Fréttablaðið - 08.06.2006, Síða 47
3
Nú þegar veiðitímabilið er hafið, er
um að gera skella vöðlum og veiði-
færum upp í bíl og bruna af stað í
veiði. En hvar er best að veiða? Jón
Ingi Kristjánsson, sölumaður stang-
veiðivara hjá Arkó Krókhálsi 5g, segir
erfitt að velja á milli þeirra fjölmörgu
veiðisvæða sem í boði eru, en tiltek-
ur þó nokkur sem njóta vinsælda hjá
veiðimönnum.
Jón telur að á þessum árstíma séu
Elliðavötn og vötnin í kring hentug
til stangveiði. „Elliðavatn er best á
vorin,“ segir hann. „Ástæðan er sú
að gróðurinn er ekki farinn að lifna
almennilega við og vötnin gefa mest
af sér á vorin áður en þau verða of
heit. Einnig er gott að veiða í Þing-
vallavatni um þetta leyti. Menn veiða
bleikju og urriða í þessum vötnum.
Urriði er þó í meira mæli í Elliðavatni,
þar sem bleikjan hefur átt undir högg
að sækja undanfarin ár,“ segir hann.
„Það má heldur ekki gleyma Veiði-
vötnum á Landmannaafrétti, sem er
eins og sannkölluð vin í eyðimörk-
inni,“ bætir Jón við. „Maður keyrir
eftir svörtum sandi og skyndilega
opnast þar gróðurnýlenda úti í miðri
auðninni. Í Veiðivötnum er nóg af
stórum fiski, urriða og bleikju. Menn
taka algjöru ástfóstri við þennan stað
og því ekki að undra að þar skuli vera
uppselt allt sumarið, eftir að veiði-
tímabil hefst 16. júní,“ útskýrir hann.
Af góðum veiðiám mælir Jón
með Norðurá í Borgarfirði. „Áin er
ein besta laxveiðiá landsins, en hún
opnaði venju samkvæmt 1. júní,“
segir hann. „Þar veiða menn lax allan
liðlangan daginn og gista í veiðihúsi,
enda er skyldugisting við flestar stóru
laxveiðiárnar á landinu,“ segir hann.
„Víða um landið eru líka
skemmtilegar silungsveiðiár, sem
hinn venjulegi borgari hefur frek-
ar efni á að veiða í,“ segir Jón. „Til
dæmis Norðurá í Skagafirði, þar
sem nóg er af veiði. Svo er Þorleifs-
lækur í Hvergerði og Hraun í Ölfusi,
en þar er best að veiða fyrst á vorin
og síðast á haustin,“ segir hann að
lokum.
Vin í eyðimörkinni
Jón Ingi Kristjánsson hjá Arkó veiðivörum mælir með nokkrum góðum veiðisvæðum.
Jón segir erfitt að velja á milli þeirra fjölmörgu veiðisvæða sem stangveiðimönnum stend-
ur til boða hérlendis. Hér sést hann með Þór Nielsen í Arkó veiðivörum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Stangveiði nýtur sífellt meiri vin-
sælda hjá landsmönnum og virðist
áhugi kvenþjóðarinnar á þessari
íþrótt hafa aukist verulega síðustu
ár. Fyrir fimmtán árum stofnuðu
sjö áhugakonur um stangveiði
klúbbinn Óðflugur, sem samkvæmt
einum stofnendanna, Önnu Björgu
Sveinsdóttur, heldur úti öflugri
starfsemi.
Innt eftir því af hverju konurnar
hafi ráðist út í að stofna sérstak-
an kvennaklúbb, segir Anna eig-
inmenn margra kvennanna mikla
veiðimenn ásamt því sem nokkrir
þeirra hafi atvinnu af veiði. „Okkur
langaði bara sjálfar að reyna við
þessa íþrótt, fyrst mennirnir voru að
þessu,“ segir Anna. „Flestar kvenn-
anna voru nýgræðingar í upphafi,
en við höfðum tvær veitt eitthvað
áður. Það er að segja ég sjálf og
Vigdís Ólafsdóttir, sem er mágkona
mín.“
Anna segir að hjá Óðflugunum sé
sterk hefð fyrir því að fara í árlega
veiðferð í Straumana. „Við Straum-
ana er einn elsti veiðkofi landsins
sem hægt er að gista í,“ útskýr-
ir hún. „Við förum alltaf í byrjun
júlí og erum í tvo daga í senn. Svo
höfum við bæði farið í Fljótshlíð og
Laxá í Kjós til að veiða,“ bætir hún
við.
Óðflugurnar eru svo sannarlega
engir aukvisar í veiðimennsku.
Fyrir utan að nokkrar þeirra hnýta
eigin flugar, elda þær mat að veiði
lokinni og grilla stundum meira
að segja á bakkanum. „Við tökum
þetta af alvöru, skiptumst til dæmis
alltaf á að vera í hálftíma hver og
Engir aukvisar
í veiðimennsku
Óðflugur er klúbbur sjö hressra stangveiðikvenna sem
kalla ekki allt ömmu sína.
Það er alltaf nóg að gera hjá Óðflugunum og á fimm ára afmælinu fóru þær til Skotlands
að skoða á, þar sem kona fékk stærsta lax sem veiðst hefur á Bretlandseyjum. Hér sést
Anna í Kjósinni þar sem hún býr. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ { Stangaveiði } ■■■■
C M Y CM MY CY CMY K