Fréttablaðið - 08.06.2006, Síða 8
8 8. júní 2006 FIMMTUDAGUR
Félagar í Vildarþjónustu
fá 50% afslátt
hjá Flugfélagi Íslands
Skoðaðu sumartilboð Vildarþjónustu Sparisjóðsins á spar.isFí
t
o
n
/
S
Í
A
LETTLAND, AP Þing Lettlands sam-
þykkti í gær að birt skyldu nöfn
þeirra 4.500 manna sem grunaðir
eru um að hafa verið uppljóstrarar
KGB, leyniþjónustu Sovétmanna.
Nöfnin eru fengin úr ófullgerð-
um skýrslum sem leyniþjónustan
skildi eftir sig árið 1992 og hefur
lengi verið deilt um réttmæti þess
að birta þau, enda fátt í skýrslunum
sem bregður ljósi á hlutverk upp-
ljóstraranna. Sumir þeirra gætu
vel hafa verið nauðbeygðir til starf-
ans, aðrir gætu verið sárasaklausir
af öðru en að hafa verið á skrá.
Þeim verður þó gefið færi á að
sanna sakleysi sitt, sé það hægt.
Síðustu tólf ár hafa einstakling-
ar í Lettlandi fengið að skoða skýrsl-
ur um sjálfa sig en ekki aðra. Þó
hafa verið birtar skýrslur þeirra
sem sækjast eftir opinberum emb-
ættum. Í þeim tilfellum sem upp
hefur komist um tengsl við KGB
hafa frambjóðendur þurft að draga
sig í hlé. Forseti landsins, Vaira
Vike-Freiberga, þarf að samþykkja
frumvarpið umdeilda áður en það
tekur gildi, en hún hafnaði álíka
frumvarpi fyrir tveimur árum. - kóþ
Lettar gera upp fortíðina í samskiptum við Sovétríkin:
Hulunni svipt af njósnurum
RIGA Deilt er um nauðsyn nafnabirtinga.
BORGARMÁL Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson, verðandi borgarstjóri í
Reykjavík, segist ekki útiloka það
að gerðar verði breytingar á
stjórnsýslu Reykjavíkurborgar
eftir að Sjálfstæðisflokkur og
Framsóknarflokkur taka við
stjórnartaumunum í borginni.
„Við sjálfstæðismenn vorum
ósammála ýmsu sem gert var í tíð
R-listans. Aðalmálið er að stjórn-
sýslan virki vel og sé þjónustu-
væn fyrir íbúa borgarinnar.“
Tólf sviðsstjórar starfa hjá
Reykjavíkurborg. Hugsanlegt er,
ef stjórnsýslubreytingarnar verða
að veruleika, að mannabreytingar
verði á störfum sviðsstjóra hjá
Reykjavíkurborg en engar ákvarð-
anir liggja fyrir um það hvaða
breytingar verða gerðar.
Sjálfstæðismenn mótmæltu því
þegar embætti borgarlögmanns
var lagt niður og segir Vilhjálmur
koma til greina að koma því emb-
ætti á fót á nýjan leik. „Það verður
skoðað vandlega hvort ástæða sé
til þess að endurvekja það emb-
ætti, þar sem það var okkar stefna
á sínum tíma að það væri rangt að
leggja embætti borgarlögmanns
niður.“
Ekki liggur enn fyrir að sögn
Vilhjálms hvernig skipting verður
milli Sjálfstæðisflokks og Fram-
sóknarflokks á einstökum emb-
ættum, en kosið verður í embætti
á borgarstjórnarfundi á þriðjudag
næstkomandi.
Eins og greint hefur verið frá í
Fréttablaðinu hefur náðst sam-
komulag um að sjálfstæðismenn
taki við stjórn Orkuveitu Reykja-
víkur en framsóknarmenn taki
við Faxaflóahöfnum. Ekki hefur
verið ákveðið ennþá hvort þessi
skipting verður viðhöfð allt kjör-
tímabilið.
Gísli Marteinn Baldursson,
borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks-
ins, segist sammála Vilhjálmi í því
að skipulagsbreytingar gætu verið
gerðar á stjórnsýslu Reykjavíkur-
borgar. „Ég tel að sumar breyting-
arnar sem gerðar hafa verið á
stjórnsýslu Reykjavíkurborgar
hafi ekki verið til góðs. Ég tel að
þær hafi gert stjórnsýsluna flókn-
ari og þar með óskilvirkari. Það
þarf þó enginn að óttast um að
stjórnsýslu borgarinnar verði
kollsteypt þegar við tökum við
stjórnartaumunum.“
Dagur B. Eggertsson, oddviti
Samfylkingarinnar í borgarstjórn,
segir stjórnsýslu Reykjavíkur-
borgar vera skilvirka. „Það hafa
verið gerðar breytingar á stjórn-
sýslu Reykjavíkurborgar sem
miða að því gera hana skilvirkari
og ódýrari í rekstri. Það hefur tek-
ist að mínu mati.“
Ekki náðist í Björn Inga Hrafns-
son, borgarfulltrúa framsóknar-
manna, í gær. magnus@frettabladid.is
Vilja breyta stjórn-
sýslu borgarinnar
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, verðandi borgarstjóri, segir að embætti borgarlög-
manns verði ef til vill endurvakið. Sjálfstæðismenn vildu ekki leggja það niður.
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR Ef breytingar verða gerðar á stjórnsýslu Reykjavíkurborgar er hugs-
anlegt að mannabreytingar á sviðstjórum hjá borginni verði óhjákvæmilegar.