Fréttablaðið - 08.06.2006, Síða 25
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006 25
36ltr. coke og 20 pokar
af Maarud snakki fylgja
einnig í kaupauka149.990kr
Verð
Kreditkortavelta heimilanna var
19,9 prósentum meiri á fyrstu
fjórum mánuðum þessa árs og
debetkortavelta er 10,3 prósent-
um meiri en á sama tíma í fyrra.
Í Hagvísum Hagstofunnar sem
kom út í gær segir að notkun kred-
itkorta hafi aukist um 16 prósent
og notkun debetkorta um 16,8 pró-
sent síðastliðna tólf mánuði borið
saman við árið á undan.
Þá jókst kreditkortavelta
Íslendinga erlendis umtalsvert,
eða um 35,8 prósent á milli ára.
Greiðslukortanotkun útlendinga
hér á landi jókst hins vegar um 8,3
prósent á sama tímabili. - jab
KREDITKORT Kortanotkun hefur
aukist nokkuð milli ára.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Straujum meira
Norski ríkislífeyrissjóðurinn, eða
olíusjóðurinn, hefur selt frá sér
allan sinn hlut í bandaríska smá-
sölurisanum Wal-Mart. Þetta er
gert vegna óska frá siðanefnd,
sem starfar á vegum sjóðsins, en
Wal-Mart er sakað um ýmiss konar
brot á mannréttindum, þar má
nefna barnavinnu, hættulegar
vinnuaðstæður, ógreidda yfir-
vinnu og kynjamismunun.
Stjórn Wal-Mart hafði verið
gefinn kostur til að svara þessum
ásökunum en stjórnendur félags-
ins létu ekkert frá sér heyra.
Norðmennirnir áttu sem svar-
aði þrjátíu milljörðum króna í
hlutabréfum í Wal-Mart. - eþa
Losa sig við
bréf í Wal-Mart
Færeyski bankinn Föroya Spari-
kassi, sem stefnir að skráningu á
iCEX á næsta ári, hefur eignast
fjórðungshlut í danska bankanum
Ejendomsvækst sem sérhæfir sig
í fasteignalánum og ráðgjöf til
fyrirtækja og einstaklinga. Auk
þess hefur færeyski bankinn
tryggt sér kauprétt að öðrum tíu
prósentum.
Marner Jacobsen, forstjóri
Sparikassans, segir að kaupin
styrki stöðu bankans í Danmörku
en fyrir á hann fjárfestingabank-
ann EIK Bank auk þess að vera
stærsti stofnfjáreigandinn í
SPRON. - eþa
Sparikassinn í
innkaupum
HEIMASÍÐA FÖROYA SPARIKASSI Vef fær-
eyska bankans er að finna á slóðinni www.
sparikassin.fo.
Þau Theodóra Elísabet Smáradótt-
ir, Sigurður Jónsson og Þóra Björk
Ottesen, forsvarsmenn fyrirtækis-
ins Theo ehf. sem framleiðir tísku-
fatnað á hunda, hömpuðu fyrstu
verðlaunum í frumkvöðlasam-
keppni JCI á Íslandi sem afhent
voru síðastliðið þriðjudagskvöld. Í
öðru sæti var Jonas Damulis og í
þriðja sæti Hulda Hallgrímsdóttir,
Kári Arnór Kárason og Erna Sigur-
geirsdóttir.
Verðlaunin voru veitt fyrir bestu
viðskiptaáætlun ársins 2006 og er
tilgangur keppninnar að hvetja
ungt fólk til að koma viðskiptahug-
myndum sínum á blað og í verk.
JCI á Íslandi sem stóð fyrir keppn-
inni, eða Junior Champer Inter-
national, er alþjóðleg hreyfing fyrir
ungt fólk á aldrinum átján til fjöru-
tíu ára með áhuga og metnað til að
efla stjórnunarhæfileika sína.
Höfundar þriggja bestu áætlan-
anna fengu peningaverðlaun frá
KB banka auk þess sem sigurveg-
ararnir hlutu lófatölvu frá Opnum
kerfum að launum. - hhs
UNGIR FRUMKVÖÐLAR Jonas Damujlis, Sigurður Jónsson, Theodóra Elísabet Smáradóttir og
Hulda Hallgrímsdóttir ásamt fulltrúum KB Banka og Opinna kerfa.
Frumkvöðlar verðlaunaðir
Fyrstu fimm mánuði þessa árs
komu 270 þúsund farþegar til
landsins um Keflavíkurflugvöll
samkvæmt nýútkomnum Hagvís-
um Hagstofu Íslands. Aukningin
milli ára nemur 16,9 prósentum,
en á sama tímabili í fyrra voru
farþegarnir 231 þúsund.
„Síðastliðna 12 mánuði, til loka
maí komu 795 þúsund farþegar til
landsins og er það 12,1 prósents
aukning frá 12 mánuðum þar á
undan,“ segir í Hagvísum, en þar
eru einnig birtar tölur um aukn-
inguna fyrstu fjóra mánuði ársins,
en hún nemur 16,3 prósentum sé
horft til fyrstu fjögurra
mánaðanna. - óká
Ferðamönnum
fjölgar milli ára