Fréttablaðið - 06.05.2006, Qupperneq 26
6. maí 2006 LAUGARDAGUR26
timamot@frettabladid.is
Margrét Sigurðar-
dóttir (Magga massi)
er fertug.
Reinhard Reynisson
bæjarstjóri á Húsavík
er 46 ára.
Geir Svansson mynd-
listarmaður er 51 árs.
Guðmundur Péturs-
son, lögfræðingur og
fyrrverandi markvörð-
ur, er sextugur.
Einar Sigurbjörnsson
guðfræðingur er 62
ára.
AFMÆLI
ANDLÁT
Guðrún Sigurbergsdóttir,
Rauðarárstíg 9, lést á líknardeild
Landakotsspítala þriðjudaginn
2. maí.
Geir Garðarsson, Skálateigi 1,
áður Ægisgötu 3, Akureyri, lést á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
miðvikudaginn 3. maí.
JARÐARFARIR
10.30 Valdimar Guðmundsson,
verður jarðsunginn frá
Landakirkju í Vestmanna-
eyjum.
11.30 Gunnar Ásberg Helgason,
Lambhaga, Rangárvöllum,
verður jarðsunginn frá Sel-
fosskirkju. Jarðsett verður
að Keldum á Rangárvöllum.
13.00 Rúnar Jón Ólafsson,
Vogatungu 105, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá
Kópavogskirkju.
13.30 Jón Skagfjörð Stefánsson
fyrrverandi útgerðarmað-
ur frá Brúarlandi, Dalvík,
verður jarðsunginn frá
Dalvíkurkirkju.
14.00 Guðmundur Lúðvíksson,
Bakkasíðu 10, Akureyri,
verður jarðsunginn frá
Raufarhafnarkirkju.
14.00 Jón Guðmundsson frá
Sjólyst í Vestmannaeyjum
verður jarðsunginn frá
Landakirkju.
Loftfarið Hindenburg
brotlenti við bandarísku
flotastöðina í Lakehurst
í New Jersey þennan
dag árið 1937. Hinden-
burg var að lenda í
Bandaríkjunum eftir
sextíu daga ferð frá
Frankfurt í Þýskalandi.
Á þessum tíma tók það
loftför þrjá daga að fara
yfir Atlantshafið, sem
var styttri tími en skip
þurftu.
Loftför nutu mikill-
ar hylli á þriðja og fjórða áratugnum en fyrsta
farið var hannað árið 1852. Þau voru oft nefnd
Zeppelin-för eftir Þjóðverjanum Ferdinand von
Zeppelin. Hindenburg
var stærsta loftfarið sem
byggt hefur verið og
var rúmir 24 metrar að
lengd. Það náði 137 km
hraða á klukkustund og
hélst uppi af vetnisgasi,
sem er mjög eldfimt.
Farþegar voru 36 og 61
í áhöfn. Skipið var að
lenda í Lakehurst þegar
skyndilega kviknaði í
því og það féll til jarðar.
36 létust í slysinu, þar
af þrettán farþegar, 21
úr áhöfn og einn úr áhöfn á jörðu. Notkun loftfara
varð óvinsæl eftir slysið og engin loftskip voru eftir
við lok síðari heimsstyrjaldarinnar.
ÞETTA GERÐIST: 6. MAÍ 1937
Hindenburg brotlendir í New Jersey
MERKISATBURÐIR
1889 Eiffelturinn er opnaður
almenningi á heimssýning-
unni í París.
1912 Mjög stór jarðskjálfti á
Suðurlandi og íbúðarhús og
útihús hrynja. Stærð skjálft-
ans hefur verið áætluð 7
stig á Richter-kvarða.
1954 Hinn 25 ára Roger Bannist-
er er fyrsti maðurinn sem-
hleypur eina mílu á minna
en fjórum mínútum.
1981 Bandaríski framhaldsþáttur-
inn Dallas er í fyrsta sinn á
dagskrá Sjónvarpsins.
1986 Hornsteinn er lagður að
húsi Seðlabankans.
1994 Ermarsundsgöngin opnuð.
1995 Átján skólabörn frá Breið-
dalsvík slasast þegar rúta
fer af vegi.
MARLENE DIETRICH (1901-1992)
LÉST ÞENNAN DAG
„Glamúr er það sem ég
sel, eins og hlutabréf á
markaði.“
Þýska leikkonan Marlene Dietrich
gerði glamúrnum hátt undir höfði.
Ævintýralega málþingið
„Einu sinni var...“ er haldið
á Þjóðminjasafni Íslands í
dag. Þar munu fræðimenn
úr fremstu röð koma fram
og fjalla um ævintýri frá
ýmsum hliðum. Málþingið
er haldið í minningu Hall-
freðs Arnar Eiríkssonar
sem var sérfræðingur á
Árnastofnun sem meðal ann-
ars safnaði og rannsakaði
ævintýri. Samhliða málþing-
inu verður sett upp örsýning
á munum sem tengjast ævin-
týrum.
Að málþinginu stendur
Félag þjóðfræðinga í sam-
starfi við Árnastofnun og
Þjóðminjasafn Íslands. Til
máls taka Árni Björnsson,
Rósa Þorsteinsdóttir, Krist-
ín Unnsteinsdóttir, Roland
Eyvindsson, Baldur Haf-
stað, Aðalheiður Guðmunds-
dóttir og Ásdís R. Magnús-
dóttir.
Málþingið hefst klukkan
13 og stendur til klukkan
16.45 í fyrirlestrarsal Þjóð-
minjasafnisins. Aðgangur
er ókeypis og allir vel-
komnir.
Ævintýri í Þjóðminjasafninu
HVÍLIR SIG Á BÆNUM Þessi Íraki
situr íhugull á bænateppinu í Imam
Ali moskunni í borginni Najaf.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
BJARNI HAFSTEINN GEIRSSON FRAMKVÆMDASTJÓRI HAUKA Haukar halda upp á 75 ára afmæli félagsins í dag. Á afmælisdaginn var afhjúpað stuðla-
bergsverk fyrir framan Haukaheimilið úr þrettán stuðlabergssteinum til heiðurs stofnendum félagsins sem voru þrettán talsins. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Í dag er Haukadagurinn haldinn hátíð-
legur með pompi og prakt. Tilefnið er
75 ára afmæli félagsins. Opið hús verð-
ur að Ásvöllum í Hafnarfirði og eru
allir velkomnir til veislunnar.
„Við erum sérstaklega að reyna að
höfða til unga fólksins með þessum degi
og einnig til íbúanna í nýja Vallarhverf-
inu,“ segir Bjarni Hafsteinn Geirsson,
framkvæmdastjóri Hauka en dagskrá-
in er bæði skemmtileg og fjölbreytt.
Veltibíllinn verður á staðnum og teflt
verður í skák. Einnig verður þrauta-
braut og Björgvin Franz skemmtir gest-
um ásamt því að deildir félagsins munu
kynna starfsemi sína. „Haukabandið,
sem er hljómsveit sem er að láta að sér
kveða, ætlar að spila nokkur lög. Í
Haukabandinu eru strákar úr fótbolta-
deildinni og þeir eru nokkuð góðir tón-
listarmenn,“ segir Bjarni stoltur af sínu
fólki. „Að sjálfsögðu bjóðum við upp á
veitingar allan daginn fyrir gesti og
gangandi. Vöfflur með rjóma og kakó
og nammi fyrir börnin.“
Haukar halda úti öflugu íþróttastarfi
þar sem boðið er upp á handbolta, fót-
bolta, körfubolta, karate, skíðadeild og
skákdeild sem er nú komin í fyrstu
deild og orðin liðtæk í Evrópumót.
„Félagið hefur eflst mikið síðustu árin
og þá sérstaklega eftir að við komum að
Ásvöllunum í nýja húsið,“ segir Bjarni.
„Framundan eru fyrirhugað að byggja
nýjan sal við húsið.“ Haukar halda þó
fast í rætur sínar enda er mikilvægt
öllum að halda tengslum við sögu sína.
„Hér er starfandi öldungaráð en í því
eru okkar elstu félagar, sem eru á aldur
við Haukafélagið, sá elsti 92 ára og er
hann einn af stofnendum félagsins. Öld-
ungaráðið hittast hér einu sinni í mán-
uði og spila. Þetta er góður hópur sem
reynist Haukum vel.“
12. apríl var afmælisdagur félagsins
en þá var haldin vegleg afmælishátíð.
„Á afmælisdaginn var afhjúpaður
minnisvarði framan við húsið sem tákn-
ar stofnun félagsins og stofnendurnar,“
segir Bjarni en Haukahátíðin er eins-
konar framhaldsafmælishátíð þar sem
hátíðleikinn víkur ögn fyrir meiri gleði
og fjöri.
-jóa
BJARNI HAFSTEINN GEIRSSON: 75 ÁRA AFMÆLI HAUKA
Hátíðlegur Haukadagur
Ingibjörg Ólafsdóttir lést á hjúkr-
unarheimilinu Eir sunnudaginn
23. apríl. Útför fór fram í kyrrþey.
Laufey Pálsdóttir frá Fossi á Síðu,
Dvergabakka 12, Reykjavík, lést á
Landspítala Fossvogi miðvikudag-
inn 3. maí.
Sigríður Ólafsdóttir, Mánatúni
4, Reykjavík, lést á heimili sínu
miðvikudaginn 3. maí.
Sigríður Þorsteinsdóttir, hjúkrun-
arheimilinu Skjóli, áður Álfheim-
um 26, lést miðvikudaginn 3. maí.
Sólveig Guðrún Halldórsdóttir
hjúkrunarkona, áður til heimilis í
Ljósheimum 10a, Reykjavík, lést
á dvalarheimilinu Seljahlíð þriðju-
daginn 2. maí.
LOFTFARIÐ HINDENBURG
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Ævin-
týralegt málþing er haldið í
safninu í dag.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Ingunn Helgadóttir
til heimilis á Hjúkrunarheimilinu Eir,
(áður Kambsvegi 4)
sem lést föstudaginn 28. apríl verður jarðsungin frá
Grafarvogskirkju mánudaginn 8. maí kl. 13.00.
Helga A. Einarsdóttir Marteinn Jakobsson
Halldór Einarsson Brigitte Einarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Sigríður Ólafsdóttir
Mánatúni 4, Reykjavík,
lést á heimili sínu miðvikudaginn 3. maí.
María Friðjónsdóttir Ástmundur Kristinn Guðnason
Ólafur Héðinn Friðjónsson Auður Gunnarsdóttir
Kristín Lára Friðjónsdóttir Erlendur Helgason
og barnabörn.