Fréttablaðið - 08.06.2006, Blaðsíða 88
8. júní 2006 FIMMTUDAGUR56
HANDBOLTI Lokapróf hand-
boltalandsliðsins fyrir leikina
gegn Svíum verður þreytt í kvöld
þegar strákarnir okkar mæta
Dönum öðru sinni og í þetta skipt-
ið í Laugardalshöll. Ísland vann
fyrri leikinn á þriðjudag á Akur-
eyri og verður spennandi að sjá
hvernig Alfreð Gíslason landsliðs-
þjálfari lætur liðið spila í kvöld.
„Ég var þokkalega sáttur við
leikinn á Akureyri en við vorum
að gera of mikið af tæknifeilum og
svo gekk 6/0 vörnin ekkert.
Aggressíva vörnin gekk betur,
sem og sóknin, og þá aðallega í
fyrri hálfleik en þetta datt svolítið
niður í seinni hálfleik,“ sagði
Alfreð Gíslason, sem var að greina
leikinn frá þriðjudeginum þegar
Fréttablaðið náði tali af honum.
„Ég mun halda áfram að spila
þessa aggressívu vörn gegn
Dönum á morgun (í kvöld) og mun
einnig prófa að setja Alexander
upp á topp en hann er mjög sterk-
ur í þeirri stöðu rétt eins og Guð-
jón Valur. Hann stelur fullt af bolt-
um og er einnig rosalega sterkur.“
Sverrir Björnsson fékk það
hlutverk að leika við hlið Sigfúsar
Sigurðssonar í vörninni og hann
mun gera það áfram í kvöld. Hann
mun því væntanlega fá það verk-
efni að skrúfa fyrir örvhentu
skyttuna Kim Andersson í Globen
á sunnudag. Sverrir átti ekki sér-
stakan leik á Akureyri og gerði sig
sekan um nokkuð af mistökum.
„Ég bjóst aldrei við fullkomnum
leik hjá Sverri því hann hefur ekki
spilað nákvæmlega þessa stöðu
áður og hann var fullbráður á köfl-
um. Þetta er erfiðari staða en Sig-
fús spilar í þessari vörn og ég sé
engan annan en Sverri taka And-
ersson á þessu svæði. Sverrir hefur
örugglega lært mikið af þessum
leik og kemur sterkari til leiks í
Höllinni,“ sagði Alfreð en hvað
verður æft sérstaklega í kvöld?
„Við höldum áfram að keyra
hluti sem gengu illa á Akureyri og
þá sérstaklega í sókninni. Við
hættum að spila fljótandi bolta
þegar leið á leikinn og vorum of
staðir. Á móti Svíunum verðum
við að fá mikla hreyfingu án bolta
og spila lengri sóknir,“ sagði
Alfreð.
Logi Geirsson leikur ekki með í
kvöld vegna veikinda. Leikurinn
hefst klukkan 19.35 og kostar 1.000
krónur inn í húsið.
henry@frettabladid.is
Reynum að laga það sem
miður fór á Akureyri
Handboltalandsliðið býr sig í Höllinni í kvöld undir umspilsleikina gegn Svíum
um sæti á HM. Strákarnir halda til Svíþjóðar á föstudagsmorgun en leikurinn
fer fram á sunnudag í Globen-höllinni í Stokkhólmi.
LÍFLEGUR Á LÍNUNNI Alfreð Gíslason var mjög líflegur á sínum gamla heimavelli á þriðju-
dag þegar hann stýrði landsliðinu í sinum fyrsta landsleik.
FÓTBOLTI Heimsmeistarar Brasilíu
óttast greinilega að mjög fast
verði tekið á þeim í heimsmeist-
aramótinu sem hefst í Þýskalandi
á morgun. Ronaldinho, leikmaður
Barcelona og lykilmaður í lands-
liði Brasilíu, hefur biðlað til dóm-
ara um að vernda leikmenn liðsins
fyrir grófum leik andstæðinga
þeirra.
„Öll liðin bíða eftir því að spila
við okkur og munu án nokkurs
vafa gera allt sem þau geta til að
stöðva sóknirnar okkar. Það er
mjög mikilvægt að dómararnir
taki hart á þessu vegna þess
hvernig við spilum fótbolta,“
sagði Ronaldinho úr æfingabúð-
um landsliðsins en hann óttast
greinilega að leiftrandi sóknar-
leikur liðsins fái ekki að njóta sín
sem skildi.
„Það er sama hvaða lið við spil-
um við, þau munu öll verjast gegn
okkur. Við vitum vel að það getur
verið erfitt að skora þegar lið gera
það, sitja aftur á vellinum og
reyna að nýta sér skyndisóknir,“
sagði kokhraustur Ronaldinho í
von um sérmeðferð frá dómurum
á stórmótinu.
Brasilíumenn eru í riðli með
Áströlum, Japan og Króötum, sem
þeir leika fyrsta leikinn gegn á
þriðjudaginn.
- hþh
Leikmenn Brasilíu óttast „ofbeldi” í leikjum:
Ronaldinho biðlar
til dómara HM
SNILLINGUR Búist er við miklu af Ronaldinho á HM og hann má því eiga von á föstum
tökum frá andstæðingunum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
FÓTBOLTI Michael Ballack, fyrirliði
Þýskalands, segir að liðið eigi litla
möguleika á því að vinna heims-
meistarakeppnina í Þýskalandi
vegna reynsluleysis. „Við höfum
leikmenn sem eru ekki með mikla
landsliðsreynslu. Við höfum ekki
úr eins hópi að velja og við höfð-
um á HM 1990 eða Evrópukeppn-
inni fyrir tíu árum.
„Liðið gerir mikið af mistökum
og það er mikil óvissa fyrir mótið.
Frammistaða og úrslit okkar fyrir
mótið sýna að liðið er óstöðugt,“
sagði Ballack, sem gekk nýlega í
raðir Chelsea. - egm
Michael Ballack, Þýskalandi:
Okkur skortir
stöðugleika
BALLACK Umkringdur af fjölmiðlum og
aðdáendum í Berlín. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Miðjumennirnir Nigel de
Jong og Stijn Schaars hjá Hollandi
eru báðir í biðstöðu fyrir heims-
meistarakeppnina. Meiðslavand-
ræði liðsins eru að aukast og hafa
Wesley Sneijder, Phillip Cocu,
Giovanni van Bronckhorst og Kew
Jaliens allir bæst á meiðslalistann
þar sem Rafael van der Vaart var
fyrir.
„Við erum ekki vissir um hvort
einhver af þeim þurfi að draga sig
út úr hópnum en gott er að vera
við öllu búnir og hafa varamenn
reiðubúna sem eru tilbúnir að
stökkva inn,“ sagði talsmaður hol-
lenska liðsins en hægt er að skipta
út meiddum leikmönnum þar til
sólarhring fyrir fyrsta leik.
Hinn reynslumikli Nigel de
Jong var ekki í upprunalega hópn-
um þar sem hann var að jafna sig
eftir aðgerð á hné en hann hefur
nú jafnað sig. Schaars er fyrirliði
U21-landsliðs Hollands sem hamp-
aði Evrópumeistaratitlinum í síð-
ustu viku. - egm
Meiðsli í hollenska hópnum:
Tveir menn í
biðstöðu
HOLLAND Stuðningsmenn Hollands
skemmta sér þrátt fyrir vandræðin hjá
liðinu. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Leikmönnum spænska
landsliðsins er lofað hæstu bónus-
greiðslunum af liðunum sem taka
þátt í heimsmeistarakeppninni.
Breska blaðið Daily Mail er með
úttekt á þessum málum, en Eng-
lendingar eru aðrir í röðinni, og
hver leikmaður á von á 42 milljón-
um íslenskra króna ef liðinu tekst
að vinna keppnina á móti rúmum
55 milljónum sem spænsku leik-
mönnunum er lofað.
Upphæðin sem Englendingum
er lofað er helmingi hærri en
Frakkar eiga að fá og þrisvar sinn-
um meiri en Brasilíumenn munu
fá verði þeir heimsmeistarar. - egm
Heimsmeistarakeppnin:
Spánverjar fá
mest í bónus