Fréttablaðið - 08.06.2006, Side 26
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR26
hagur heimilanna
>KÍLÓVERÐ Á KJÚKLINGI
Heimild: Hagstofu Íslands
.
• 8. júní / Gönguferð um hversdagslegar tilfinningar
Sr.Auður Eir Vilhjálmsdóttir
• 15. júní / Þingvellir í heimsmynd Einars Pálssonar
Pétur Halldórsson myndlistarmaður
• 22. júní / Kirkja og Þingvellir í 1000 ár.
Hjalti Hugason prófessor
• 29. júní / Einar Benediktsson og Þingvellir
Guðjón Friðriksson rithöfundur
• 6. júlí / Landslag og ljóð
Sveinn Yngvi Egilsson dósent
• 13. júlí / Stefna þjóðgarðsins á Þingvöllum
Björn Bjarnason formaður Þingvallanefndar.
• 20. júlí / Sögur og staðreyndir á Þingvöllum
Sverrir Tómasson vísindamaður á Árnastofnun
• 27. júlí / Karnival á Þingvöllum
Helga Kress prófessor
Fimmtudagskvöld á Þingvöllum
HE
IMSM INJAR
- traustur bakhjarl fræðslu í þjóðgarðinum á Þingvöllum
Sumar á Þingvöllum
Fornleifaskóli barnanna við Öxará.
Gönguferðir á laugardögum með landvörðum.
Upplýsingar um dagskrá þjóðgarðsins má finna á heimasíðu þjóðgarðsins
www.thingvellir.is og í síma þjónustumiðstöðvar 482-2660.
Þátttaka í fræðsludagskrá þjóðgarðsins er öllum opin og án endurgjalds.
Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.
Leiðsögn á ensku um þingstaðinn alla virka daga.
Margmiðlun í fræðslumiðstöð á fimm tungumálum.
Helgihald í Þingvallakirkju.
Gönguferðirnar hefjast allar við
fræðslumiðstöðina við Hakið fyrir
ofan Almannagjá kl. 20:00
„Verstu kaup eru bíllinn sem ég
keypti í fyrra, svona lítill Benz en
mánuði síðar þá bilaði hann og það
er viðgerð upp á hátt í tvöhundruð
þúsund til að laga það,“ segir knatt-
spyrnumaðurinn Marel Baldvinsson,
en bíllinn var jólagjöf til konunnar.
„Ég keypti notaðan bíl núna um
seinustu jól og ætli það hafi ekki
verið mánuði síðar sem það fór
einhver aksturstölva í honum. Það er
ekki búið að skipta um þessa tölvu;
við höfum ekki komið okkur í það
þannig að hann stendur hérna úti á
plani.“ „Konan segir að bestu kaupin
séu hundurinn, það er kannski ekki
fjarri lagi, tíkin hefur verið okkur
til þó nokkurrar ánægju,“ segir
Marel en tíkin hefur verið í eigu
fjölskyldunnar í rúmt ár og er af
Boxer-tegund. Hún hefur ekki enn
orðið hvolpafull en Marel segir
að hundurinn sé fyrst og fremst
til yndisauka. „Jú, jú, ég er alltaf
í boltanum og það er búið að
ganga þokkalega hjá mér svona
til að byrja með,“ segir Marel
en hann spilar með Breiðablik í
Landsbankadeildinni. Liðinu hefur
gengið ágætlega í byrjun sumars,
er með sex stig eftir fjórar fyrstu
umferðirnar.
NEYTANDINN: MAREL BALDVINSSON, KNATTSPYRNUMAÐUR
Hundurinn hefur
verið okkur til ánægju
Djassballett, freestyle, streetdjass, söngleikjadans, locking,
gömlu dansarnir, tangó, salsa, magadans, listdans, dansjóga,
samkvæmisdansar. Möguleikarnir, í það minnsta á höfuð-
borgarsvæðinu, eru fjölmargir standi hugur til að læra
dans en sífellt fleiri nota dansinn sem hluta af almennri
líkamsrækt. Ýmsir aðilar bjóða skemmri og lengri
námskeið og fer námskeiðsgjald eðlilega eftir tímafjölda.
Kostnaður við sumarnámskeið samkvæmt lauslegri úttekt
Fréttablaðsins er frá fjórum þúsundum og allt upp í tuttugu
þúsund. Samanburður er þó erfiður enda sum námskeið aðeins nokkrar vikur
og önnur allt sumarið. Þannig kostar námskeið í freestyle-jass 3.900 á mann hjá
Dansskóla Sigurðar Hákonarsonar, svokallað danspúl hjá JSB fimmtán þúsund og
almennt dansnámskeið í Sporthúsinu 7.700 krónur svo dæmi séu tekin.
■ Hvað kostar... að læra dans
Undir fimm þúsund fyrir manninn
Sumaráætlun farþegaskipsins Norrænu hefur tekið gildi
en þá verður sú breyting á að ferjan kemur til Seyðisfjarð-
ar snemma á fimmtudagsmorgnum og fer af stað aftur á
hádegi sama dag. Frá Seyðisfirði fer ferjan til Færeyja og
tekur siglingin þangað sautján klukkustundir. Háannatími
er þó ekki fyrr en í lok júní og út júlí og hægt að ferðast með skipinu ódýrar fyrir
vikið. Einn farþegi með bíl sem gistir í svefnpokaplássi til Færeyja og til baka greiðir
55 þúsund krónur fyrir í sumar. Nánari upplýsingar fást á www.smyril-line.is
■ Verslun og þjónusta
Sumaráætlun Norrænu tekur gildi
Í norrænni skýrslu um
viðbótartryggingar er velt
upp sjónarmiðum um hvort
viðbótartryggingar veiti
neytendum meiri vernd en
sú sem lög um neytenda-
kaup veitir varðandi galla
og ábyrgð á vörum og hefð-
bundnar innbústryggingar.
„Viðbótartryggingar eru á gráu
svæði og hæpið að það sé í hag neyt-
enda að kaupa sér viðbótartrygg-
ingu,“ segir Anna Birna Halldórs-
dóttir, sviðsstjóri
neytendaréttarsviðs hjá Neytenda-
stofu, sem vitnar þar í niðurstöður
nýrrar norrænnar skýrslu sem
neytendasamtök og neytendastofn-
anir á Norðurlöndunum unnu sam-
eiginlega um viðbótartryggingar.
Með viðbótartryggingum er átt við
tryggingu sem tengist ákveðinni
vöru sem neytandinn kaupir í smá-
söluverslun ásamt tryggingunni.
Að sögn Önnu Birnu tóku
skýrsluhöfundar að sér að gera lög-
fræðilega úttekt á þessum trygg-
ingum. „Það er verið
að vekja athygli á
því að þessar viðbót-
artryggingar verji
ekki annað en það
sem þegar er tryggt
með lögum eða inn-
bústryggingar ná yfir.“
Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna,
tekur undir með Önnu Birnu. „Fólk
þarf að kanna hvað er innifalið í
þeim tryggingum sem það þegar
hefur áður en viðbótartrygging er
keypt svo það sé ekki verið að kaupa
tvær tryggingar sem dekka það
sama.“ Jóhannes telur að fólk sé í
flestum tilvikum að kasta pening-
um út um gluggann með kaupum á
viðbótartryggingu.
Viðbótartryggingar eru seldar á
smásölustigi ásamt þeirri vöru sem
tryggingin tengist og greitt er fyrir
hana samtímis því að greitt er fyrir
aðalvöruna. Í skýrslunni kemur
fram að smásöluverslunin þiggur
umboðslaun frá tryggingarfélag-
inu sem vafalaust verður til þess
að örva smásöluverslunina í að
selja viðbótartryggingar í tengsl-
um við vörukaup. Einnig segir að
gildissvið staðlaðrar viðbót-
artryggingar víki sjaldnast veru-
lega langt frá þeim göllum sem
neytandinn getur kvartað yfir sam-
kvæmt kvörtunarreglum kaupa-
laga. Dæmigert sé að munurinn
liggi í því að viðbótartryggingin
geti haft lengri gildistíma en kvört-
unarfresturinn vari. Í nokkrum til-
fellum nái viðbótartryggingin þó
til tjóna eða annarra tryggingatil-
vika sem kvörtunarréturinn vegna
galla nær ekki til.
Í skýrslunni er að finna kort-
lagningu markaðarins fyrir viðbót-
artryggingar á Norðurlöndunum en
á Íslandi er það eingöngu ELKO
sem býður slíkar tryggingar. Að
sögn starfsmanns ELKO er kostur
viðbótartrygginga einkum sá að
hann veitir lengri ábyrgðartíma
heldur en felst í lögum um neyt-
endavernd. sdg@frettabladid.is
STAFRÆNAR
MYNDAVÉLAR
Viðbótartryggingar
eiga fyrst og fremst
við hvers konar
heimilistæki og
flestar tegundir
raftækja.
Viðbótartrygging
oftar en ekki óþörf
Samþykkt var á Alþingi um síðustu
helgi að löggilda tæki til að mæla
mínútur og niðurhal síma- og fjar-
skiptafyrir-
tækja eftir að
kvörtun hafði
borist frá tals-
manni neyt-
enda.
Gísli
Tryggvason,
talsmaður neyt-
enda, vildi lög-
gilda þau tæki
sem mæla síma-
notkun einstaklinga til þess að eng-
inn vafi lægi á því að upphæðin
sem þeir greiða sé rétt. Hann segir
að sér hafi borist margar fyrir-
spurnir frá neytendum vegna hárra
símreikninga en með þessari breyt-
ingu „geta neytendur treyst því að
þeir séu að borga fyrir það sem
þeir eru sagðir vera að borga fyrir
í niðurhali og mínútum.
Miðað við hvað símareikningar
og niðurhalsreikningar eru að
verða stór þáttur í heimilisútgjöld-
unum þá eru þetta miklir hagsmun-
ir,“ segir Gísli. Hann segir að breyt-
ingin sé einnig mikilvæg fyrir
símafyrirtækin vegna þess að áður
gátu þau ekki sannað að reikningar
sem þau gáfu út væru réttir.
Lögin sem um ræðir eru lög um
mælingar, mæligrunna og vigtar-
menn en Gísli segir að þrátt fyrir
að löggilding tækjanna hafi verið
skylda þá var ekki farið eftir því
og þess vegna hafi hann viljað
bæta lagarammann. -gþg
Talsmaður neytenda beitir sér fyrir löggildingu mælitækja:
Mikið öryggi fyrir neytendur
GÍSLI TRYGGVASON
HREINAN KÚST Á BÍLINN
■ Örn Bárður Jónsson, sóknarprestur í
Neskirkju, notar ekki hvað sem er til að
þrífa nýja bílinn sinn.
Einfalt er að geyma
allt sem þarf til
að þrífa bílinn í
skottinu; úðabrúsa
með tjöruhreinsi,
stígvél og galla.
Með þessum
græjum er hægt
að þrífa bílinn hvar
sem er, hvenær
sem er, jafnvel
þegar maður er í sparifötunum. Á bens-
ínstöðvum getur maður keypt sérstakan
kúst, til að skrúfa framan á slöngurnar á
bensínstöðvunum, því kústarnir sem eru
þar fyrir eru oft óhreinir og geta rispað
lakkið.
GÓÐ HÚSRÁÐ
UNGLINGAR VIÐ TÖLVUNA Niðurhald
hefur aukist mikið undanfarin ár og
getur kostnaðurinn verið talsverður
55
6
K
R
.
36
7
K
R
.
39
1
K
R
.
47
8
K
R
.
2000 2002 2004 2006