Fréttablaðið - 08.06.2006, Side 6
6 8. júní 2006 FIMMTUDAGUR
Allar nánari upplýsingar í Þjónustuveri Hafnarfjarðar, Strandgötu 6
Sími 585 5500 - www.hafnarfjordur.is
���������������� - Rativ - Tungur í leikhúsi - Míkróveröld og morgunstemningar
Ljóð í lauginni - Leikskólalist - Sumarlestur - Brynja og börnin
Aðgangur ókeypis á viðburði nema annað sé tekið fram
��
��
��
��
�
��
��
��
�
���
����� 1.-10. júní 20068. júní
Kl. 14:00 Opið hús í Hraunseli. Skemmtidagskrá eldri borgara.
Hljómsveit Hjörleifs Valssonar, samkvæmisdansar og fl.
� ���������������������
Kl. 17:15 Leiðsögn um útilistaverk fimm listnema við Listaháskóla
Íslands. Listnemarnir Eva Ísleifsdóttir, Katrín Inga Jónsdóttir, Logi
Bjarnason, Svala Ragnarsdóttir og Una Björk Sigurðardóttir segja
frá verkum sínum. - Lagt af stað frá Firði.
Kl. 18:00 Á Dökkumiðum/Krás á köldu svelli.
Tónleikar Ingólfs Steinssonar og félaga í Bókasafni Hafnarfjarðar.
Með Ingólfi leika Steingrímur Guðmundsson, Sunna Ingólfsdóttir
og Arnljótur Sigurðsson.
Kl. 20:00 Ljóðakvöld í Gamla bókasafninu.
Ungskáld frá Nýhil koma fram. Lay Low spilar á milli.
Kl. 21:00 Jazzað við sjóndeildarhringinn
Kvintett Jakobsson og Möller í Golfskála Keilis. Á efnisskránni eru
bæði þekkt jazzlög og frumsamið efni. �����������������������
Lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar
� � �
EFNAHAGSMÁL Ásgeir Jónsson, lekt-
or við viðskipta- og hagfræðideild
Háskóla Íslands, segir að mat
Standard & Poor‘s hafi ekki komið
mjög á óvart. Hvað hinn almenna
neytanda varðar telur Ásgeir að
áhrifin komi fram í lækkun á
gengi íslensku krónunnar. „Aðal-
áhrfin eru í lækkandi gengi sem
getur hækkað verðbólgu ef það
verður varanlegt,“ segir Ásgeir.
Gengislækkun veldur því að
utanlandsferðir almennings verða
dýrari. Aukin verðbólga hefur
áhrif á öll heimili landsins, sér-
staklega þau sem skulda mikið.
Matsfyrirtækið Standard &
Poor‘s telur að aukin hætta sé á
harðari lendingu íslenska hag-
kerfisins eftir mikla útlána- og
fjárfestingarþenslu undanfarin
misseri.
Í febrúar á þessu ári breytti
matsfyrirtækið Fitch einnig horf-
um sínum úr stöðugum í neikvæð-
ar en það kom af stað mikilli
gengislækkun og lækkun á
íslenska hlutabréfamarkaðnum.
Ljóst er að áhrifin verða minni
núna vegna þess að markaðurinn
er nær jafnvægi en hann var í
febrúar. - gþg
Breyttar horfur um lánshæfismat ríkissjóðs:
Gengi krónunnar veikist
ÁSGEIR JÓNSSON Telur að krónan veikist
en það getur valdið hærri verðbólgu.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KJÖRKASSINN
Finnst þér að boða eigi til þing-
kosninga vegna hræringa innan
ríkisstjórnarinnar?
Já 80%
Nei 20%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Ætlarðu að fylgjast með HM í
fótbolta?
Segðu þína skoðun á visir.is
PARÍS, AP Svissneski þingmaðurinn
Dick Marty, sem stýrði rannsókn á
vegum Evrópuráðsins á ásökunum
um meint leyni-
flug og leyni-
fangelsi á vegum
bandarísku
leyniþjónust-
unnar í Evrópu,
sagðist í gær
hafa orðið þess
vísari að stjórn-
völd í fjórtán
Evrópulöndum
hefðu verið í vit-
orði með hinum bandarísku útsend-
urum í „kóngulóarvef mannrétt-
indabrota“. Nefndi hann sérstaklega
Pólland og Rúmeníu í þessu sam-
bandi er hann kynnti niðurstöður
rannsóknarinnar í París í gær.
Marty nefndi herflugvelli í
Rúmeníu og Póllandi sem líklega
staði sem leynilegir fangaflutning-
ar hefðu farið um. Pólski forsætis-
ráðherrann Kazimierz Marcinki-
ewicz vísaði ásökunum þessum á
bug í samtali við fréttamenn fyrir
brottför sína til Íslands í gær. Sagði
hann þær „tóman róg“. Í 67 síðna
skýrslu sinni um niðurstöður rann-
sóknarinnar leggur Marty ekki
fram beinharðar sannanir fyrir
ályktunum sínum, en hann sagði
það hafa valdið sér vonbrigðum að
flestar ríkisstjórnir í Evrópu „virt-
ust ekki sérlega áfram um að kom-
ast að staðreyndum málsins“.
„Jafnvel þótt beinharðar sann-
anir, í sígildum skilningi þess hug-
taks, liggi ekki fyrir að svo komnu
máli benda margar og samverk-
andi vísbendingar til þess að slík
leynileg fangelsi hafi í raun verið
til í Evrópu,“ segir í skýrslunni.
Hann sakar yfirvöld í fjórtán lönd-
um – Bretlandi, Þýskalandi, Ítalíu,
Svíþjóð, Bosníu, Makedóníu, Tyrk-
landi, Spáni, Kýpur, Írlandi, Grikk-
landi, Portúgal, Rúmeníu og Pól-
landi – um samsekt í „ólöglegum
flutningi fólks milli landa“.
Meginheimildir Martys eru
flugdagbækur sem evrópska flug-
umferðarmiðstöðin Eurocontrol
lét honum í té, vitnisburður fólks
sem segist hafa verið numið á brott
af bandarískum leyniþjónustu-
mönnum og rannsóknir á sams
konar ásökunum sem gerðar voru
á vegum þjóðþinga í hinum ýmsu
löndum Evrópu.
Marty segist hafa komist að því
að í sumum löndum hafi útsendur-
um CIA verið leyft að nema á brott
einstaklinga sem dvöldust í viðkom-
andi löndum. Í öðrum hafi þeim
verið leyft að fljúga um lofthelgi
landsins eða stjórnvöld látið sem
þau vissu ekki af starfsemi erlendr-
ar leyniþjónustu á yfirráðasvæði
þeirra. audunn@frettabladid.is
Evrópuríki sögð samsek
Í niðurstöðum rannsóknar Evrópuráðsins á ásökunum um fangaflug og leynifangelsi CIA í Evrópu eru
yfirvöld í fjórtán Evrópulöndum sögð samsek útsendurum Bandaríkjanna um mannréttindabrot.
DICK MARTY
ÍRAN, AP Stórveldi heims eru reiðu-
búin að hverfa frá þeirri kröfu að
Íranar skuldbindi sig til þess að
auðga ekki úran og biðja þá nú
aðeins um að hætta þeirri starf-
semi tímabundið á meðan frekari
viðræður um framtíð kjarnorku-
áætlunar Írana fara fram. Ónafn-
greindir erindrekar sem þátt eiga
í sáttaumleitununum við Írana
tjáðu AP-fréttastofunni þetta.
Írönum hefur enn fremur verið
boðin sú tilslökun að þeir megi
halda áfram umbreytingu úrans,
það er efnaferli sem er forstig
auðgunar, ef þeir fallast á fjölhliða
viðræður.
Slíkar tilslakanir gefa til kynna
að forsvarsmenn alþjóðasam-
félagsins séu reiðubúnir að fallast
á takmarkaða kjarnorkustarfsemi
í Íran, þrátt fyrir áhyggjur af því
að hún kunni að verða misnotuð til
að framleiða efni í kjarnorku-
sprengjur. Frá því að slitnaði upp
úr viðræðum Evrópuveldanna
þriggja, Breta, Frakka og Þjóð-
verja, við Írana í ágúst í fyrra
hefur opinber afstaða þeirra og
Bandaríkjanna verið sú að for-
senda fyrir endurupptöku við-
ræðna sé að Íranar skuldbindi sig
til langtímabanns við tilraunum
með auðgun úrans. - aa
Breytt stefna í viðræðum um kjarnorkuáætlun Írana:
Slakað á banni
SOLANA KYNNIR VIÐRÆÐUR Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, ásamt þýska kanslar-
anum Angelu Merkel í Berlín í gær. Hann ræddi sáttatilboð stórveldanna við ráðamenn í
Teheran fyrri part vikunnar. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJARAMÁL Læknanemar sem standa
í kjaradeilu við Landspítalann hafa
ákveðið að efna til mótmælasetu í
anddyri spítalans við Hringbraut í
hádeginu í dag.
Í tilkynningu sem þeir sendu
frá sér í gær segir að lítið hafi þok-
ast í samningsátt og að þeir voni að
ekki þurfi að koma til þess að
öryggi sjúklinga sé stefnt í hættu.
Þeir harma jafnframt það aukna
álag á starfsfólk sem af þessu
hlýst. Að gefnu tilefni benda þeir á
að læknanemar séu „ekki að berj-
ast fyrir auknum réttindum eða
launahækkunum, heldur að halda
þeim réttindum sem þeir hafa áður
haft.“ - sh
Læknanemar í kjarabaráttu:
Mótmælaseta
á spítalanum
SAMFÉLAGSMÁL Svavar Sigurðsson,
ellilífeyrisþegi frá Reykjavík,
færði lögreglunni á Akranesi höfð-
inglega gjöf í gær. Um er að ræða
tækjabúnað sem nýtist lögreglu
við rannsóknir brotamála og þá
sérstaklega fíkniefnamála.
Svavar hefur helgað líf sitt bar-
áttu gegn fíkniefnavandanum um
ellefu ára skeið og lagt lögreglu,
tollgæslu og ýmsu forvarnarstarfi
lið með gjöfum. Í upphafi lagði
Svavar til fjármuni sem hann átti
sjálfur en síðustu árin hefur hann
fjármagnað baráttuna með fram-
lögum frá fyrirtækjum og stofn-
unum. - shá
Lögreglan á Akranesi:
Berst gegn
fíkniefnavánni
KOSNINGAR Skipuð var kærunefnd
í gær sem ætlað er að skera úr um
réttmæti kæru sem borist hefur
sýslumannsembættinu í Reykja-
vík vegna framkvæmdar sveitar-
stjórnarkosninganna í lok maí.
Nefndina skipa hæstaréttarlög-
mennirnir Þorsteinn Einarsson,
formaður, Viðar Lúðvíksson og
Kristinn Bjarnason.
Að sögn Ólafs Hannibalssonar,
talsmanns Þjóðarhreyfingarinnar,
sem kært hefur framkvæmd kosn-
inganna, hefur nefndin viku til
þess að leita umsagnar yfirkjör-
stjórnar í Reykjavík og aðra viku
til þess að skila niðurstöðu sinni.
- jh
Kosningarnar í Reykjavík:
Nefnd skipuð
ÞAKKAÐ FYRIR Ólafur Þór Hauksson, sýslu-
maður á Akranesi, tekur hér við gjöfinni úr
hendi Svavars Sigurðssonar. MYND/JSÓ
Bæjarlistamaður Óperusöngkonan
Elín Ósk Óskarsdóttir var útnefnd bæj-
arlistamaður Hafnarfjarðar við setningu
listahátíðarinnar Bjartir dagar á fimmtu-
dag. Auður Vésteinsdóttir myndlistar-
maður og Eyrún Ósk Jónsdóttir, leikstjóri
og leikskáld, hlutu hvatningarstyrki.
HAFNARFJÖRÐUR
FRÁ HERFLUGVELLI Í RÚMENÍU Flugdagbækur benda til þess að Rúmenía sé eitt þeirra fjórtán Evrópulanda sem svissneski þingmaður-
inn Dick Marty hefur grunuð um að hafa verið samsek CIA um meint leyniflug og leynifangelsi á vegum bandarísku leyniþjónustunnar í
Evrópu. NORDICPHOTOS/AFP
DÓMSMÁL Aðalmeðferð í meiðyrða-
máli Friðriks Þórs Guðmundsson-
ar á hendur Sigurði Líndal vegna
ummæla um Skerjafjarðarskýrsl-
una svokölluðu fór fram í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær.
Sigurður var formaður nefndar
sem kannaði rannsókn flugslyss-
ins í Skerjafirði á sínum tíma og
vann skýrslu um málið. Greint var
frá efni skýrslunnar í fréttum
Stöðvar 2 tveimur dögum áður en
kynna átti hana fyrir fjölmiðlum á
blaðamannafundi. Sigurður aflýsti
fundinum og sakaði Friðrik Þór
um að hafa lekið skýrslunni. Frið-
rik neitaði því og höfðaði meið-
yrðamál á hendur Sigurði. - sh
Meiðyrðamál í Héraðsdómi:
Neitar leka