Fréttablaðið - 08.06.2006, Síða 50
Verslanir Veiðihornsins í Hafnar-
stræti 5 og Síðumúla 8, þekkja flestir
íslenskir stangveiðimenn, enda hafa
þær í átta ár séð þeim fyrir helstu
nauðsynjavöru tengdri veiðinni.
Samkvæmt Ólafi Vigfússyni, öðrum
eigendanna, er sífelld endurskoðun
í gangi á vöruframboðinu og marg-
ar spennandi nýjungar framundan.
Ólafur telur fyrst upp vörur
tengdar laxveiðitímabilinu, sem
hófst fimmtudaginn 1. júní. „Við
leggjum töluverða áherslu á laxa-
flugur, sem við seljum í gríðarlegu
úrvali,“ segir hann. „Það hefur
varla sést betra úrval hérlendis. Þar
á meðal erum við með nýjar flugur
sem við höfum verið að prófa síð-
astliðið ár með góðum árangri. Þær
hafa sömuleiðis reynst vel bæði
í Rússlandi og Skotlandi, þannig
að ég mæli óhikað með þeim fyrir
stangveiðina,“ bætir hann við.
„Við erum einnig að kynna til
sögunnar flugu sem heitir Black
Boar, sem allir veiðimenn og -leið-
sögumenn falla í stafi yfir að sjá þótt
hér sé lítil reynsla komin á hana,“
segir hann. „Svo fæst Francis, vin-
sælasta laxveiðiflugan hérlendis,
nú í nýjum litum. Þetta eru helstu
nýjungarnar í flugunum.“
Ólafur bætir við að í sumum til-
vikum hafi alþjóðlegar flugur verið
lagaðar að íslenskum aðstæðum og
segir að þær laxaflugur sem best
henta íslenskum aðstæðum
séu yfirleitt minni, með
lengri hala og úr
öðru efni en
þekkist annars
staðar. „Stærð-
a r m u n u r i n n
stafar af því að
straumþunginn
hér er minni og
vatnið tærara en
erlendis þannig að
auðelt er að fæla
fiskinn frá, ef ekki
er farið með
gát,“ segir
hann.
Að sögn Ólafs er einnig gríð-
arleg breyting á flugulínum. „Það
eru að ryðja sér til rúms skotlínur,
einstaklega auðveldar viðureignar
bæði fyrir byrjendur og þá sem
eru lengra komnir,“ útskýrir hann.
„Vanir flugukastarar lengja köstin
sín verulega með
þessum
línum. Svo hefur notkun tvíhenda
aukist verulega síðustu tvö ár, en
fyrir þá sem ekki vita krefjast þess
konar stangir þess að haldið sé
utan um þær með báðum höndum
þegar kastað er,“ bætir hann við.
„Svo vil ég minnast á handsmíð-
aða Hardy-veiðistöng sem var á
síðasta ári sérstaklega hönnuð fyrir
íslenska veiði,“ segir Ólafur.
„Ákveðið var að hafa
hana nógu hraða til
að ráða við vindinn,
sterkbyggða til að
geta borið túpur og
þyngri flugur, og
loks í lengri kantin-
um svo betur væri
hægt að stýra flugu
sem Íslendingar
láta gjarna skauta á
vatninu. Þessi stöng
fékk frábærar viðtök-
ur um jólin þegar hún
kom fyrst fyrir sjónir
landsmanna, en hún
verður aðeins smíð-
uð í 250 eintökum.“
6
Hraðskreið, sterk og í lengra lagi
Ólafur Vignisson hjá Veiðihorninu um „íslensku“ Hardy-veiðistöngina og aðrar nýjung-
ar fyrir stangveiði.
Ólafur er með gott úrval veiðistanga í Veiðihorninu, þar á meðal Hardy Iceland-flugustöng
á 48.800 kr. Svo er fáanlegur skotheldur Scierra-tvíhendupakki, með stöng, hjóli, skotlínu
og kennsludisk á 44.800 kr. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Annað eins fluguúrval hefur varla sést hérlendis eins og í
Veiðihorninu. Hér má sjá sólgula Francis túpu, Pot Belly Pig
Purple og Orange, bláa Francis, Black Boar, bláa Francis túpu
og Sunday Shadow (neðst).
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Veiðikortið er nýr valkostur sem veitir
fólki aðgang að veiði í 23 veiðivötn-
um um allt land. Auk þess verður
hægt að tjalda endurgjaldslaust við
mörg þeirra.
Með kortinu fylgir bæklingur þar sem
vötnin eru ítarlega kynnt, ásamt þeim
reglum sem gilda við hvert vatna-
svæði. Einnig eru kort og myndir frá
vatnasvæðunum.
Veiðikortið er til sölu á bensínstöðvum
ESSO , veiðifélögum, veiðiverslunum,
Fosshótelum um land allt og víðar og
kostar 5000 kr. Kortið veitir aðgang
að veiði í Baulárvallavatni á Snæ-
fellsnesi, Haukadalsvatni í Haukadal
í landi Vatns, Hítarvatni á Mýrum.,
Hraunsfjarðarvatni á Snæfellsnesi,
Kringluvatni í Þingeyjarsýslu, Langa-
vatni í Borgarbyggð, Langavatni á
Skaga, Ljósavatni í Suður-Þingeyj-
arsýslu, Sandvatni í Þingeyjarsýslu
í landi Hamars, Skorradalsvatni
í Skorradal í landi Indriðastaða,
Sléttuhlíðarvatni í Skagafirði í landi
Hrauns, Syðradalsvatni við Bolunga-
vík, Sænautavatni á Jökuldalsheiði,
Torfdalsvatni á Skaga, Urriðavatni
við Egilsstaði, Úlfljótsvatni í landi
Efri-Brúar, Vatnsdalsvatni í Vatns-
firði, Vífilsstaðavatni í Garðabæ,
Víkurflóði við Kirkjubæjarklaustur,
Þingvallavatni í landi þjóðgarðsins,
Þórisstaðavatni í Svínadal og Þveit
í nágrenni Hafnar í Hornafirði fyrir
landi Stórulágar.
Veiðikort
■■■■ { Stangaveiði } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
F
í
t
o
n
/
S
Í
A