Fréttablaðið - 08.06.2006, Page 73
FIMMTUDAGUR 8. júní 2006 41
*Miðað við 12 vaxtalausar jafnar greiðslur á Visa eða Mastercard skuldabréf. 0,5% stimpilgjald bætist við samningsfjárhæðina og greiðist með jöfnum greiðslum yfir samningstímann.
í fullum Sony gæðum
- og taktu leikina upp á HDD upptökutæki
50% afsláttur
ef keypt með nýju Sony LCD sjónvörpunum
KDL-32S2000K
32" Sony LCD sjónvarp
Verð
19.992 krónur
vaxtalaust* í 12 mán. eða
239.900 krónur staðgreitt
KDL-40S2000K
40" Sony LCD sjónvarp
Verð
31.992 krónur
vaxtalaust* í 12 mán. eða
379.900 krónur staðgreitt
Svartími 8ms
Tryggir skarpar
hreyfingar án draugs
160GB
269 klst af fótbolta
Pause live TV
Pásaðu lifandi leik
ef síminn hringir
FireWire
Ekkert mál að færa efni
af tökuvél yfir á DVD
Verð með HM tilboði
34.975 krónur
Verð áður 69.950,-
Skerpa 1300:1
Betri svartur,
fallegri mynd
Panill S-PVA
Litirnir haldast þó að
horft sé á tækið frá hlið
Upplifðu HM
RDR-HX710
Sony upptökutæki
WHAT HI
FI?
PRODUCT
OF THE Y
EAR
SOUND A
ND VISIO
N
Jana María Guðmundsdóttir sópr-
an og Kolbrún Sæmundsdóttir
píanóleikari halda einsöngstón-
leika í kvöld kl. 20 í Hafnarborg í
Hafnarfirði. Tónleikarnir eru
liður í burtfararprófi Jönu Maríu
frá Söngskólanum í Reykjavík, en
þar er hún söngnemandi Dóru
Reyndal.
Á efnisskránni eru meðal ann-
ars íslensk sönglög eftir Jórunni
Viðar og Ragnar H. Ragnar, ljóða-
söngvar eftir Schumann, Debussy,
Chausson og Fauré ljóðaflokkur-
inn I Hate Music eftir Leonard
Bernstein og aríur úr óperum,
m.a. aría Júlíu úr óperunni Romeo
og Júlía eftir Gounod. Jana María
slær einnig á léttari strengi og
flytur, ásamt þeim Aðalheiði Þor-
steinsdóttur píanóleikarara og
Birgi Bragasyni kontrabassaleik-
ara, „klassísk“ íslensk dægurlög
og söngleikjalög.
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill. - khh
JANA MARÍA GUÐMUNDSDÓTTIR
Heldur einsöngstónleika í kvöld.
Hugljúft í Hafnarborg
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
JÚNÍ
5 6 7 8 9 10 11
Fimmtudagur
■ ■ TÓNLEIKAR
12.00 Alda Ingibergsdóttir sópran-
söngkona heldur tónleika í Anima
gallerí Ingólfsstræti 8, Reykjavík. Á
efnisskránni eru íslensk sönglög, aríur
og vínartónlist. Undirleikari er Sólveig
Anna Jónsdóttir.
17.00 Sumartónleikaröð Smekk-
leysu og Grapevine. Í Galleríi Humri
eða frægð kemur Thugs on parole
fram kl. 17 og hljómsveitin Fræ spilar á
Café Amsterdam kl. 21, sérstakir gestir
verða tónlistarmenn úr hljómsveitinni
We painted the Walls.
20.00 Margaret Cheng Tuttle og
Jón Sigurðsson leika fjórhent á píanó í
Norræna húsinu.
20.00 Gradualekór Langholtskirkju
heldur vortónleika í Langholtskirkju.
Á efnisskránni eru að vanda íslensk
og erlend verk fyrir barnakóra. Þrír
einsöngvarar úr röðum kórfélaga koma
fram. Stjórnandi er Jón Stefánsson.
20.00 Jana María Guðmundsdóttir
sópran og Kolbrún Sæmundsdóttir
píanóleikari halda einsöngstónleika í
Hafnarborg í Hafnarfirði.
20.30 Kórastefna við Mývatn, tón-
leikar í Félagsheimilinu Skjólbrekka.
Finnski kórinn Kampraatti Kuoro
kemur fram, stjórnandi er Arto Risku.
22.00 Útgáfutónleikar á vegum
Tilraunaeldhússins sem kynnir
Fjölskyldualbúm sitt í Iðnó. Fram
koma hljómsveitirnar amiina, Benni
Hemm Hemm, Paul Lydon og Illi Vill.
Hljómsveitirnar Misery Loves
Company og Mogadon ásamt Svavari
Knút flytja dagskrána Drungablús og
djöflakántrý í Gamla Bauk á Húsavík.
Trúbadorinn Helgi Valur leikur á
skemmistaðnum Yello í Reykjanesbæ.
■ ■ LEIKLIST
12.00 Kómedíuleikhúsið á Ísafirði
heldur leikhúsmaraþon og sýnir
einleikinn um Gísla Súrsson á sögu-
slóðum í félagsheimilinu í Haukadal
í Dýrafirði. Einleikurinn verður sýnd-
ur alls 19 sinnum. Leikari er Elfar
Logi Hannesson og er hann einnig
höfudur leiksins ásamt Jóni Stefáni
Kristjánssyni sem leikstýrir.
■ ■ ÚTIVIST
20.00 Önnur Grænatrefils-ganga
skógræktarfélaganna. Gengið verður
um Mosfellsdal. Göngurnar eru hluti af
fræðslusamstarfi skógræktarfélaganna
og KB banka.
■ ■ DANSLIST
20.00 Dansleikhússamkeppnin
25 tímar verður haldin á vegum
Leikfélags Reykjavíkur og Íslenska
dansflokksins í Borgarleikhúsinu.
20.00 Japanska nútímadansverkið
Genji í Kassanum í Þjóðleikhúsinu.
Verkið byggir á kafla úr Genji
Monogatari, þekktri sígildri japanskri
skáldsögu frá 11. öld.
■ ■ SÝNINGAR
17.00 Rakel Gunnarsdóttir og
Hörn Harðardóttir opna á Gallerí
Vesturvegg í menningarmiðstöðinni
Skaftfelli. Leikgleðin tekur völdin og
mega áhorfendur búast við skemmtilegri
sýningu.
Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist
á hvar@frettabladid.is ekki síðar en
sólarhring fyrir birtingu.
Í dag verður sett óvenjulega list-
rænt Íslandsmet. Vestfirska Kóm-
edíuleikhúsið á Ísafirði hyggst
sýna einleikinn um Gísla Súrsson
sleitulaust í einn sólarhring en
ekki er vitað til þess að hérlent
hafi gert tilraun til viðlíka
maraþons fyrr. Leikritið er um
klukkustundar langt og fær leikar-
inn og eldhuginn Elfar Logi Hann-
esson korters pásu milli sýninga.
Maraþonið fer fram á söguslóð-
um fornkappans, nánar tiltekið í
félagsheimilinu í Haukadal í Dýra-
firði þar sem Gísla saga gerist að
stærstum hluta. Þar verður opið
hús meðan á maraþoninu stendur
og fólk getur því fylgst með her-
legheitunum.
Tilgangur leikhúsmaraþonsins
er að vekja athygli á einleikja-
hátíðinni Act alone sem Kómedíu-
leikhúsið stendur fyrir og verður
haldin á Ísafirði dagana 29. júní ¿
2. júlí og er viðburðurinn um leið
fjáröflun fyrir hátíðina. Hafin er
áheitasöfnun fyrir maraþonið þar
sem hægt er að styrkja þetta ein-
leikna uppátæki. Stofnaður hefur
verið sérstakur söfnunarreikning-
ur í Landsbankanum á Ísafirði
númerið er 0156-26-68. Allur ágóði
rennur í Act alone 2006. Leikhús-
maraþonið hefst kl. 12.00 á hádegi
fimmtudaginn 8. júní og lýkur á
hádegi á föstudag 9. júní. Fólk
getur því notað tækifærið og valið
um dags-, kvölds-, miðnætur-,
nætur- og morgunsýningu.
Einleikurinn Gísli Súrsson var
frumsýndur í fyrra og hefur notið
mikilla vinsælda víða um land.
Leikari er Elfar Logi Hannesson
og er hann einnig höfundur leiks-
ins ásamt Jóni Stefáni Kristjáns-
syni sem leikstýrir. - khh
MARGLEIKIÐ MARAÞON Kappinn Gísli Súrs-
son snýr ítrekað aftur í Haukadalinn.
Ekki einleikið íslenskt maraþon