Fréttablaðið - 08.06.2006, Side 10
10 8. júní 2006 FIMMTUDAGUR
SVEITTUR GLÍMUKAPPI Súmóglímukappi
frá Japan smyr á sig sólarvörn á ströndinni
við Tel Avív. Japanskt glímulið undir forystu
meistarans Kotonokawa er í vikuheimsókn
í Ísrael. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Nýr talsmaður gyðinga Charlotte
Knobloch var í gær einróma kjörin
forseti Miðráðs gyðinga í Þýskalandi,
hagsmunasamtaka þeirra 100.000 gyð-
inga sem búsettir eru þar í landi. Hún er
fyrsta konan sem gegnir embættinu, en
fyrirrennari hennar, Paul Spiegel, lést í
lok apríl.
ÞÝSKALAND
Vífilfell gengur í ábyrgð Vífilfell,
umboðsaðili Coca Cola, segist ábyrgjast
að allir þátttakendur í sumarleik Coca
Cola geti fengið rafmagnshlaupahjól
sem eru nú uppseld. Í tilkynningu segir
að eftirspurn hafi verið langt umfram
væntingar og því séu þau ekki fáanleg
eins og er en nýrrar sendingar sé að
vænta eftir rúma viku. Fyrirtækið biður
foreldra og börn að sýna þolinmæði.
NEYTENDUR
SAMGÖNGUR Sólarhringsseinkun
varð á flugi Icelandair frá Balti-
more til Keflavíkur sem átti að
vera um áttaleytið að kvöldi
þriðjudags.
Hætt var við flugtak þegar
bilun í eftirlitskerfi flugvélarinn-
ar kom í ljós. Eftir að flugvélin
hafði verið skoðuð var ljóst að
skipti þurfti um varahluti í vél-
inni og því var bið eftir þeim óhjá-
kvæmileg.
„Farþegum var útveguð hótel-
gisting á meðan viðgerð stóð
yfir,“ sagði Guðjón Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi Flugleiða, en
um 180 farþegar áttu pantað flug
með vélinni. - mh
Farþegar biðu lengi:
Bilun í flugvél
olli seinkun
Bílvelta Ökumaður velti bíl sínum á
Garðvegi við Leiru í gærnótt. Ökumann-
inn sakaði ekki, en hann liggur undir
grun um að hafa ekið ölvaður.
LÖGREGLUFRÉTTIR
OLÍUSAMRÁÐ Neytendasamtökin
hafa sent þeim sem leituðu til
þeirra vegna verðsamráðs olíufé-
laganna leiðbeiningar um hvernig
þeir geti höfðað mál gegn félögun-
um. Samtökin hafa ekki fjárhags-
legt bolmagn til að höfða mál fyrir
alla þá ríflega hundrað sem höfðu
sent þeim bensínnótur.
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, gagn-
rýnir að ekki sé hægt að hefja hóp-
málsóknir eins og tíðkist á
Norðurlöndunum og í fleiri lönd-
um: „Við höfum hvatt Björn
Bjarnason til að setja slík lög.“
Hann hafi ekki sýnt viðbrögð við
beiðninni.
Prófmálið sem samtökin höfð-
uðu í fyrra verður ekki tekið fyrir
fyrr en búið er að útkljá áfrýjun
olíufélaganna á dómi Samkeppnis-
eftirlitsins. - gag
Neytendasamtökin vegna samráðs olíufélaganna:
Eitt mál höfðað
gegn olíufélögum
BENSÍNNÓTURNAR HJÁ SAMTÖKUNUM
Starfsmaður Neytendasamtakanna með
nóturnar sem þau fengu send vegna olíu-
verðsamráðsins. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
VARNARLIÐIÐ Þær eru af ýmsum
toga, hugmyndirnar sem fram
hafa komið meðal Suðurnesja-
manna um hvernig nýta skuli það
svæði og þau mannvirki sem Varn-
arliðið hugsanlega skilur eftir
þegar herinn hverfur endanlega á
braut í lok september. Innan við
fjórir mánuðir eru þangað til og
ekkert er ljóst ennþá hvað verður.
Bandaríski herinn hefur þó tekið
nokkuð tillit til óska stjórnvalda
erlendis í þeim löndum þar sem
starfsemi þeirra hefur minnkað
eða verið hætt.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, segir fjölda hug-
mynda hafa komið fram síðustu
vikur og mánuði en lítið annað
verði aðhafst meðan ekki liggi
ljóst fyrir hvað verði um svæðið
eða hvaða hugmyndir herinn geri
sér. „Við höfum látið gera úttekt
og skráð allar eignir á svæðinu en
allar ákvarðanir um hvað verður
nýtt af eignum þeim er þar eru
fara eftir þeim tillögum sem á
endanum verða samþykktar en
þar skiptir öllu máli hvaða verk-
efni nýta á byggingarnar undir.
Allar slíkar ákvarðanir hljóta að
vera annað hvort viðskiptalegs
eðlis eða í einhvers konar varnar-
tilgangi. Ekki þýðir að henda fram
hugmyndum sem ekki er neinn
grundvöllur fyrir.“
Bæjaryfirvöld hafa gert þrí-
hliða áætlun um næstu skref hvað
snertir Varnarliðið og starfsmenn
þess og segir Árni að unnið verði
eftir þeirri áætlun í samvinnu við
stjórnvöld. „Fyrsti hlutinn sneri
að því að aðstoða það fólk sem
missir vinnu sína með því að finna
önnur störf. Annar liður sneri að
svokallaðri nútímavæðingu varna
landsins en ýmislegt getur fallið
undir þann lið. Margt í innri vörn-
um okkar þarf að bæta sem kallar
á fleiri störf, eins og hluti sem
snúa að alþjóðaflugvellinum og
gæsluverkefni ýmiss konar. Þriðja
liðinn kölluðum við tíma nýrra
tækifæra og þar veltum við upp
möguleikum á borð við íþróttahá-
skóla og alþjóðlegt samstarf um
slíkt verkefni. Önnur hugmyndin
snýr að verslun og þjónustutæki-
færum og hefur Las Vegas verið
nefnt í því sambandi en þó af
öðrum toga en sú starfsemi sem
þar er. Á Keflavíkurflugvelli er
margverðlaunað slökkvilið á
heimsmælikvarða og ein hug-
myndin er að koma upp slökkvi-
liðsskóla. Aðstaða þarna er vel
fallin til viðhalds og breytinga á
flugvélum og ýmislegt annað
hefur verið nefnt en þetta eru
aðeins hugmyndir enn sem komið
er og allt of snemmt að fullyrða
nokkuð um hvað verður.“
Á varnarliðssvæðinu eru tæp-
lega tvö þúsund íbúðir fyrir bæði
fjölskyldur og einstaklinga, full-
komin íþrótta- og afþreyingar-
mannvirki, stórt flugskýli og þjón-
ustuhús fyrir flug og viðhald. Árni
segir tækifærin mýmörg en til
þess þurfi hugmyndir sem byggð-
ar séu á traustum viðskiptagrund-
velli. albert@frettabladid.is
Eign án hirðis
Alþjóðlegur íþróttaháskóli, slökkviliðsskóli og ís-
lenskt Las Vegas er meðal þess sem Suðurnesjamenn
ræða varðandi framtíð eigna á Keflavíkurflugvelli.
KEFLAVÍK OG VARNARSVÆÐIÐ Svæði Varnarliðsins er litlu minna en Keflavíkurbær og
gríðarleg tækifæri bíða þar að mati bæjarstjóra Reykjanesbæjar. Allar hugmyndir verða þó
að vera raunhæfar og eiga sér viðskiptalegan grundvöll. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
IÐNNÁM Með nýrri námskrá í bygg-
ingargreinum hefur þróunin orðið
sú að kennsla í pípulögnum fer að
nær öllu leyti fram í Iðnskólanum í
Hafnarfirði. Borgarholtsskóli
hefur kennt pípulagnir og útskrif-
aði nú í vor yfir tuttugu nema en
kennsla samkvæmt nýrri námskrá
hefst ekki þar fyrr en eftir eitt til
tvö ár. Námið er ekki lengur samn-
ingsbundið heldur fer verkleg
kennsla fram innan skólans.
Jóhannes Einarsson, skólameist-
ari Iðnskólans í Hafnarfirði, telur
að um fjörutíu nemendur í heildina
séu í pípulögnum þar. - gþg
Pípulagninganám í Reykjavík:
Enginn stundar nám
ÍRAK, AP Ítölsk yfirvöld tilkynntu í
gær að allir ítalskir hermenn yrðu
farnir frá Írak fyrir lok ársins og
er það í fyrsta sinn sem stjórnvöld
þar í landi gefa upp nákvæma
tímasetningu á brottförinni.
Allir hermennirnir 2.700 verða
smám saman kallaðir heim, að
sögn Massimo D‘Alema utanríkis-
ráðherra, sem segir stjórnvöld
hafa skýrt umboð kjósenda til
þessara aðgerða. Ítalir fylgja með
þessu fordæmi Spánverja og Búlg-
ara sem hafa nú þegar kallað her-
sveitir sínar heim, og markar
þetta enn eitt áfallið fyrir hið svo-
nefnda „bandalag hinna viljugu
þjóða“.
Það bar annað helst til tíðinda í
Íraksmálum í gær að fimmtán af
fimmtíu manns sem rænt var af
byssumönnum í lögreglubúningum
í Bagdad á mánudag komu í leitirn-
ar. Báru sumir merki þess að hafa
verið pyntaðir. Ekkert liggur enn
fyrir varðandi tildrög mannrán-
anna en grunur leikur á að víga-
menn hafi laumað sér í raðir lög-
reglunnar til að fremja ódæðið.
Nouri al-Maliki, forsætisráð-
herra Írak, fyrirskipaði að sleppt
skyldi rúmlega 500 föngum úr
bandarískum og íröskum fangels-
um, en þetta er fyrsta skrefið í
endurskoðun á málum þúsunda
fanga þar í landi. Al-Maliki hyggst
þó ekki sleppa fyrrverandi banda-
mönnum Saddams Hussein eða
„þeim hryðjuverkamönnum sem
hafa flekkað hendur sínar með
blóði Íraka“. - sgj
Romano Prodi stendur við kosningaloforðið:
Ítalska herliðið fer frá Írak
ROMANO PRODI OG MASSIMO D‘ALEMA
Forsætis- og utanríkisráðherrar Ítalíu ræða
saman á þinginu í Róm. FRÉTTABLAÐIÐ/AP