Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 16
16 8. júní 2006 FIMMTUDAGUR
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
��
� � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � � �
�
�
�
��
�
�
��
��
�
� �� � ��� ���� ��� ��� � ������ � �� ���� � � �� � � � ��� ���� � �� � � � � �� �� � � ���� �� � � � � �� �� � � � �� ������ � � � � � ����
������������������ �������������������������������������������������
����� � ��� �� � � � � � � � � �� � � � �� � ����
KONUNGLEG FLEYTA Í Taílandi fagna menn
því þessa dagana að sextíu ár eru liðin frá
því að konungur landsins tók við krúnunni.
Á föstudaginn voru þessir ræðarar að æfa
sig á konungsfleyinu. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SKIPULAGSMÁL Fasteignafélag í eigu
Landsbanka Íslands, Landsafl,
hefur gengið frá kaupum við
Reykjavíkurborg á yfir níutíu pró-
senta eignarhlut í húsi skiptistöðv-
ar Strætó bs. við Lækjartorg. Borg-
in heldur eftir tæplega tíu prósenta
hlut.
„Það hefur verið sameiginlegur
vilji til að endurskipuleggja Lækj-
artorg, rífa þetta hús og byggja í
staðinn eitthvað sem falli betur að
nýjum höfuðstððvum Landsbank-
ans og uppbyggingunni í kringum
tónlistar- og ráðstefnuhúsið,“ segir
Dagur B. Eggertsson, formaður
skipulagsráðs. Dagur vonast til að
uppbygging þessa svæðis haldist í
hendur við byggingu tónlistar- og
ráðstefnuhússins sem áformað er
að verði opnað árið 2009.
Ásgeir Friðgeirsson, fjölmiðla-
ráðgjafi Landsbankans, segir
markmið kaupanna að auðvelda
tengingu Lækjartorgs við nýjan
miðbæ sem byrjað er að vinna í
tengslum við tónlistarhúsið. Spurð-
ur hvað muni rísa á svæðinu við
niðurrif hússins segir Ásgeir engar
hugmyndir í endanlegri mynd
komnar. „Það verður háð þeim til-
lögum sem verða til um hvernig
þetta svæði mun tengjast öðrum
þeim húsakynnum sem verða
byggð þar norður af.“ Margvísleg
starfsemi er í húsinu og verður
hún áfram næstu tvö árin að
minnsta kosti að sögn Ásgeirs. - sdg
Borgin hefur selt hús skiptistöðvar Strætó bs. við Lækjartorg til Landsafls:
Skiptistöðin keypt til niðurrifs
SVÍÞJÓÐ Bobby, drengurinn sem
sænska þjóðin syrgir, var jarð-
sunginn í gær. Móðir Bobbys fékk
að vera viðstödd en stjúpfaðir hans
ekki. Óttast var að nærvera móð-
urinnar myndi vekja blendnar til-
finningar meðal kirkjugesta. Móðir
Bobbys og stjúpfaðir eru grunuð
um að hafa myrt Bobby í vor.
Móðirin kynntist stjúpföðurn-
um í fyrra og fluttist hún til hans
eftir þrjá mánuði án þess að vita
að hann hefði setið í þrjú ár í fang-
elsi fyrir ofbeldi gegn konum.
Smám saman jókst ofbeldið gegn
henni og einnig syninum. Ástandið
á heimilinu náði hámarki í vor, að
sögn vefútgáfu sænsku blaðanna.
Talið er sannað að móðirin og
stjúpfaðirinn hafi bundið Bobby,
hent honum út í snjóinn og látið
hann liggja þar lengi áður en þau
hleyptu honum inn. Hann lést
skömmu síðar. Þau sökktu líkinu í
vatn og hringdu svo í lögregluna
og sögðu Bobby hafa horfið við
verslunarmiðstöð.
Bobby átti við þroskavandamál
að stríða. Hann átti erfitt með tal
og einbeitingu og hafði tilhneig-
ingu til mikillar angistar. Stjúp-
faðirinn átti erfitt með að þola
drenginn.
Dómsmálið gegn móðurinni og
stjúpföðurnum verður tekið fyrir
á föstudag. Sænska þjóðin syrgir
Bobby ákaft og hefur almenning-
ur sent um þrjátíu þúsund rósir í
jarðarförina. - ghs
RAUÐAR RÓSIR Almenningur í Svíþjóð
sendi rauðar rósir til að heiðra Bobby, tíu
ára dreng sem talið er að hafi verið myrtur
í vor af stjúpföður sínum og móður.
NORDICPHOTOS/GETTY IMAGES
Drengurinn sem sænska þjóðin syrgir var jarðsunginn í gær:
Tugþúsundir rauðra rósa
SÓMALÍA, AP Bardagasveitir stríðs-
herranna sem voru hraktir burt úr
Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, af
uppreisnarher íslamskra bók-
stafstrúarmanna eru taldar undir-
búa gagnárás á borgina með stuðn-
ingi Bandaríkjastjórnar.
Hernám herskáu múslimanna á
borginni er horn í síðu vesturveld-
anna, sem telja þá tengjast hryðju-
verkahópum og stefna að myndun
íslamskrar klerkastjórnar. Einnig
hafa bandarískir embættismenn
látið hafa eftir sér að hersveitirn-
ar skjóti skjólshúsi yfir þrjá al-
Kaída-leiðtoga sem tóku þátt í
árásum á bandarísk sendiráð í
Kenýa og Tansaníu árið 1998. - sgj
Stríðsherrar í Mogadishu:
Undirbúa árás
á Mogadishu
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur karl-
maður hefur verið ákærður fyrir
að hafa haft í fórum sínum 13,81
gramm af kannabisefni. Lögregl-
an hafði afskipti af manninum þar
sem hann var staddur á pósthúsi
verktakafyrirtækisins Bectel á
Reyðarfirði í febrúar. Fíkniefnin
hafði maðurinn pantað frá Reykja-
vík og var hluti þeirra ætlaður til
söludreifingar í hagnaðarskyni.
Í ákæru er þess krafist að
ákærði verði dæmdur til refsing-
ar og að þau ávana- og fíkniefni
sem lagt var hald á verði gerð upp-
tæk. - hs
Ákærður fyrir fíkniefnabrot:
Fékk fíkniefni
með pósti
Vörubíll keyrði út af Vörubíll fullur
af fiski fór út af vegi í Hestfirði við Ísa-
fjarðardjúp í gærnótt. Engin slys urðu á
fólki, en ekki er vitað hvernig atvikið átti
sér stað.
LÖGREGLUFRÉTTIR
HÚS SKIPTISTÖÐVAR STRÆTÓ BS. VIÐ LÆKJARTORG
Búið er að mála efri hæð hússins hvíta og er
áformað að það verði orðið alhvítt fyrir 17. júní
til að létta yfir ásýnd hússins og
Lækjartorgsins. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA