fullt sjálfstrausts fyrir tímabil-
ið,“ sagði Alonso sem margir telja
líklegan til að verja titilinn í ár.
Michael Schumacher átti ekki
sjö dagana sæla á síðasta tímabili
en hann er einnig sannfærður um
að lukkan muni snúast honum í
vil þetta árið. „Við erum mjög
ánægðir með bílinn, bæði hrað-
ann á honum auk þess sem hann
hefur ekki verið að bila neitt. Við
erum tilbúnir í tímabilið og ég tel
að við verðum eitt af toppliðun-
um,“ sagði Schumacher en Ferr-
ari fákur hans bilaði ótt og títt í
fyrra.
- hþh
Formúlutímabilið hefst loksins um helgina eftir langa hvíld:
Spennandi tímabil í vændum
FERNANDO ALONSO Er með sigurstrang-
legustu mönnum í Formúlunni í ár eftir
heimsmeistaratitilinn í fyrra.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Nú bendir allt til þess að Mido, egypski sóknarmaðurinn hjá
Tottenham, verði keyptur til liðsins í
sumar. Mido er í láni hjá enska liðinu
frá Roma og ætla forráðamenn ítalska
félagsins að selja Mido til að eiga
pening fyrir Vincenzo Iaquinta, hinum
sjóðandi heita framherja Udinese. Talið
er að uppsett verð Roma á Mido verði
í kringum 500 milljónir en Iaquinta er
verðlagður á þrisvar sinnum meira.
Alan Pardew, knattspyrnustjóri West Ham, hefur mikla trú á sóknarmanni
sínum Dean Ashton og segir hann vel
geta leyst sama hlutverk og Wayne
Rooney hefur hjá
enska landsliðinu.
Ashton hefur
spilað frábærlega
fyrir West Ham
eftir að hann
var keyptur frá
Norwich og segir
Pardew hann vera
í landsliðsklassa. „Hvað myndi England
gera ef Rooney meiddist? Það er enginn
til að leysa hann af í liðinu. Ashton gæti
það hins vegar. Hann hefur verið að
leika sama hlutverk hjá okkur og gert
það frábærlega.“
Arouna Kone, sóknarmaður PSV í Hollandi, segir það vera sinn æðsta
draum að spila fyrir Manchester United
einhvern tímann á ferli sínum. Kone
hefur skorað tíu mörk í sextán leikjum
PSV í ár og hefur vakið athygli nokkurra
stórliða í Evrópu. „Ég hef hugsað mér
að spila tvö ár til viðbótar hjá PSV en að
því loknu langar mig til Man. Utd. Ég veit
að það verður erfitt að láta þann draum
rætast en það er ekki ómögulegt,“ sagði
Kone og bætti því við að fyrirmyndir
sínar væru þeir Jaap Stam, Ruud van
Nistelrooy og Park Ji-Sung, sem allir
hafa farið frá PSV til enska félagsins á
síðustu árum.
Spænska úrvalsdeildarliðið Valencia er sagt vera að undirbúa risatilboð í
Cristiano Ronaldo,
Portúgalann unga
hjá Man. Utd.
Valencia er í leit
að vængmanni og
sér forsetinn Juan
Soler Portúgalann
sem hinn full-
komna leikmann
fyrir sig í þá stöðu. „Við munum ræða
við Man. Utd. um möguleg kaup,“ sagði
Soler en Ronaldo skrifaði undir nýjan
samning við Rauðu djöflana í nóvember
síðastliðnum.
Cesc Fabregas, miðjumaðurinn ungi hjá Arsenal, kveðst vera mjög stoltur
yfir að vera undir smásjánni hjá stórliði
Real Madrid en
ekki hafa hug á því
að færa sig um set
þar sem hann sé
mjög ánægður í
herbúðum Arsenal.
„Ég var svolítið
hrærður þegar
það var verið að
orða mig við Real
í blöðunum, ég viðurkenni það alveg.
Real er líklega stærsta félag heims,“
segir Fabregas.
ÚR SPORTINU
FÓTBOLTI Forráðamenn Glasgow
Rangers gagnrýndu öryggisgæsl-
una hjá Villarreal harkalega í kjöl-
far leiks liðanna á Spáni á þriðju-
dag. Fimmtán þúsund Skotar
flykktust til Spánar en aðeins þrjú
þúsund þeirra höfðu miða á leik-
inn.
Mikill fjöldi drukkinna og
æstra stuðningsmanna félagsins
var því fyrir utan völlinn meðan á
leik stóð. Létu öllum illum látum
og réðust meðal annars að liðsrútu
Villarreal og brutu rúðu í henni.
„Það fór eins og okkur grunaði að
það voru allt of fáir öryggisverðir
og því fengu þessir menn að láta
öllum illum látum,“ sagði Law-
rence McIntyre, yfirmaður örygg-
ismála hjá Rangers. - hbg
Stuðningsmenn Rangers:
Réðust á rútuna
STUÐNINGSMENN RANGERS Geta orðið
brjálaðir. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
NFL Shaun Alexander, hlaupari
Seattle Seahawks og besti leikmað-
ur síðasta tímabils í NFL-deildinni,
skrifaði í upphafi vikunnar undir
nýjan samning við félagið. Samn-
ingurinn, sem er til átta ára, færir
Alexander rúmlega fjóra milljarða
króna í laun en þetta er stærsti
samningur sem hlaupari hefur gert
við nokkuð félag.
„Ég vildi aldrei yfirgefa félagið
og það er mikill heiður að hafa
fengið stærsta samning sem hlaup-
ari hefur nokkurn tíma fengið,“
sagði Alexander en með hann í
farabroddi fór Seattle alla leið í
Super Bowl þar sem það tapaði
fyrir Pittsburgh Steelers. - hbg
Shaun Alexander:
Fékk risasamn-
ing hjá Seattle