Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 38
[ ]
Verslunin hættir
10-40 % afsláttur af
öllum vörum í búðinni
Búðin lokar þann 23.júni
Opið frá 11-18 virka daga • Hlíðarsmára 11, Kópavogi s: 5651504
www.svefn.is
Áður en þú leggur í framkvæmdir sem þú veist ekkert um heima
fyrir, skaltu athuga hvað fagmenn kosta. Það gæti margborgað sig,
sparað tíma og peninga.
Hinn 11. júní næstkomandi
verður dagurinn helgaður
íslenskum heimilisiðnaði í
Minjasafni Reykjavíkur-Árbæj-
arsafni.
Fyrir þremur árum leitaði Heimil-
isiðnaðarfélag Íslands eftir
samstarfi við Árbæjar-
safn í tilefni af 90 ára
afmæli félagsins.
Ákveðið var að
efna til hátíðar
sem tileinkuð
væru
íslensku
handbragði
og tókst svo
vel til að upp
frá því hefur
dagurinn
verið haldinn
hátíðlegur
árlega.
Í ár fer dagurinn þannig fram
að Heimilisiðnaðarfélagið heldur
sýningu á verkefnum nemenda
Handiðnaðarskólans sem unnin
voru í vetur. „Sýningin fer að
mestu fram í Kornhlöðunni og
Lækjargötuhúsinu, en félags-
menn verða á vappi um allt svæð-
ið í þjóðbúningum,“ segir Ásdís
Birgisdóttir ráðskona Heimilis-
iðnaðarfélags Íslands. „Meðal
þess handbragðs sem sýnt verður
er útsaumur, spjaldvefnaður,
jurtalitun, tóvinna, þæfing, knipl,
orkering, hekl og prjón, víravirk-
isvinna, leðurvinna og margt
fleira.“
Dagskráin hefst kl. 13 og lýkur
kl. 17. Gestir eru hvattir til að
mæta í þjóðbúningum og taka þátt
í skemmtuninni.
-tg
Handiðn á Árbæjarsafni
Gestir eru hvattir til að mæta í þjóðbúningum.
Ásdís ásamt dóttur sinni Freyju.
Gamalt
íslenskt
handbragð
verður í
hávegum haft.
Y-D Design á Tangarhöfða sel-
ur barnastóla sem eru góðir
fyrir líkamsstöðu barnsins.
Bumbo-barnastóllinn er
margverðlaunaður stóll
og var meðal annars
kosinn besta barna-
varan í Bretlandi
árið 2003. Stóllinn
er sérstaklega
hannaður þannig
að hann styður
við hrygg ungra
barna svo þau
geta sjálf setið
upprétt. Þannig
er stólinn einnig
kærkomin hjálp
fyrir foreldra í sem
aldrei virðast hafa nógu margar
hendur til þess að sinna öllu því
sem sem sinna þarf.
Stóllinn er ætlaður börnum
frá þriggja til fjögurra mánaða
aldri eða um leið og þau geta
haldið höfði. Stólinn má nota allt
að þriggja ára aldri eða svo lengi
sem hann passar. Bumbo-stóllinn
er rúmt kíló að þyngd og eftir
eins árs aldur geta börnin ferðast
með stólinn sjálf. Bumbo-
stóllinn er mjúkur við-
komu og gefur því
vel eftir þunga
barnsins. Auð-
velt er að flytja
stólinn milli
staða og gott
er að taka
hann með á
baðströndina
eða út í garð.
Y-D Design
hefur einnig til
sölu SLEX-
barnastólinn. SLEX-
stóllinn er litríkur og fallegur og
vex með barninu eftir því sem
það stækkar. Með einu handtaki
má hækka eða lækka setuna og
stólnum fylgir grind fyrir yngstu
börnin ásamt litlu stólbaki.
Stólar fyrir litla kroppa
SLEX-stólinn vex með barninu um leið og
það stækkar.
Bumbo-stólinn
er skemmtileg-
ur í hönnun og
hjálpar litlum
krílum að sitja
upprétt.