Fréttablaðið - 08.06.2006, Qupperneq 4
4 8. júní 2006 FIMMTUDAGUR
���������������������������������������������������������������������
�������������
������������
������� ���������������
������������������������������������������������������������������
����
�����
�����
�
��� ��� ��
�������������� ���
��������������
�����
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 7.6.2006
Gengisvísitala krónunnar
Bandaríkjadalur 73,26 73,6
Sterlingspund 136,4 137,06
Evra 93,76 94,28
Dönsk króna 12,567 12,641
Norsk króna 12,019 12,089
Sænsk króna 10,156 10,216
Japanskt jen 0,6467 0,6505
SDR 108,92 109,56
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
129,6654
DANMÖRK Tveir tvítugir menn
voru handteknir í gær fyrir morð
á ungum Tyrkja í miðbæ Árósa
að kvöldi þriðjudags.
Samkvæmt fréttum danskra
fjölmiðla brutust út hópslagsmál
milli hóps Tyrkja og Palestínu-
manna á pítsustað í borginni með
þeim afleiðingum að maðurinn var
stunginn banasári í hægri síðu.
Félagar hans komu honum á
sjúkrahús en lífgunartilraunir
lækna báru ekki árangur.
Þetta er annað morðið í Dan-
mörku á jafnmörgum dögum. - ks
Tvö morð á tveimur dögum:
Annar myrtur
í Danmörku
BANDARÍKIN, AP Öldungadeild
Bandaríkjaþings hafnaði í gær
lagabreytingu sem bannað hefði
giftingar sam-
kynhneigðra.
George W.
Bush Banda-
ríkjaforseti
hefur verið mik-
ill talsmaður
lagabreytingar-
innar, en ellefu
atkvæði vantaði
upp á þau sextíu sem þurfti til
þingið allt myndi kjósa um
málið.
Flestir Bandaríkjamenn skil-
greina hjónaband sem samband
milli karls og konu, en jafnframt er
meirihluti þeirra mótfallinn laga-
breytingunni, samkvæmt skoðana-
könnun sem ABC sjónvarpsstöðin
lét gera í vikunni. - smk
Bandaríkjaþing:
Bannar ekki
hjónabönd
GEORGE W. BUSH
VIÐSKIPTI Eigendur Pennans hafa
fest kaup á 73 prósenta hlut í lett-
neska rekstarvörufyrirtækinu AN
Office, (Aigas Nams) sem er þriðja
stærsta fyrirtæki sinnar tegundar
á Eystrasaltssvæðinu. Velta AN
Office var um 1,5 milljarðar króna
á síðasta ári.
Kristins Vilbergssonar, for-
stjóri Pennans, segir kaupverð
trúnaðarmál. Þrír lykilstarfsmenn
fyrirtækisins í Lettlandi keyptu
hlut í AN Office ásamt Pennanum
og starfa þeir áfram hjá fyrirtæk-
inu.
Rúmur þriðjungur af tekjum
fyrirtækisins er frá netsölu og
rekur fyrirtækið verslanir og öfl-
ugar dreifingarmiðstöðvar í
Eystrasaltslöndunum. - jab
Festu kaup á Aigas Nams:
Penninn kaup-
ir í Lettlandi
ÚR VERSLUN PENNANS Eigendur Pennans
hafa keypt 73 prósenta hlut í þriðja stærsta
rekstrarvörurfyrirtæki Lettlands.
VIÐSKIPTI Börsen greinir frá því að
yfirtaka Sterling á Maersk Air á
síðasta ári hafi kostað skildinginn.
Telur blaðið að tap Sterling, dóttur-
félags FL Group, hafi numið 3,7
milljörðum króna á síðasta ári en
1,8 milljörðum á fyrsta ársfjórð-
ungi þessa árs.
Forsvarsmenn FL Group hafa
bent á að hluti þessa taps skýrist
af samrunanum.
Jafnframt kemur fram að FL
Group hafi lagt 3,7 milljarða inn í
rekstur Sterlings til að gera félag-
ið söluvænna. Pálmi Haraldsson,
stjórnarformaður Sterlings og
aðaleigandinn í FlyMe, vill ekki
tjá sig við Börsen um hvort FlyMe
hyggist yfirtaka Sterling en Björn
Olegård, stjórnarformaður
FlyMe, staðfesti við Fréttablaðið
á dögunum að félögin ættu í við-
ræðum. - eþa
Mikið tap hjá Sterling:
Samruni kost-
aði skildinginn
DÓMSMÁL Íslenska ríkið braut
ekki á Nígeríumanni þegar það
neitaði honum um landvistarleyfi
sem flóttamanni, segir í dómi
Héraðsdóms Reykjavíkur.
Maðurinn fær ekki að koma til
landsins eða inn á Schengen-
svæðið næstu þrjú árin.
Dómurinn telur að mat á
aðstæðum mannsins í heima-
landinu hafi verið faglegt og hlut-
laust. Hann þurfi ekki að óttast að
verða ofsóttur í heimalandinu eins
og hann sagði. Íslenska ríkið
greiðir rúmar 850 þúsund krónur
vegna málsins, þar af 800 þúsund
til verjandans, Sigríðar Rutar
Júlíusdóttur. - gag
Fær ekki stöðu flóttamanns:
Sendur heim
til Nígeríu
STJÓRNMÁL Halldór Ásgrímsson
vildi ekki tjá sig um það í gær
hvern hann vildi sjá sem eftir-
mann sinn í formannssæti Fram-
sóknarflokksins eftir að hann
lætur af embætti. Finnur Ingólfs-
son ákvað fyrr í vikunni að snúa
ekki aftur inn á svið stjórnmálanna
þrátt fyrir að hafa verið orðaður
við formannsstólinn, en Halldór
sagðist í ávarpi sínu á Þingvöllum
vonast til þess að Finnur myndi
snúa til baka til starfa fyrir Fram-
sóknarflokkinn.
Guðni Ágústsson, varaformað-
ur Framsóknarflokksins, sendi
frá sér yfirlýsingu á mánudags-
kvöld, eftir að Halldór hafði sagt
af sér, um að forsendur fyrir sam-
komulagi þeirra væru brostnar.
Samkomulagið gerði ráð fyrir því
að Halldór og Guðni segðu báðir
af sér. „Ég ætla ekkert að tjá mig
um það sem Guðni Ágústsson
hefur sagt. Ég held að það hafi
verið sagt heldur of mikið, og ég
ætla mér ekki að vera að segja
meira fyrr en það er búið að koma
saman nýrri skipan í ríkisstjórn,“
sagði Halldór að loknum fundi
með Kazimierz Marcinkiewicz,
forsætisráðherra Póllands,
seinnipartinn í gær. Ekki náðist í
Guðna Ágústsson í gær.
Halldór sagði breytingar fyrir-
sjáanlegar á ríkisstjórninni en
vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
það hvernig þeim yrði háttað.
Siv Friðleifsdóttir, ritari Fram-
sóknarflokksins og heilbrigðis-
ráðherra, vildi ekki tjá sig um
málefni Framsóknarflokksins í
gær, þegar Fréttablaðið leitaði
eftir því. Siv hefur verið orðuð
við frekara forystuhlutverk innan
Framsóknarflokksins eftir að
Halldór lætur af embætti. Hún
vildi hvorki játa því né neita að
hún ætlaði sér að bjóða sig fram
sem formann á flokksþingi Fram-
sóknarflokksins, þar sem ný for-
ystusveit flokksins tekur við
stjórnartaumunum.
Halldór og Marcinkiewicz
ræddu um EES-samninginn og
þátttöku pólskra ríkisborgara á
íslenskum vinnumarkaði. Lýstu
þeir báðir ánægju með að 1. maí
síðastliðinn felldi Ísland niður
hömlur á frjálsa för fólks frá Pól-
landi, þannig að Pólverjar geta nú
komið og leitað sér að vinnu hér-
lendis á sömu forsendum og aðrir
borgarar Evrópska efnahags-
svæðisins.
magnush@frettabladid.is
Segir Guðna hafa
sagt heldur of mikið
Halldór Ásgrímsson, fráfarandi forsætisráðherra og formaður Framsóknar-
flokksins, vildi ekki tjá sig um orð Guðna Ágústssonar í gær. Það hefur heldur
of mikið verið sagt, sagði Halldór eftir fund með forsætisráðherra Póllands.
HALLDÓR SVARAR SPURNINGUM Fréttamenn spurðu Halldór Ásgrímsson út í málefni Framsóknarflokksins eftir að fundi hans með
forsætisráðherra Póllands lauk. Halldór tjáði sig ekki um hver ætti að taka við af honum sem formaður Framsóknarflokksins.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÍSLAND-PÓLLAND Pólski forsætisráð-
herrann Kazimierz Marcinkiewicz
átti viðræður við Halldór Ásgríms-
son forsætisráðherra í Ráðherra-
bústaðnum í Reykjavík í gær. Á
blaðamannafundi í Tjarnargötunni
lýstu þeir báðir ánægju með góð
tengsl þjóðanna tveggja, einkum og
sér í lagi að síðan 1. maí síðastliðinn
gætu Pólverjar komið og leitað sér
að vinnu á Íslandi samkvæmt sömu
skilmálum og aðrir íbúar Evrópska
efnahagssvæðisins.
Halldór sagði um eitt prósent
íbúa Íslands vera Pólverja sem
valið hefðu að setjast hér að og þeir
hefðu getið sér góðan orðstír á
íslenskum vinnumarkaði. Marcink-
iewicz fagnaði því að Ísland skyldi
hafa ákveðið að fella niður hömlur
á frjálsa för fólks frá Póllandi, en
hann tók fram við þá pólsku blaða-
menn sem viðstaddir voru að þar
með væri hann ekki að hvetja Pól-
verja til að yfirgefa Pólland. Ríkis-
stjórn sín ynni að því að skapa ný
störf handa öllum vinnufúsum
höndum heima fyrir. Atvinnuleysi
í Póllandi er um sautján prósent.
Aðalerindi Marcinkiewicz til
Íslands er að sækja leiðtogafund
Eystrasaltsráðsins. - aa
Forsætisráðherrafundur Íslands og Póllands:
Ánægja með frjálsa för fólks
MARCINKIEWICZ OG HALLDÓR Vel fór á
með forsætisráðherrunum í Tjarnargötunni
í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA