Fréttablaðið - 08.06.2006, Side 2
2 8. júní 2006 FIMMTUDAGUR
Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val
á réttri dýnu alla fimmtudaga á milli kl. 16 og 18.
Opið virka daga: 10-18
Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
SPURNING DAGSINS
Guðmundur, kemur til greina
að vinna við andlitsmálun?
„Nei, ég stunda fótógrafí sem er að
mála með ljósi.“
Vegna nýrra reglna um útgáfu vegabréfa eiga
umsækjendur nú kost á að fá ókeypis passa-
myndatöku. Guðmundur Kr. Jóhannesson
ljósmyndari segist missa þrjátíu prósent af
viðskiptum sínum vegna þessa.
SLYS Karlmaður á þrítugsaldri lést
þegar bíll hans fór út af Elliða-
vatnsvegi og valt skammt frá
mótum Kaldárselsvegar á tólfta
tímanum í fyrrakvöld.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglunni í Hafnarfirði var
fólksbíl ekið Elliðavatnsveg í átt
að Hafnarfirði þegar ökumaður
missti, að því er virðist, stjórn á
bílnum og hann hafnaði utan
vegar.
Tveir karlmenn voru í bílnum
og var annar þeirra úskurðaður
látinn á vettvangi. Hinn var flutt-
ur á slysadeild Landspítalans og
gekkst undir aðgerð í fyrrinótt.
Hann er ekki talinn í lífshættu.
Orsök slyssins er ókunn en lög-
reglan rannsakar málið. Ekki er
hægt að greina frá nafni hins látna
að svo stöddu. - sh
Banaslys á Elliðavatnsvegi:
Lést í bílslysi
STJÓRNMÁL Miðstjórn Framsóknar-
flokksins kemur saman til fundar í
Súlnasal Hótel Sögu klukkan fjögur
á morgun. Á fundinum verður
ákveðið hvenær flokksþing verður
haldið en á því mun Halldór
Ásgrímsson láta af formennsku
eftir tólf ára setu í embætti.
Í yfirlýsingu sinni á Þingvöllum
á mánudagskvöld sagðist Halldór
ætla að leggja til við miðstjórn að
flokksþing yrði kallað saman
snemma í haust og nýta sjálfur tím-
ann fram að því til að brýna flokks-
menn til dáða.
Háværar raddir eru uppi innan
flokksins um að flýta flokksþing-
inu og halda það jafn skjótt og
auðið er. Horfa menn jafnt til júní-
loka sem ágústbyrjunar en júlí
þykir óheppilegur tími til þing-
halds vegna almennra sumarleyfa.
Tæknileg atriði á borð við húsnæð-
ismál kunna að ráða einhverju um
endanlega dagsetningu flokks-
þingsins en 850 manns höfðu setu-
rétt á síðasta þingi og viðbúið að
bekkurinn verði þéttsetinn enda
mun liggja fyrir fundinum að kjósa
nýja forystu.
Lög Framsóknarflokksins gera
ekki ráð fyrir eiginlegum fram-
boðsfresti til æðstu embætta enda
allir flokksmenn í raun í kjöri. Ekki
er heldur kveðið á um það í lögum
með hve löngum fyrirvara boða
þarf til flokksþings. Það strandar
því ekki á slíkum atriðum þegar
ákveðið er hvenær þingið skuli
haldið.
Samkvæmt venju mun formaður
flytja ræðu á miðstjórnarfundinum
á morgun og að henni lokinni fara
að líkindum fram umræður um
úrslit nýafstaðinna sveitarstjórnar-
kosninga. bjorn@frettabladid.is
Undirbúningur hafinn fyrir flokksþing þar sem ný forysta Framsóknarflokksins verður kjörin:
Flokksþinginu verður líklega flýtt
FLOKKSMENN ÁVARPAÐIR Miðstjórn Framsóknarflokksins kom síðast saman í mars.
LÖGREGLA Lögreglan í Reykjavík
lýsir eftir Hauki Frey Ágústssyni,
en ekkert hefur til hans spurst
síðan á fimmtudaginn 1. júní.
Haukur Freyr er fæddur árið
1982, er um
180 sentimetr-
ar á hæð og
um hundrað
kíló að þyngd.
Hann er þrek-
inn, hokinn,
ljósskolhærð-
ur og var með
ljóst skegg
umhverfis
munn. Hann
var klæddur í
gallabuxur, hvíta skó, svargráa
peysu og með svartan og gráan
bakpoka síðast þegar vitað var.
Ef einhver getur veitt upplýs-
ingar um ferðir Hauks Freys eftir
1. júní er sá hinn sami beðinn að
hafa samband við lögreglu í síma
444-1000. - sh
Lögreglan í Reykjavík:
Lýst eftir 24
ára karlmanni
HAUKUR FREYR
ÁGÚSTSSON
EFNAHAGSMÁL Starfsgreinasam-
bandið tekur vel í hugmyndir Sam-
taka atvinnulífsins, SA, um taxta-
og launahækkanir í sumar til að
koma í veg fyrir uppsögn kjara-
samninga um næstu áramót.
Niðurstaða formannafundar
Starfsgreinasambandsins í fyrra-
dag var sú að vel kæmi til álita að
skoða hugmyndirnar.
Grunnhugmyndin hjá Samtök-
um atvinnulífsins er sú að endur-
skoðunin, sem á að fara fram í
haust, fari fram nú. SA leggur til
að laun hækki aukalega um tvö
prósent og allir launataxtar hækki
um tólf þúsund krónur.
Formenn landssambanda vilja
launahækkun upp á fimmtán þús-
und krónur og að ríkisstjórnin
komi samhliða að samningsborð-
inu með efnahagsráðstafanir sem
geti komið böndum á verðbólguna.
„Við erum með sterkan og góðan
vind í þessum seglum og höfum
áhuga á að ræða þessar útfærslur
en höfum líka sterka fyrirvara,“
segir Kristján.
„Ef svo heldur sem horfir og
ríkisstjórnin situr og skilar
auðu verður þessi ávinning-
ur fljótur að hverfa þannig
að aðgerðir í efnahagsmál-
um, sem gætu tryggt að
verðbólgunni verði náð niður, eru
nauðsynlegar samhliða þessu.“
Formenn landssambanda hafa
væntingar um að ríkisstjórnin
komi að skattkerfisbreytingum
með lægra skattþrepi fyrir lág-
launafólk, geri lagfæringar á
vaxtabótakerfinu og breyti
barnabótakerfinu. „Það þarf að
stokka upp í samfélaginu, ná
tökum á húsnæðismark-
aðnum, taka á
þenslunni og ná
tökum á verð-
bólgunni. Það
kunna að vera
sársaukafullar
aðgerðir fyrir
marga en er eigi
að síður nauð-
synlegt til að
koma í veg fyrir að ávinningurinn
hverfi strax.“
„Það er ljóst að þessi tilraun
byggir á því að það takist víðtæk
sátt, ekki bara milli okkar og SA
heldur líka milli okkar, SA og
stjórnvalda,“ segir Halldór Grön-
vold, aðstoðarframkvæmdastjóri
ASÍ.
Formenn landssambanda hafa
fundað um tillögurnar upp á síð-
kastið og hefur verið vel tekið í
þær. Verið er að skoða mögulega
kröfugerð á sameiginlegum vett-
vangi ASÍ og á morgun skýrist
hvort forsendur eru til að halda
þessari vinnu áfram. Tilboðinu
verður svarað um eða eftir helgi
og er stefnt að því að niðurstaða
liggi fyrir í næstu viku.
ghs@frettabladid.is
Með sterkan og
góðan vind í seglum
Víðtæka sátt þarf milli aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar til að sam-
komulag náist um endurskoðun kjarasamninga í næstu viku. „Erum með sterk-
an og góðan vind í seglunum,“ segir formaður Starfsgreinasambandsins.
HALLDÓR GRÖNVOLD „Þessi tilraun byggir á því að það takist víðtæk sátt,“ segir Halldór
Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KRISTJÁN GUNNARSSON
„Aðgerðir í efnahagsmál-
um, sem gætu tryggt að
verðbólgunni verði náð
niður, eru nauðsynlegar,“
segir Kristján Gunn-
arsson, formaður Starfs-
greinasambandsins.
FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
EFNAHAGSMÁL Saman-
burður er á fjármálum
ríkis og sveitarfélaga í
nýjasta vefriti fjár-
málaráðuneytisins og
eru sveitarfélögin
gagnrýnd fyrir fjár-
festingar. Bent er á að
heildarskuldir þeirra
nemi um 150 milljörð-
um króna í ár og sé það
umfram árstekjur.
Ríkið hafi hins vegar
skilað afgangi.
Þórður Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Sambands
íslenskra sveitarfélaga, telur
ólíku saman að jafna og bendir á
að sveitarfélögin ráði þróuninni
ekki nema að takmörkuðu leyti.
Ríkið hafi selt eignir í stórum stíl
á undanförnum árum og fengið
fyrir þær gríðarlega fjármuni.
Það hvort tekjustofnar sveit-
arfélaga séu í sam-
ræmi við lögskyld og
venjubundin verkefni
þeirra sé sífellt álita-
mál, sama eigi við um
margs konar fjárhags-
leg samskipti ríkis og
sveitarfélaga þar sem
halli á sveitarfélögin í
ýmsum tilvikum.
Eflaust séu sveitar-
félög í sumum tilvik-
um komin út á ystu
nöf í skuldum.
„Á þenslusvæðum hafa sveitar-
félögin orðið að byggja upp þjón-
ustumannvirki vegna fólksfjölg-
unar. Á þeirri þróun hafa þau ekki
vald nema að takmörkuðu leyti og
því fylgir aukin skuldsetning,“
segir hann og telur að fjármála-
samskipti ríkis og sveitarfélaga
þurfi að vera agaðri og markviss-
ari en áður. - ghs
Fjármálaráðuneytið gagnrýnir sveitarfélögin:
Ráða ekki þróuninni
ÞÓRÐUR SKÚLASON
RÚSSLAND, AP Rússneska þingið
samþykkti í gær einróma ályktun
þess efnis að
gagnrýna úkra-
ínsk stjórnvöld
fyrir að stefna
að inngöngu í
Atlantshafs-
bandalagið,
NATO. Þing-
menn segja að
Rússar viður-
kenni rétt hverr-
ar þjóðar til að
stjórna eigin utanríkisstefnu, en
áform Viktors Júsjenkó, forseta
Úkraínu, séu skaðleg samskiptum
ríkjanna.
Júsjenkó komst til valda í „app-
elsínugulu byltingunni“ í janúar
2005. Júsjenkó er mjög hliðhollur
Vesturlöndum, en hann hefur gert
NATO-aðild að forgangsmáli
stjórnar sinnar. -sgj
NATO-áætlanir Úkraínu:
Rússar ósáttir
VIKTOR JÚSJENKÓ
SVÍÞJÓÐ, AP Sænskur karlmaður af
sómölskum uppruna hefur verið
ákærður fyrir að láta umskera
dóttur sína í Mógadisjú í Sómalíu í
fyrra en hún var þá þrettán ára.
Umskurður á stúlkum var
bannaður í Svíþjóð árið 1982 og er
jafnframt bannað að fara með
sænsk börn til annarra landa til að
framkvæma limlestinguna.
Saksóknari byggir mál sitt á
læknisskoðun á stúlkunni og vitn-
isburði hennar. Segir saksóknari
föðurinn hafa haldið telpunni
ásamt öðrum manni á meðan þriðji
maðurinn framkvæmdi aðgerðina.
Talið er að um þrjár milljónir
kvenna og telpna séu umskornar á
ári hverju. - smk
Föður stefnt í Svíþjóð:
Ákært vegna
umskurðar
PARÍS, AP Hækkun olíuverðs mun
þýða enn frekari töf á því að flug-
rekstur í heiminum komist á rétt-
an kjöl, segir í nýrri spá Alþjóða-
flugumferðarsambandsins.
Sambandið hækkaði spá sína í
215 milljarða króna nettótap á
árinu, þegar forstjórar flugfélag-
anna báru saman bækur sínar á
árlegum fundi í París. Haldi olíu-
verð áfram að hækka lítur út fyrir
að ekki takist að forða greininni
frá tapi enn eitt árið í röð, en hún
hefur ekki borið sitt barr frá
hryðjuverkunum 11. september
2001. - sgj
Hækkun olíuverðs:
Flugfélög enn
rekin með tapi
Grunaðir hryðjuverkamenn Sex-
tán ára piltur og 21 árs maður voru tekn-
ir fastir í Bretlandi í gær og á þriðjudag
vegna gruns um aðild að hryðjuverkum.
Breska lögreglan varðist frétta af hand-
tökunum og gaf ekkert út á fregnir þar
í landi um að málin væru tengd hand-
tökum á sautján mönnum í Kanada um
síðustu helgi vegna gruns um skipulagn-
ingu á stórfelldum hryðjuverkum.
BRETLAND