Fréttablaðið - 06.05.2006, Síða 20
6. may 2006 SATURDAY20
Einkabréf til 1. þingmanns Reykjavíkur
Í Dagbók Þráins Bertelssonar er fjallað er um auðgunarbrot í Íran, hábítur er snæddur í góðra vina
hópi, og birt einkabréf til fyrsta þingmanns Reykjavíkur um heilsuna hjá lýðræði og stjórnarháttum
í höfuðborginni.
Kæra
Dagbók
Þráinn Bertelsson skrifar
■ FÖSTUDAGUR, 28. APRÍL
Síðasta æviskeiðið
Við Sólveig brugðum
undir okkur betri
fætinum og fórum og
skoðuðum hús úti í
sveit. Nú erum við
komin á þann aldur
að við förum að
huga að síðasta ævi-
skeiðinu. Það verð-
ur vonandi langur
og góður skeið-
sprettur.
■ LAUGARDAGUR, 29. APRÍL
9 ár, 2 mánuðir, 25 dagar
Vísindamenn hafa reiknað út að
venjulegur einstaklingur eyði að
meðaltali 9 árum, 2 mánuðum og
25 dögum í heimilisstörf. Verst
að hafa ekki haldið þessu
saman því að ég er viss um að
ég er búinn með kvótann.
Kvöldverðarboð hjá
Lenu og Árna. Gerard
nágranni minn sem
varð okkur samferða
í matarboðið
sagði að jakk-
inn minn
væri púka-
legur. Ég
bað hann að endurtaka það í eyru
Sólveigar svo að hún fengi að vita
hver í fjölskyldunni hefði mesta
þörf fyrir nýjan fatnað. Spjallaði
mest við Gunnar Kvaran en við
höfum verið vinir síðan við vorum
smástrákar. Blini, rússnesku
pönnukökurnar hennar Lenu eru
guðdómlegar.
Núna er alltaf verið að skrifa
um að Íranir séu að auðga úran.
Bandaríkjamenn flokka þetta
undir auðgunarbrot. Vonandi hafa
þeir á að skipa hæfari efnahags-
brotadeild en við hérna á Íslandi,
þar sem menn sem hafa þegar
verið sýknaðir eru ákærðir aftur
og menn sem hafa játað eru ekki
ákærðir.
■ SUNNUDAGUR, 30. APRÍL
Hábítur
Fengum góða gesti í hábít – sem er
samsettur af árbít og hádegis-
verði. Ég ætla ekki að nafn-
greina gestina,
kúltíverað fólk getur
fengið illt orð á sig
fyrir að umgangast
mig.
Fórum austur að Kald-
bak að hitta vini okkar
Sigríði og Viðar – og heilsa
upp á gömlu klárana,
Hnokka og Rökkva. Rökkvi
er 29 vetra. Hnokki 26. Þetta verð-
ur trúlega síðasta sumarið þeirra.
En hvernig í dauðanum á ég að
fara að því að taka ákvörðun um
að fella þessa höfðingja? Getur
maður deytt vini sína?
Las í Fréttablaðinu að Sól-
heimaleikhúsið væri að leita að
kvikmyndagerðarmanni og hand-
ritshöfundi til samstarfs. Það var
eins og ég yrði fyrir rafstraum:
Loksins fékk ég aftur áhuga á
kvikmyndagerð. Ég sendi þeim
tölvupóst og vona að þau vilji
vinna með mér.
■ MÁNUDAGUR, 1. MAÍ
Hamingjudagur
Lá í leti frá
morgni til kvölds.
Frídagur verka-
lýðsins.
■ ÞRIÐJUDAGUR, 2. MAÍ
Veitingablaðamaður
Bauð Lísu vinkonu minni út að
borða í hádeginu. Var að byrja
feril minn sem veitingablaðamað-
ur og vildi hafa veitingahúsavana
manneskju mér til halds og
trausts. Lísa stakk upp á því að
byrja mjúklega með því að fara á
Ósushi í Iðuhúsinu við Lækjar-
götu. Það var sosum ágætishug-
mynd, þannig lagað séð.
Fékk tölvupóst, svar frá Sól-
heimaleikhúsinu. Fólkið er reiðu-
búið að vinna með mér. Frábært.
Ég hef aldrei lofað því að vera
hættur í kvikmyndagerð. Svana-
söngurinn er eftir.
■ MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ
Teikningar á náðhússnagla
Skrifaði mína fyrstu veitingahúsa-
gagnrýni. Settist við kl. 9 og sendi
hana frá mér kl. 4. Svo halda menn
að það sé sældarlíf að vera blaða-
maður. Mestur tíminn fór auð-
vitað í að stytta þetta niður í
3.000 slög. Langhundar eru
bannaðir í Fréttablaðinu, en
það er tímafrekt að skrifa
stuttan texta. Móses var
í 40 daga að punkta hjá
sér boðorðin tíu. Enda
væru margir gagnorð-
ari ef þeir þyrftu að
klappa texta sinn í
stein.
Skrifaði Össuri
Skarphéðinssyni
fyrsta þingmanni
Reykvíkinga bréf um
Hlaðvarpamálið í
tölvupósti. Bréf sem
send eru í tölvupósti
hafa einkennilega til-
hneigingu til að lenda í
fjölmiðlum svo að kannski
er best að birta þetta
strax:
Sæll og blessaður kæri fyrsti
þingmaður Reykvíkinga.
Manni skilst að það sé gegndar-
laus yfirvinna í þinginu þessa dag-
ana og spurning hvort ekki væri
betra að taka upp bónus-kerfi eða
að minnsta kosti vaktafyrirkomu-
lag.
Villi Þ. heimsótti mig um helg-
ina og hlustaði af mikilli athygli á
skelfingarsöguna af byggingar-
framkvæmdum ... hérna í næsta
húsi. Það byrjaði að rigna meðan
Villi stóð við hjá mér svo að ég gaf
honum regnhlíf og bað hann að
bóka hana sem framlag mitt í
kosningasjóð; menn vita þá hvað-
an þessi regnhlíf kom þegar bók-
hald stjórnmálaflokkanna verður
loksins opnað almenningi.
Eitt langar mig til að spyrja þig
um svo vel verseraður sem þú ert í
íslenska stjórnkerfinu: Hvernig er
það þegar embættismenn sveitar-
félaga (í þessu tilviki byggingar-
fulltrúinn í Reykjavík) svara ekki
fyrirspurnum frá almenningi (í
þessu tilviki mér), hvern getur
maður þá fengið til að taka í lurg-
inn á þeim?
Ekki segja mér að klaga hann
fyrir borgarstjóranum því að ég
held að það sé ekki á raunir þeirr-
ar blessuðu manneskju bætandi.
Eitthvert stjórnvald annað en
Guð almáttugur hlýtur að standa
fyrir ofan sveitarstjórnir og aðgæta
hvort grundvallarreglur þjóðfé-
lagsins séu virtar í einstökum
sveitarfélögum.
Ekki segja mér samt að í þessu
tilviki sé það umhverfisráðherrann
því að blessaða prestsmaddömuna
vildi ég ekki trufla fyrir nokkurn
mun svo að hún villist ekki út af
skrifstofunni og týnist í óbyggð-
um.
Er ekki til einhver hlutlaus aðili
svo sem umboðsmaður almennings
eða eitthvað í þá veru sem maður
getur snúið sér til þegar maður þarf
að kvarta undan brútalíteti emb-
ættismanna og sveitarstjórna?
Þessi Hlaðvarpabygging er
samkvæmt mælingum byggingar-
fulltrúans í Reykjavík 60 senti-
metrum hærri en teikningar,
grenndarkynning og samþykktir
leyfa. Niðurstaða hans var að a)
reyna að flækja málið með því að
halda því fram að hæð bygginga
fari eftir því hvernig mælingarað-
ferðir séu notaðar á þær (sem er
alveg dásamleg lógík og sýnir að
maðurinn hefur þó altént húmor)
og b) að skuggavarp af umfram
hæð (sem er engin samkvæmt
hans eigin reikningsbókum) sé
óverulegt og því sé ekki ástæða til
að hlusta á kvartanir nágranna.
Mér persónulega er nokkuð
sama um hvað R-listagengið telur
skynsamlegt að bæta mörgum
hótelherbergjum ofan á friðuð
hús í miðbænum; það sem pirr-
ar mig er framkoma embættis-
manna og sveitarstjórnar-
innar sem ekki hafa
manndóm í sér til að
svara fyrirspurnum eða
kvörtunum – sem eru
lögmætar – heldur
þröngva ólögmætum
aðgerðum í gegn með
þumbarahætti og yfir-
læti.
Mér er líka slétt sama
í hvaða stjórnmálaflokk-
um það fólk þykist vera
sem kemur svona fram;
svona framkoma er ólýð-
ræðisleg og í mínum munni
heita þeir ... fasistar sem
stjórna með ólýðræðislegum
hætti.
Af því að þú ert sósjaldemókrat
í merg og bein og fyrsti þingmaður
Reykvíkinga datt mér í hug að
vekja athygli þína á þessu máli.
Það merkilega við þetta, fyrir utan
dólgslega framkomu embættis-
manna og stjórnvaldsins, er að
héðan í frá er komið fordæmi sem
gerir byggingaraðilum auðvelt að
byggja eftir sínu eigin höfði og
varðveita samþykktar teikningar
á nagla á starfsmannasalerninu.
Ég er í sjálfu sér ekki að ætlast
til þess að þú aðhafist eitt eða
neitt, kannski ertu alveg jafn ráða-
laus og ég sjálfur í þessu máli.
En ég vildi þó að minnsta kosti
vekja athygli þína á heilsufarinu
hjá lýðræði og stjórnarháttum
hérna í kjördæminu.
Vertu svo ævinlega kært kvadd-
ur,
þinn vinur Þráinn Bertelsson
Fischerssundi 3, 101 R
■ FIMMTUDAGUR, 4. MAÍ
Viðtal við skólablað
Fór að hitta krakka í Laugarnes-
skóla. Þau vildu taka viðtal við
mig og þar var ekki verið að kasta
til höndunum. Gaman að sjá hvað
þau voru glöð og upplitsdjörf.
Flottir krakkar. Ekki var ég svona
á þeirra aldri. Ef einhver hefði
komið með sextugan rithöfund
þegar ég var í tíu ára bekk og sagt
mér að taka viðtal við hann hefði
ég hoppað út um gluggann.
OPIÐ ELDHÚS
VELKOMIN Í GLÆSILEGAN
SÝNINGARSAL OKKAR
AÐ LÁGMÚLA 8
sýningarhelgi
OPIÐ LAUGARDAG FRÁ 11-17
OG SUNNUDAG FRÁ 13-17
LÁGMÚLA 8 • SÍMI 530 2800
- HTH eldhús eru ekki eins dýr og þau líta út fyrir að vera.
Ef þú ert að huga að nýju eldhúsi er upplagt að skoða kosti HTH. Í glæsilegum sýningarsal
okkar sérðu allt það nýjasta í eldhústækjum frá AEG fléttað saman við innréttingar frá HTH.
Þetta samspil HTH og AEG er ekki bara fallegt og vandað heldur er heildarlausn af þessu tagi
á góðum kjörum hjá Bræðrunum Ormsson.