Fréttablaðið - 06.05.2006, Page 77
hafði þó ekki erindi sem erfiði og
það kemur því í hlut Tom Hanks
að leysa Da Vinci gátuna án þess
að leyniþjónustumaðurinn Jack
Bauer komi þar nærri.
Grazer og Howard eru ekki
vanir því að taka að sér verkefni
fyrir aðra en stóðust ekki mátið
þegar handhafar kvikmyndarétt-
arins leituðu til þeirra þannig að
Grazer komst að lokum með putt-
ana í bók Browns. Da Vinci Code
kostaði 125 milljónir dollara í
framleiðslu en mun væntanlega
ná þeim kostnaði inn á örfáum
sýningardögum. Howard lagði
mikinn metnað í að koma sögunni
sem best til skila á hvíta tjaldið og
lagði upp með að áhorfendur ættu
að geta horft á bókina í bíó.
Saga Browns gerist í rauntíma
á 20 klukkustundum og það segir
sig því sjálft að mörgu þurfti að
sleppa til þess að koma henni fyrir
í tæplega þriggja tíma bíómynd.
Howard fullyrðir þó að allt sem
skipti máli fyrir heildina sé í
myndinni og Brown er á sama
máli. „Ég held að þessi mynd muni
hrista verulega upp í áhorfendum
og ég er þess fullviss að fólk muni
ganga út úr kvikmyndahúsinu og
finnast það hafa verið að horfa á
skáldsöguna,“ sagði hann í yfir-
lýsingu sem hann sendi
Newsweek.
Kvikmyndað í Louvre
Lovre-safnið í París kemur mikið
við sögu í Da Vinci lyklinum. Safn-
ið hefur að geyma margar af
helstu perlum listasögunnar og
það var því síður en svo hlaupið
að því að fá að kvikmynda þar.
Howard gat þó ekki hugsað sér að
nota tilbúna sviðsmynd þar sem
slíkt myndi draga úr trúverðug-
leika myndarinnar og linnti því
ekki látum fyrr en hann fékk inni
í Louvre.
Jaques Chirac, forseti Frakk-
lands, blandaði sér í málið og boð-
aði Howard og Grazer á sinn fund.
Hann bauð þeim félögum upp á
kaffi og sagði þeim að hika ekki
við að hafa samband við sig ef
stjórnendur Louvre yrðu til vand-
ræða. Þá notaði hann tækifærið til
þess að reyna að fá þá til þess að
ráða dóttur góðs vinar síns í hlut-
verk Sophie og fór þess á leit að
þeir greiddu franska leikaranum
Jean Reno meira fyrir að leika
kögreglufulltrúann Bezu Fache.
Forsetanum varð þó ekki að óskum
sínum. Audrey Tautou hreppti
hlutverk Sophie og Reno var þegar
búinn að skrifa undir og því ekki
ástæða til að bera á hann meira
fé.
The Da Vinci Code verður
frumsýnd með viðhöfn á kvik-
myndahátíðinni í Cannes þann 19.
maí og þann sama dag byrjar hún
að rúlla í kvikmyndahúsum úti um
allan heim og krónur, dollarar,
evrur, jen og pund munu streyma í
vasa aðstandendanna sem vita upp
á sína tíu fingur að Tom Cruise,
sjóræningjar og stökkbreyttar
myndasöguhetjur mega sín ekki
mikils gegn Tom Hanks í risa-
mynd sem gerð er eftir skáldsögu
sem hefur verið á milli tannanna á
heimsbyggðinni um árabil.
Bandaríski rithöfundurinn Dan Brown
fæddist 22. júní í New Hampshire og
ólst þar upp elstur þriggja systkina.
Móðir hans var organisti en faðir hans
stærðfræðikennari í virtum einka-
skóla, sem Brown nam sjálfur við
og fékk kristilegt uppeldi. Faðir hans
mun líka hafa vakið áhuga sonar síns
á dulmálslyklum og táknfræði sem
setja sterkan svip á bækur Browns.
Brown ætlaði að leggja tónlistina
fyrir sig. Hann samdi á hljóðgervil og
gaf út þrjá geisladiska á árunum 1990
1994 við lítinn orðstír. Sá þriðji heitir
Angels and Demons og skartar sömu
myndskreytingu á umslagi og kápa
samnefndar bók hans, sem kom út á
Íslandi í þýðingunni Englar og djöflar.
Eiginkona Browns heitir Blythe
Newlon og er tólf árum eldri en hann.
Hún lagði mikið af mörkum til tónlist-
arferils eiginmanns síns og ekki síður
til ritstarfa hans. Í formála bókarinnar
Blekkingarleikur þakkar Brown eigin-
konu sinni til dæmis fyrir ötula rann-
sóknarvinnu og mikilvægt framlag við
gerð bókarinnar. Árið 1994 fór Brown
að kenna ensku við gamla mennta-
skólann sinn í New Hampshire og um
svipað leyti byrjaði hann á sinni fyrstu
bók, Digital Fortress. Hann sneri
sér alfarið að skriftum árið 1996 og
tveimur árum síðar kom Digital For-
tress út. Hún vakti ekki mikla athygli
frekar en næstu bækur hans, Englar
og djöflar (2000) og Blekkingaleikur
(2001), en í fyrri bókinni kemur tákn-
fræðingurinn Robert Langdon fyrst til
sögunnar. Brown sló hins vegar í gegn
með Da Vinci lyklinum árið 2003. Hún
fór í efsta sæti metsölulista New York
Times viku eftir útgáfu og hefur síðan
farið sigurför um heiminn. Í kjölfarið
hafa fyrri bækur Browns tekið kipp
í sölu. Hann vinnur nú að nýrri bók
sem heitir Salómons lykillinn. Hún
gerist í Wasington borg í Bandaríkj-
unum og fjallar um leyndardóma Frí-
múrarareglunnar. Útgáfudagur henn-
ar hefur ekki verið ákveðinn.
Ófarsæll tónlistarmaður sem sneri sér að skriftum
DAN BROWN Faðir hans vakti áhuga hans á dulmálslyklum. NORDICPHOTOS/ GETTY IMAGES
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4
1 dálkur 9.9.2005 15:18 Page 4
LAUGARDAGUR 6. maí 2006 45