Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 46
2 ■■■■ { Stangaveiði } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Stangveiðifélag Reykjavíkur var
stofnað árið 1939 og er því elsti og
jafnframt stærsti stangveiðklúbbur
Íslands, en í honum eru hátt í 3.000
félagsmenn. Haraldur Eiríksson,
markaðs- og söluráðgjafi hjá félag-
inu, segir starfsemi þess margþætta
og nefnir sem dæmi að félagið veiti
aðgang að fyrsta flokk laxveiðiám.
Haraldur segir Norðurá í Borg-
arfirði vera skrautfjöður félagsins,
enda hefur hún oft verið nefnd
fegurst íslenskra laxveiðiáa. „Við
höfum haft hana á leigu undanfar-
in sextíu ár,“ segir hann. „Síðustu
ár hefur hún verið með aflameiri
ám landsins, en besti veiðitíminn er
í júlí. Veitt er alveg frá Munaðar-
nesi upp að Holtavörðuheiði. Þarna
hefur átt sér stað gífurleg uppbygg-
ing fyrir veiðimenn, bæði af hálfu
veiðifélagsins sjálfs og eins í sam-
starfi við landeigendur.“
Haraldur segir veiðileyfi í Norð-
urá í Borgarfirði geta kostað frá
16.000 kr. og upp úr. „Áin er yfirleitt
seld í tveggja til þriggja daga holl-
um, en veiðimenn gista í glæsilegu
veiðihúsi staðsettu á Rjúpnahæð,
sem rekið er af Guðmundi Viðars-
syni matreiðslumeistara,“ útskýrir
hann. Er þar boðið upp á ljúffeng-
an mat á morgnana, í hádeginu og
á kvöldin. Matur og gisting kosta
samanlagt 7.400 kr., en það fer upp
í 11.400 kr. þegar veiði stendur sem
hæst,“ bætir hann við.
Hítará er önnur á sem Harald-
ur nefnir. „Þar er best að veiða í
júlí og ágúst,“ segir hann. „Aðal-
veiðisvæðið nær frá Kattarfossi og
niður úr. Dagstöngin kostar 14.900
kr. þegar ódýrast er, en fer upp í
70.000 kr. í júlímánuði. Veiðihúsið
stendur á árbakkanum, en þar er
svipuð þjónusta og við Norðurá á
sama verði. Við höfum hins vegar
selt sérstaklega aðgengi að svæðinu
fyrir ofan fossinn, þar sem glæsi-
legt veiðihús fylgir fyrir fólk sem er
á eigin vegum,“ útskýrir hann.
„Svo erum við með Laxá í Kjós,“
segir Haraldur. „Þar er verið að
reisa glæsilegt veiðihús, sem verð-
ur vígt við opnun árinnar 15. júní.
Það verður líklega rekið af Leifi
Kolbeinssyni, sem kenndur er við
La Primavera. Verð fyrir mat og
gistingu verður 8.400 kr. á mann,
en frá lokum júlí og í byrjun ágúst
kostar það hins vegar 11.400 kr.
Þarna er fullt af fallegum svæðum
og góð veiði,“ bætir hann við.
„Grímsá í Borgarfirði, er síðan
eitt sérstakasta svæðið sem við
bjóðum viðskiptavinum okkar upp
á,“ segir Haraldur. „Stangveiðifé-
lagið hafði milligöngu um bygg-
ingu veiðihúss þar árið 1972, sem
er hið stærsta á landinu og aðstaða
veiðimanna til fyrirmyndar. Mat-
reiðslumeistarinn sem rekur húsið
heitir Egill Kristjánsson og er matur
og gisting í svipuðum verðflokki
og á hinum stöðunum. Stangveiði
í ánni á sér meira en aldarlanga
sögu, en breskir aðalsmenn voru
þeir fyrstu til að hefja þar veiði árið
1862. Hefur hún síðan notið mikilla
vinsælda,“ segir hann að lokum.
Fegurst íslenskra veiðiáa
Haraldur Eiríksson hjá Stangveiðifélagi Reykjavíkur um laxveiðiár í fremsta flokki.
Veiðihúsið við Hítará á Mýrum var reist af Jóhannesi Jósefssyni sem kenndur er við Borg. Veiðihúsið nefndi hann Lund eftir æskuheimili
sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURJÓN RAGNAR
Guðmundur Viðarsson matreiðslumeistari
hefur umsjón með veiðihúsunum við
Norðurá í Borgarfirði og Hítará á Mýrum.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURJÓN RAGNAR
Veiðihús við Norðurá á Rjúpnahæð í Borgarfirði er einkar glæsilegt og staðsetning þess góð. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURJÓN RAGNAR
Aðstaða í veiðihúsinu við Norðurá er til fyrirmyndar og þar fá menn gott að borða kvölds
og morgna. Hér sést setustofan sem er einstaklega hlýleg. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGURJÓN RAGNAR
Gunnar Helgason leikari hefur í
mörg ár verið meðlimur í Stang-
veiðifélagi Reykjavíkur, en síð-
astliðin tvö ár hefur hann verið
mjög öflugur innan félagsins, þar
sem hann á meðal annars sæti í
skemmtinefnd. Að eigin sögn vakn-
aði veiðiáhugi Gunnars snemma,
fyrir tilstilli föður hans, og áhuginn
eykst með árunum
„Ég er búinn að veiða alveg frá
því ég man eftir mér, eða síðan
pabbi kallaði í fyrsta sinn kastaðu,“
segir hann og hlær. „Svo varð pása
á veiðinni þegar maður komst á
menntaskólaaldurinn og var með
einhverja töffarastæla. Ég fór að
veiða aftur þegar ég varð forráða,
eða þegar ég hætti að lifa á lána-
sjóðnum, og áttaði mig á því að
peningunum mátti verja í veiði.“
Gunnar segist aðallega veiða í
Elliðaám og Varmá hérlendis, því
þar sé bæði nóg af fiski og ódýrt
að veiða. „Júlímánuður er líkleg-
ast besti veiðitíminn í Elliðaánum,“
útskýrir hann. „Veiðitímabilið er
hins vegar tvískipt í Varmá. Þar hef
ég bæði fengið góða veiði í apríl og
í lok ágúst, þannig að ég ráðgeri að
veiðin sé þar góð yfir allt sumarið. Í
Varmá hef ég aðallega veitt sjóbirt-
ing, en ég reyni eftir fremsta megni
að ná mér í lax í Elliðaánum.“
Gunnar hefur einnig farið út
fyrir landsteinana til þess að seðja
veiðiþorstann. „Ég veiddi nokkrum
sinnum í ánni Kemijoki á meðan
ég var búsettur í Finnlandi,“ segir
hann. „Finnsku árnar jafnast að
vísu ekki á við þær íslensku og
krefjast allt öðruvísi veiðarfæra.
Engu að síður tókst mér að veiða
95 cm langan lax fyrir ári síðan í
Kemijoki, þannig að ég get vel við
unað,“ segir hann að lokum.
Veitt frá blautu
barnsbeini
Gunnar Helgason leikari segir frá ódrepandi veiðiáhuga,
sem leiddi hann meðal annars að bökkum Kemijoki.
Gunnar Helgason leikari er mikill áhugamaður um stangveiði og sinnir starfi innan Stang-
veiðifélags Reykjavíkur af miklum krafti. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SVFR.IS er vinsælasti veiðivefur landsins.
Nú get urðu á ein faldan og aðgengi legan hátt keypt frá bært úr val veiði leyfa
úr hvaða nettengdu tölvu sem er og prent að þau út að lokn um viðskipt um.
Á svfr.is finn nur þú: Úr val veiði leyfa í lax og sil ung - Upp lýsingar um öll
helstu veiði svæði lands ins - Frétt ir og grein ar - Veiði staðalýsingar - Mynd ir
- Upp lýsingar um fé lagsstarf SVFR - Veiði kort og margt fleira
V e i ð i v e f u r i n n S V F R . I S
Veiði vefurinn SVFR.IS