Fréttablaðið - 06.05.2006, Side 89
LAUGARDAGUR 6. maí 2006 57
FÓTBOLTI Stuðningsmenn Liverpool
hafa beðið spenntir síðustu daga
enda var framtíð Robbie Fowler í
lausu lofti, en hann er í guðatölu
hjá stuðningsmönnum félagsins
enda einn mesti markahrókur í
sögu Liverpool.
Stuðningsmennirnir fögnuðu
síðan ákaft í gær þegar Liverpool
staðfesti að það ætlaði að fram-
lengja samninginn við Fowler,
sem oft er einfaldlega kallaður
Guð á Anfield, um eitt ár en hann
hefur leikið vel síðustu vikur og
skorað nokkuð reglulega og sum
mörkin hafa verið að skila stigum
fyrir liðið.
„Þetta eru frábærar fréttir.
Robbie hefur staðið sig mjög vel
og á skilið að fá nýjan samning,“
sagði Rafael Benitez, knattspyrnu-
stjóri Liverpool, við breska fjöl-
miðla í gær. „Hann hefur skorað
mikilvæg mörk og lagt mjög hart
að sér. Ég er mjög sáttur við að
hafa hann í hópnum hjá mér næsta
vetur. Hann er mikilvægur hlekk-
ur í keðjunni.“
Fowler hefur spilað fimmtán
leiki fyrir Liverpool í vetur, en
hann kom frá Man. City skömmu
eftir áramót, og hefur skorað
fjögur mörk í þessum fimmtán
leikjum. - hbg
Stuðningsmenn Liverpool kættust mikið í gær:
Robbie Fowler fær nýjan
samning hjá Liverpool
ROBBIE FOWLER Sáttur við að fá nýjan samning. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
BOX Einn besti og vinsælasti hnefa-
leikamaður veraldar, Oscar de la
Hoya, snýr aftur í hringinn í kvöld
þegar hann mætir Ricardo
Mayorga í bardaga sem vafalítið
verður mjög tvísýnn og skemmti-
legur.
Gulldrengurinn, eins og De la
Hoya er iðulega kallaður, hefur
verið fjarverandi um nokkra hríð
og óttuðust margir að hann myndi
aldrei stíga aftur í hringinn.
Bardaginn komst reyndar í
uppnám í vikunni þegar Mayorga
hótaði að sniðganga bardagann
þar sem hann var ekki sáttur við
launatékkann sinn en hann er ansi
langt undir því sem de la Hoya
fær. - hbg
Hörkubardagi í kvöld:
De la Hoya
snýr aftur
OSCAR DE LA HOYA Berst í beinni á Sýn
upp úr miðnætti í kvöld.
FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI KSÍ og VISA skrifuðu í
gær undir fjögurra ára samning
um að bikarkeppni sambandsins
bæri nafn VISA. Að auki munu nú
bikarkeppnir KSÍ í 2. og 3. flokki
karla og kvenna heita VISA-bikar-
inn. Þá verður verðlaunafé í VISA-
bikar karla og kvenna jafnað til
muna.
Verðlaunafé í VISA-bikarnum
samkvæmt samningnum er alls
tæpar sex milljónir króna á ári
hverju. Sigurvegararnir, í karla og
kvennaflokki, fá milljón krónur í
sinn hlut, liðin í öðru sæti fá 500
þúsund krónur, og fyrir að komast
í undanúrslit fá lið 300 þúsund.
Fyrstu leikir VISA-bikars karla
í ár eru 11. maí, en VISA-bikar
kvenna hefst 9. júní. - hþh
VISA og KSÍ:
Framlengja
um fjögur ár
MEISTARAR Valsmenn urðu VISA bikar-
meistarar í fyrra. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL
FÓTBOLTI Kvennalið KR hefur feng-
ið til liðs við sig þrjá erlenda leik-
menn sem munu leika með liðinu í
Landsbankadeildinni í sumar.
Emma Wright og Alicia Wilson
hafa þegar fengið leikheimild og
Ciara McGuinness bætist í hópinn
innan skamms.
Emma Wright er 25 ára Eng-
lendingur og getur leikið á miðj-
unni og í miðri vörninni. Alicia
Maxine Wilson er 25 ára og er
landsliðskona Jamaíku en hún
hefur leikið fimmtán leiki fyrir
hönd þjóðar sinnar. Hún er fjöl-
hæfur leikmaður sem getur spilað
hvar sem er á vellinum.
Ciara McGuinness er 23 ára Íri
sem hefur leikið á miðjunni og í
sókninni. - hþh
Kvennalið KR í knattspyrnu:
Sankar að sér
leikmönnum
Skífan Laugavegi 26 opið alla daga til 22 · Skífan Smáralind · Skífan Kringlunni · Póstkröfusími 591-5310 · www.skifan.is
skemmtir þér ;)
MESTA ÚRVALIÐ ER Í SKÍFUNNI
YFIR 20.000 TITLAR AF TÓNLIST, DVD OG TÖLVULEIKJUM
Jack Johnson
In Between Dreams
Mark Knopfler & Emmylou Harris
All The Road Running
Pottþétt 40
Safnplata
Eurovision Song Contest
Athens 2006
Pearl Jam
Pearl Jam
Tool
10,000 days
1.799kr.
Rihanna
A Girl Like Me
Snow Patrol
Eyes Open
Jet Black Joe
Full Circle
2.199kr.
1.799kr. 1.799kr. 1.799kr.
1.799kr. 1.799kr.
DVD
CD
2.199kr.
2CD
2.199kr.
2CD
HELGARTILBOÐ!