Fréttablaðið - 08.06.2006, Page 85
[KVIKMYNDIR]
UMFJÖLLUN
Árið 1976 sendi hinn ágæti leik-
stjóri Richard Donner (Superman,
Lethal Weapon) frá sér hryllings-
myndina The Omen. Þessi þrjátíu
ára gamli hrollur er fyrir löngu
orðinn sígildur enda var myndin
ákaflega vel mönnuð með kemp-
una Greogry Peck í hlutverki
sendiherra Bandaríkjanna í Lond-
on sem ól afkvæmi Satans upp
sem sitt eigið. Lee Remick gaf
ekkert eftir sem eiginkona sendi-
herrans, David Warner fór vel
með rullu fréttaljósmyndara sem
varð lykilmaður í lausn gátunnar
um And-Krist og hrollvekjudrottn-
ingin Billie Whitelaw var vægast
sagt ógnvekjandi sem Mrs.
Baylock, barnfóstran frá helvíti.
Undir sígildum átökum góðs og
ills dundi svo djöfulleg tónlist
Jerry Goldmsith, bergmál af
Carmina Burana eftir Orff, sem
gulltryggði að áhorfendur efuðust
ekki eitt augnablik um að sonur
Satans væri stiginn til jarðar og
var áður en yfir lauk kominn með
annan fótinn inn fyrir þröskuld
Hvíta hússins.
The Omen er gerð eftir sam-
nefndri skáldsögu Davids Seltzer
sem lék sér með þá hugmynd úr
Opinberunarbók Jóhannesar að
þegar dýrið, eyrnamerkt hinni
djöfullegu tölu 666, risi úr djúpinu
myndi mannkynið tortímast. Hjá
Seltzer birtist þessi And-Kristur
sem hvítvoðungurinn Damien,
getinn af sjakala á sjötta degi
sjötta mánaðar ársins klukkan
sex. Svo „óheppilega“ vill til að á
sama tíma deyr barn Roberts
Thorn sendiherra og eiginkonu
hans, Katherine, í fæðingu og
Robert fellst á það að undirlagi
vafasams sjúkrahússprests að
taka Damien að sér og ljúga því að
eiginkonu sinni að hann sé sonur
þeirra hjóna. Þetta gerir ambassa-
dorinn vitaskuld í trausti þess að
hinn ættleiddi sé mennskt barn
móður sem fórst af barnsförum.
Nokkur ár líða þar til dularfull
dauðsföll í kringum Damien fara
að vekja upp spurningar um leið
og móðirinn fer að efast um að
barnið sé hennar. Sendiherrann
áttar sig svo hægt og bítandi á því
að eiginkona hans hefur alið nöðru
við brjóst sér en þá gæti það verið
um seinan. Framtíð mannkyns alls
gæti verið í húfi og það stendur
upp á hann að drepa „son“ sinn
samkvæmt ákveðnu ritúali.
Nú, árið 2006, er Damien kom-
inn aftur. Nýja Omen-myndin er
býsna vel mönnuð, eins og forver-
inn, og þó öllu meiri kraftur hafi
verið í Peck og Remick í hlutverk-
um sendiherrahjónanna á sínum
tíma er engin ástæða til að kvarta
yfir Liev Schreiber og Juliu Stiles.
Aðrir leikarar skila svo sínu með
sóma í smærri en ekki síður mikil-
vægum hlutverkum.
Það er því býsna vel að verki
staðið í þessari uppfærðu útgáfu
The Omen en þar sem um er að
ræða endurgerð pottþéttrar mynd-
ar þá er hún í raun jafn óþörf og
ljósrit Gus Van Sant af Psycho. Af
hverju að laga það sem er ekki
bilað? Hér hjálpar það þó óneitan-
lega til að nýja myndin er ekki end-
urgerð ramma fyrir ramma. Sagan
er tengd samtímanum og meiri
áhersla er lögð á angist móðurinn-
ar sem áttar sig á að barnið hennar
er beinlínis illt. Alls ekki galið en
þetta bætir engu við upprunalegu
söguna og The Omen anno 1976
stendur eftir sem mun öflugri
mynd. Hér vantar herslumuninn
og það verður að segjast eins og er
að þó Schreiber sé fínn leikari þá
kemst hann ekki með tærnar þar
sem Peck var með hælana.
Það eina sem nýja myndin gerir
af viti er að kynna þessa fínu sögu
fyrir nýrri kynslóð sem nennir lík-
lega ekki að sækja frummyndina
út á leigu. Þórarinn Þórarinsson
Djöfullinn tekur öll völd
THE OMEN
LEIKSTJÓRI: JOHN MOORE
Aðalhlutverk: Liev Schreiber, Julia Stiles,
David Thewlis, Mia Farrow og Seamus Davey-
Fitzpatrick.
Niðurstaða: Nýja myndin um Damien djöfla-
barn ætti að skjóta þeim sem ekki hafa séð þá
gömlu skelk í bringu en fyrir hina er hún lítið
annað en notaleg upprifjun. ��������
�����������������
��������
�
�
�
�
�
�
��
�
�
��
�
����������
������
�����
�� ������ ��� �������� �� ���
���������������
���������
�����
��������������
Píanóleikarinn Billy Preston, sem
lék með Bítlunum og The Rolling
Stones, er látinn, 59 ára að aldri.
Þegar Preston var unglingur
spilaði hann með Little Richard og
Ray Charles og síðar lék hann á
Bítlaplötunni Let It Be og Exile on
Main Street með The Rolling Stones,
auk þess sem hann vann með Bob
Dylan og Arethu Franklin.
„Billy var afar hæfileikaríkur
tónlistarmaður. Hann var frábær
söngvari bæði í hljóðverinu og á
tónleikum,“ sagði Mick Jagger,
söngvari Rolling Stones. „Ég mun
sakna hans mikið.“
Á umslagi plötunnar Let It Be
kemur fram að Preston hafi leikið
með í laginu Get Back og var það
aðeins í annað skiptið sem nokkurs
utanaðkomandi var getið með þeim
hætti á plötum Bítlanna.
Preston hafði góð áhrif á
Bítlana á meðan á upptökum á Let
It Be stóð en fram að því hafði
andrúmsloftið í sveitinni ekki
verið gott. Talið er að John Lennon
hafi viljað gera Preston að fimmta
Bítlinum en hugmyndin fékk
dræmar viðtökur hinna meðlima
sveitarinnar.
Auk þess að vinna með öðrum
tónlistarmönnum gaf Preston út
sólóplötur á áttunda áratugnum,
til dæmis smáskífurnar Will It Go
Round in Circles og Nothing From
Nothing. Preston lést vegna nýrna-
bilunar. Hafði hann verið í dái frá
því í nóvember.
Billy Preston látinn
BILLY PRESTON Píanóleikarinn Billy Preston er látinn, 59 ára að aldri.
Hljómsveitirnar Fræ, We painted
the walls og Thugs on Parole spila
á sumartónleikaröð Reykjavík
Grapevine og Smekkleysu í kvöld.
Thugs on Parole spilar í Gallerý
humar eða frægð klukkan 17.00 en
klukkan 21.00 spila Fræ og We
painted the walls á Café Amster-
dam. Þar er aðgangseyrir 500 krón-
ur en frítt er inn á fyrri tónleikana.
Fræ, sem var stofnuð á síðasta
ári, mun selja nýjustu plötu sína,
Eyðileggðu þig smá, á tónleikun-
um en hún er nýkomin til landins.
Tvennir tónleikar verða haldn-
ir alla fimmtudaga í sumar í til-
efni af sumartónleikaröðinni, alls
28 talsins.
Tónleikaröð hefst
FRÆ Hljómsveitin Fræ spilar á Café Amsterdam í kvöld.