Fréttablaðið - 29.04.2006, Page 94
29. apríl 2006 LAUGARDAGUR62
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
��������������
�������
����������
����
������������
����������
��� �
FRÉTTIR AF FÓLKI
Heimasíðan Gudjohnsen.net býður lesendum
sínum upp á óvenju-
legan vinning, iPod
með eiginhandaráritun
frá knattspyrnukappanum
Eiði Smára Guðjohnsen.
Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins stendur Eiður
ekki sjálfur fyrir þessu heldur
skyldmenni hans hér á landi.
Eiður er einhver allra vinsælasti
íþróttamaður landsins, spilar
með milljarðaliði Chelsea en hefur átt
erfitt uppdráttar að undanförnu. Þó er
ljóst að aðdáendur kappans myndu ekki
slá hendinni á móti þessum dýrðargrip
og verður tilkynnt hver sá heppni verður
15. maí en heimildir blaðsins herma
að sú dagsetning hafi litla tilvísun í líf
knattspyrnumannsins.
Listamaðurinn Snorri Ásmundsson er samur
við sig í uppátækja-
seminni eins og hans
nýjasta sýning á Næsta
bar við Ingólfsstræti
sýnir. Snorri sýnir
þar orkufláma-
myndir sem að
eigin sögn hafa lækningamátt. Segist
Snorri hafa fengið magnaðar frásagnir
frá eigendum verkanna sem eru ekki
bara sjónprýði heldur andlegt batterí
fyrir eigendurna. Segist Snorri hafa
uppgötvað lífsorkuna sem frá honum
stafi fyrir tíu árum síðan og sendir hann
umframorkuna í verkin á meðan hann
málar þau. Má búast við því að bargestir
á Næsta bar verði óvenju orkumiklir á
meðan verk Snorra hanga þar á veggjun-
um en sýningin stendur til 26. maí.
HRÓSIÐ
...fá nemendur í meistaranámi við
verkefnastjórnun, MPM, við
Háskóla Íslands en þeir hafa
framleitt sjónvarpsþátt sem
verður sýndur á RÚV og fjallar
um samfélags- og þjóðmál fyrir
ungt fólk.
[ VEISTU SVARIÐ ]
Svör við spurningum á síðu 8
1 Vegna sextugsafmælis
Karls Gústafs Svíakonungs
2 Tíu milljarða
3 Sevilla og Middlesbro
Skoski glæpasagnahöfundurinn
Ian Rankin hefur þekkst heimboð
Pennans Eymundsson og mun
heiðra íslenska aðdáendur sína
með nærveru sinni í byrjun júní.
„Við erum búin að sverma fyrir
Rankin í nokkur á og hann lét nú
loksins undan gylliboðum um ferð í
Bláa lónið og fleira,“ segir Óttar
Proppé hjá Pennanum.
„Rankin er vinsælasti krimma-
höfundur Bretlands og nýtur
gríðarlegra vinsælda um alla
Evrópu og er það umsetinn að það
var barátta að fá hann hingað. Hann
er það stórt nafn að hann samþykkir
ekki hvað sem er og það gleður
okkur mjög að hann hafi tekið
Ísland framyfir einhverja bókahátíð
í Frakklandi.“
Rankin er þekktastur fyrir
sögur sínar um drykkfelldu rann-
sóknarlögregluna John Rebus sem
veður sorann í skuggahverfum
Edinborgar á hælum morðingja og
alls kyns misyndismanna. Rebus
er maður með fortíð, á miðjum
aldri og hefur marga fjöruna sopið.
Hann á stálpaða dóttur eftir mis-
heppnað hjónaband og er mátulega
skemmdur á sálinni eftir harða vist
í sérsveit breska hersins SAS.
Hann reykir eins og strompur og
deyfir tilfinningar sínar miskunnar-
laust með áfengi og þrátt fyrir það
að hann geri yfirboðurum sínum
lífið endalaust leitt mega þeir ekki
án hans vera þar sem hann nær
jafnan góðum árangri í starfi þó
hann sé óvandur að meðulum.
Fjöldi Íslendinga hefur komist í
kynni við Rebus en þrjár bóka
Rankins hafa verið þýddar á
íslensku og þættir um Rebus hafa
verið sýndir í sjónvarpinu. „Hann
er einn vinsælasti höfundur á
enska tungu á Íslandi og hefur
verið það nánast frá fyrsta degi.
Þeir sem kynnast honum halda
áfram að lesa hann,“ segir Óttar og
staðfestir að hann sé sjálfur „mikill
Rebus maður.“
Óttar segir Rebus vera yndis-
lega persónu og að styrkur Rankins
felist ekki síst í því hversu raun-
verulegur hann sé. „Hann hefur
skrifað yfir tíu bækur um Rebus en
heldur sér ferskum og hefur alltaf
eitthvað nýtt að segja.“
Rankin er fæddur í Fife í Skot-
landi árið 1960 og er margverðlaun-
aður fyrir glæpasögur sínar og
hefur meðal annars hampað hinum
eftirsótta Gullrýtingi, sem samtök
breskra glæpasöguhöfunda veita
árlega, en verðlaunin féllu Arnaldi
Indriðasyni í skaut í fyrra.
Rankin mun fjalla um verk sín
og lesa upp í Súfistanum við Lauga-
veg laugardaginn 3. júní og árita í
framhaldinu bækur sínar í bóka-
búð Máls og menningar.
thorarinn@frettabladid.is
IAN RANKIN: ÍSLANDSHEIMSÓKN REYFARAHÖFUNDAR
Féll fyrir gylliboði um
Bláa lónið
IAN RANKIN Lætur nú loks sjá sig á Íslandi eftir margra ára tilraunir Óttars Proppé og félaga
hjá Pennanum Eymundsson. Hann mun skella sér í Bláa lónið og lesa fyrir aðdáendur sína.
LÁRÉTT: 2 himinn 6 rykkorn 8 kletta-
sprunga 9 frostskemmdir 11 tímaein-
ing 12 óróleg 14 í vafa 16 tveir eins
17 fum 18 stefna 20 þurrka út 21
ker.
LÓÐRÉTT: 1 drykkur 3 einnig 4 lög-
tak 5 lítill sopi 10 meðal 13 bein 15
málmur 16 blekking 19 í röð.
LAUSN:
Sjónvarpsstöðin Sirkus hefur heldur betur sótt
í sig veðrið eftir að hnakka-
byltingunni var hrundið.
Samkvæmt dagbókarkönnun
Gallup hefur áhorfið á
Sirkus aukist um þrjátíu
prósent á öllu landinu
og þakka menn það bættri dreifingu
sjónvarpsstöðvarinnar. Árni Þór Vigfússon,
sem var fjarri góðu gamni þegar stöðin
sleit barnsskónum, hefur augljóslega tekið
til hendinni. Þættir á borð við Ástarfleyið,
Splash, Partí 101 eru ekki lengur í stafni
heldur hafa „menningarlegir“ þættir á
borð við Tivolí og Bak við böndin tekið við
sem flaggskip stöðvarinnar. Herbragðið
virðist því hafa heppnast fullkomlega hjá
Árna og félögum.
NÚNA BÚIÐ
Blaðamannafundur vegna tón-
listarhátíðarinnar Reykjavík
rokkar var haldin í Laugardals-
höll í gær. Þar kynnti Kári
Sturluson, framkvæmdastjóri
hátíðarinnar, dagskrána og þær
erlendu sveitir sem sækja landið
heim. Að sögn Kára kviknaði sá
draumur að halda hér á landi
veglega tónlistarhátíð eftir að
Duran Duran, Foo Fighters og
Queens of the Stone Age trylltu
lýðinn á hátíðinni í fyrra ásamt
Leaves og Mínus. „Sá draumur
er nú orðinn að veruleika,“ segir
Kári en Reykjavík rokkar -
tónlistarhátíð alþýðunnar fer
fram dagana 29. júní til 1. júlí í
Laugardalshöll.
Meðal þeirra sem koma fram
á hátíðinni í ár eru glysrokkar-
arnir Darkness, ballöðukóngur-
inn David Grey og brjálæðing-
arnir í Motorhead en hljómsveitin
Ham kemur saman sérstaklega
vegna komu þeirrar sveitar. Kári
upplýsti einnig að dagskránni
hefði ekki alveg verið lokað en
sagði að íslensku hljómsveitunum
yrðu gerð betri skil. „Þær verða
ekki í einhverju upphitunar-
hlutverki heldur verður þeim og
áhorfendum boðið upp á alvöru
umgjörð og tónleika í fullri
lengd,“ segir Kári.
Hátíðin í fyrra þótti mjög
vegleg og sóttu hana í kringum
tuttugu þúsund manns en að
sögn Kára verða helmingi færri
miðar í boði þetta árið. „Tónleik-
arnir fara fram í gamla salnum
en það verður opið inn í nýju
Íþrótta- og sýningarhöllina svo
að gestirnir geti blásið út og
svalað þorsta sínum og svengd
milli atriða,“ segir Kári en for-
salan fyrir hátíðina hefst
fimmtudaginn 18. maí.
Íslenskum hljómsveitum gert
hátt undir höfði á rokkhátíð
TÓNLISTARHÁTÍÐ ALÞÝÐUNNAR Reykjavík
rokkar verður með ögn breyttu sniði frá því
í fyrra en meðal erlendra gesta má nefna
Motorhead, Darkness og David Grey.
FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
Frank Sinatra. Bandaríski söngvarinn
ástsæli er lifandi goðsögn unga fólksins í
dag enda var hann vel tengdur mafíunni.
Hið spillta virðist vera spennandi í dag.
Bullarinn. Sá
sem lýgur þarf
að þekkja stað-
reyndir málsins
því annars
getur hann ekki
hallað réttu
máli vitandi vits.
Bullarinn þarf
hins vegar ekki
að vita neitt.
Bullarinn er því betri en lygarinn.
Hláturinn. Með hækk-
andi sólu vaknar allt
til lífsins þar á meðal
hláturinn. Borgarleik-
húsið stendur nú fyrir
sérstakri hláturhátíð.
DV á virkum dögum. Lesendur geta þó
notið þess um helgar.
Gúllassúpur.
Hnausþykkar
ungverskar
gúllassúpur eru
horfnar af borð-
um landsmanna.
Farið á Maður
lifandi og fáið
ykkur léttar og
hollar veitingar.
Útlits-og æskudýrkun, þetta
ljóta samfélagsmein leiðir til
andfélagslegrar hegðunar.
Fagnið því að eldast og í
guðanna bænum verið þið
sjálf.
LÁRÉTT: 2 loft, 6 ar, 8 gjá, 9 kal, 11 ár,
12 ókyrr, 14 efins, 16 tt, 17 fát, 18 átt,
20 má, 21 laug.
LÓÐRÉTT: 1 kakó, 3 og, 4 fjárnám, 5
tár, 7 raketta, 10 lyf, 13 rif, 15 stál, 16
tál, 19 tu.